Bændablaðið - 28.01.2016, Page 50

Bændablaðið - 28.01.2016, Page 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 28. janúar 2016 Í júní 2010 prófaði ég og skrifaði um Chevrolet Spark LT og lét vel af honum. Nú sex árum seinna tók ég smáhring á eins bíl (Spark LT). Við fyrstu sýn virtist allt vera svipað nema eitt hestafl í viðbót og verð hefur lækkað um 500.000. 82 hestafla vélin skilar bílnum vel áfram Fyrir sex árum var Spark í boði með tveim vélarstærðum (100cc og 1200cc), en nú er það bara stærri vélin sem er 1200 rúmsentímetra vél og á að skila 82 hestum (bæst við eitt hestafl á 6 árum). Svona stór vél í litlum, léttum bíl skilar honum vel áfram, jafn- vel fullhlaðinn keyrandi brattar brekkur í íslensku roki bætir Spark sáralítilli bensíneyðslu við sig, en margir smábílar með minni vélar sem ég hef prófað eru jafn- vel að bæta við eyðsluna allt að þrem lítrum á hundraðið í miklum mótvindi þar sem vélarnar eru einfaldlega ekki nógu kraftmiklar fyrir íslenska vegi og veðurfar. Skráður 5 manna með 5 stjörnu öryggi Spark er einn af fáum smá- bílum sem fær fimm stjörnur í árekstursprófunum enda er hönnunin á honum þannig að inni í öllum hurðum, þaki, hvalbak og undir bíl eru styrktarbitar sem eru hannaðir eins og veltibúr í kappakstursbílum (stundum kallaðir krossbitar). Chevrolet Spark er skráð- ur fimm manna, en fyrir mér er Spark bara bíll fyrir fjóra og sem dæmi þá settust synir mínir báðir aftur í bílinn og þar sem þeir sátu sagði annar: „Myndi ekki einu sinni bjóða hundinum á milli okkar þótt mjór sé.“ Farangursrými er ekki nema 170 lítrar þegar sæti eru uppi. Engin ástæða til að breyta því sem gott er Útlitið á Spark hefur verið nánast það sama frá upphafi og það góða við bílinn er að hann bilar lítið í samanburði við jafninga sína. Svo sem engin ástæða að breyta því sem virkar vel. Í prufuakstrinum gafst mér tækifæri á að prófa bíl- inn í vel svellaðri brekkunni upp að skíðasvæðinu í Skálafelli. ABS bremsukerfið virkaði vel ásamt stöðugleikakerfinu, en þess ber að geta að bíllinn var á glænýjum Toyo vetrarhjólbörðum sem gáfu mjög gott grip. Spurning hvað lengi verður hægt að fá Chevrolet Spark Eins og margir vita þá er Chevrolet og Opel í raun sama fyrirtækið, Opel er ætlaður til sölu í Evrópu, en Chevrolet í Ameríku. Enn er hægt að fá Chevrolet Spark í Bílabúð Benna á mjög góðu verði (oft hefur Bílabúð Benna verið fyrst til að lækka verð á sínum bílum þegar innkaupsverð og gengi er hagstætt). Spark hefur verið mjög vinsæll smábíll sem margir munu sakna ef hann hverfur af markaði. Chevrolet Spark LT er á verði frá 1.990.000 (500.000 ódýrari en hann var fyrir 6 árum). Vélabásinn Þyngd 864 kg Hæð 1.522 mm Breidd 1.597mm Lengd 3.595 mm Helstu mál og upplýsingar Umhirða á bremsum og nauðsyn að skipta um bremsuvökva Það eru mjög fáir sem gera vel við bílinn sinn eftir að ábyrgðarskoðunum lýkur. Þegar við eigum nýlega bíla þarf að færa þá í ársskoðun sem innflytjandi bílsins fer fram á til að viðhalda ábyrgð. Það sem gert er í flestum viðhaldsskoðunum er m.a. þrif á bremsum og bremsuklossasæti eru oft sandblásin og sprautuð með sinkmálningu. Í lýsingu á nótu frá B.L. þar sem ársgamall bíll var yfirfarinn segir m.a. orðrétt: „Bremsur verkaðar upp. Haldarar sandblásnir og sinkhúðaðir“. Bremsuvökvi verður lélegur á um fimm árum eða fyrr Þegar bílar fara í hefðbundna smurþjónustu er það vinnuregla á mörgum smurstöðvum að stinga þar til gerðu mælitæki sem segir til um hvort þarf að skipta um bremsuvökva. Ef vökvinn mælist ónýtur í hæðarglasinu er hann fyrir löngu orðinn ónýtur við bremsu- dælurnar. Bremsuvökvinn eyðileggst fyrst í lagnakerfinu við bremsudælurn- ar. Sem dæmi, er ekki óalgengt að viðgerðar menn á rallý bílum þurfi að tappa af bremsu- vökva oft í hverri keppni. Það er vegna þess að bremsuvökv- inn hitnar of mikið á sumum sérleiðum þrátt fyrir að flestir rallökumenn noti bremsuvökva sem þolir mun meiri hita en sá sem notaður er í venjulega bíla. Gott ráð til að nýta betur bremsuvökvann Á veturna er mjög víða sullað miklu salti á götur til að eyða ís og hálku. Salt er mesti óvinur bremsukerfa í bílum og í einstaka bílum eru bremsur sem einfald- lega þola ekki salt. Af þessum sökum er mjög gott að reyna sem oftast að koma því við að skola með volgu vatni í gegnum felg- urnar saltið af bremsunum á bíl- unum. Einnig ættu menn að tappa bremsuvökvanum af við hverja bremsudælu einu sinni eða tvisvar á ári. Þetta er tveggja manna verk, annar er inni í bíl og stígur á bremsupedalann og hinn er við bremsudælurnar útbúinn flösku með litla slöngu sem sett er upp á lofttappann á hverri bremsudælu, losa um lofttappann, lætur stíga pedalann niður, lokar fyrir tapp- ann og fer á næstu dælu. Maður finnur muninn strax eftir svona aðgerð Hvenær veit maður þegar bremsu- vökvi er með smá raka í eða er skítugur? Svar: Það getur til dæmis verið þegar maður verður var við að einn bremsudiskur er heitari en annar. Heyrir ískurshljóð í brems- um smá tíma eftir að bremsur eru notaðar. Eins ef manni finnst að það þurfi að stíga óþægilega fast á bremsupedalann til að bíllinn bremsi. Raki og óhreinindi geta verið til þess að stimpill í bremsu- dælu fer of hægt til baka eftir að bremsum er sleppt og liggja þá bremsuklossarnir í smá stund á disknum sem gerir óþarfa slit á bremsum og stuttan endingartíma á bremsudiskum og klossum. Eftir að tappað er af hverri dælu smá bremsuvökva eða skipt alveg um vökva finnur maður ótrúlegan mun hvað bremsurnar eru miklu betri. /HLJ Hjörtur Leonard Jónsson liklegur@internet.isChevrolet Spark hefur lítið breyst en lækkar í verði Chevrolet Spark LT. Myndir / HLJ Toyo-vetrardekkin gáfu mjög gott grip á svelluðum vegi.Fær plús hjá mér fyrir dagljósabúnað sem stenst íslensk lög, en ekki þessi led-týruljós sem eru á mörgum bílum í dag. Glettilega hátt undir Spark miðað við marga aðra sambærilega smábíla. Á sumum bílum er gott að komast að lofttappanum og þarf ekki að taka dekk af.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.