Bændablaðið - 07.09.2017, Blaðsíða 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum
á landinu og á öll lögbýli landsins.
Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti
gegn greiðslu. Árgangurinn kostar þá kr. 10.200 með vsk. (innheimt í tvennu lagi).
Ársáskrift fyrir eldri borgara kostar 5.100 með vsk.
Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík.
Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279
Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar −
SKOÐUN
Bændur ræða nú tillögur landbúnaðar-
ráðherra um lausn á vanda sauðfjárbænda
vegna lækkunar afurðaverðs og mikilla
birgða. Tillögurnar eru vissulega
athyglisverðar en bændum þykir samt
ljóst að þær séu aðeins plástur á sárið
en ekki lausn á vandanum.
Það virðist vera samdóma álit flestra
að fækka þurfi fé í landinu tímabundið til
að koma í veg fyrir birgðasöfnun afurða.
Ef farið verður í stórfelldan niðurskurð og
samið um möguleg starfslok einhvers fjölda
bænda, þá mun birgðavandinn hins vegar
aukast til muna, allavega til skamms tíma.
Það sem verra er er að um leið mun það án
efa leiða til tilviljanakennds niðurbrots á
samfélögum víða um land.
Það er mikilvægt að byggð haldist sem
víðast um land. Einnig að hún sé kraftmikil
og lifandi og skapi ásættanlegt lífsviðurværi
fyrir blandað samfélag allra aldurshópa.
Hver einasti bóndi sem lætur af störfum
og hver einasti sveitabær sem leggst í eyði
dregur máttinn úr samfélaginu sem eftir
stendur. Erfiðara og mun dýrara verður að
halda uppi nauðsynlegri þjónustu, bæði við
íbúa á viðkomandi svæði og við vaxandi
straum ferðamanna.
Vissulega er vont og kostnaðarsamt að
þurfa að takast á við áföll í landbúnaði. Menn
mega þó ekki gleyma því að landbúnaður er
víða uppistaðan í heilu sveitarfélögunum.
Það að stjórnvöld bregðist við vanda eins
og nú blasir við í sauðfjárrækt er ekki bara
spurning um aðstoð við einhverja vesæla
rollubændur, heldur miklu frekar spurning
um hvort við viljum halda landinu í byggð
sem víðast eða ekki.
Ef sauðfjárrækt legðist t.d. af í
Húnavatnssýslum, yrði algjört hrun í
samfélögum fólks sem þar býr. Því má
hiklaust spyrja þeirrar spurningar hvort ekki
yrði mun dýrara fyrir okkar sameiginlegu
sjóði að bregðast við slíkum vanda. Það
myndi um leið hafa í för með sér að afskrifa
þyrfti alla innviðauppbyggingu liðinna
áratuga á viðkomandi svæði. Þá þyrfti um
leið að byggja upp samsvarandi innviði á
öðrum stöðum, nema menn sjái fyrir sér
að íbúarnir hreinlega hverfi af yfirborði
jarðar. Heill landshluti gæti hæglega lagst
í eyði og lokast myndi fyrir alla þjónustu á
svæðinu. Afskrifa þyrfti gríðarlega fjármuni
í fasteignum og setja enn meiri fjármuni
í að byggja upp á öðrum stöðum. Vandi
sauðfjárbænda í dag yrði trúlega harla
lítilfjörlegur í þeim kostnaðarsamanburði.
Annað mál sem tengist þessari umræðu
er verðlagning á matvöru. Hver þekkir ekki
sönginn um að íslenskar landbúnaðarvörur
séu allt of dýrar? Þar verður að hafa í huga
að ef sauðfjárrækt og annar landbúnaður nyti
ekki stuðnings úr opinberum sjóðum væru
afurðirnar án efa mun dýrari. Sama væri upp
á teningnum í öllum þeim löndum sem við
berum okkur saman við. Ef þessa stuðnings
nyti ekki við mætti leiða að því sterkum
líkum að hér væri enginn landbúnaður
starfræktur. Þora menn virkilega að taka
þá áhættu í ljósi sögunnar í hvikulum heimi?
Aðrar þjóðir treysta sér ekki til þess og þykir
lífsnauðsynlegt að tryggja fæðuöryggi sinna
þegna. Hví ættu Íslendingar þá að leggja út
á slíka háskabraut?
Það er samt bæði hollt og bráð-
nauðsynlegt að menn velti við öllum
steinum til að finna leiðir sem gætu leitt
til meiri skilvirkni í landbúnaði. Þannig
má t.d. benda á að í framsetningu afurða
til neytenda er landbúnaðurinn á svipuðu
stigi og sjávarútvegurinn var fyrir nokkrum
áratugum. Það er t.d. stórundarlegt að
það hafi þurft erlenda stórverslun inn
á markaðinn til að hægt væri að bjóða
íslenskum neytendum íslenskt kindahakk í
neytendapakkningum og skurð á kjöti sem
fólki hugnast að kaupa. /HKr.
Vandi og lausnir
ÍSLAND ER LAND ÞITT
Mynd / Hörður Kristjánsson
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
hefur kynnt tillögur sínar um aðgerðir vegna
yfirstandandi vanda í sauðfjárrækt. Ítarlega
hefur verið fjallað um málið og orsakir þess
undanfarna daga og vikur. Bændur hafa
jafnframt haldið fjölmenna opna fundi víða
um land til að ræða málið í sínum hópi og
við fulltrúa afurðastöðva.
Bændasamtök Íslands og Landssamtök
sauðfjárbænda hafa átt í viðræðum við
stjórnvöld síðan í mars þegar að ráðherra var
fyrst gerð grein fyrir málinu. Viðræðurnar hafa
gengið misjafnlega en samtalinu var þó alltaf
haldið áfram.
Tillögurnar eru settar fram á ábyrgð ráð-
herrans. Ekki er um að ræða beint samkomulag
stjórnvalda og samtaka bænda. Tillögurnar
verða nú teknar til umfjöllunar á vettvangi sam-
taka bænda, m.a. á aukafundi Landssamtaka
sauðfjárbænda.
Hvað varðar efni tillagnanna þá telja BÍ
og LS að í þeim sé vissulega margt sem hægt
er að taka undir og mun verða sauðfjárbænd-
um til aðstoðar, nú þegar þeir standa frammi
fyrir þriðjungslækkun afurðaverðs. Hins vegar
vantar þær aðgerðir sem taka á fyrirsjáanleg-
um birgðavanda eftir sláturtíðina, sem nú er
hafin. Þær leysa því ekki vandann þótt þær
séu í rétta átt.
Bændur hafa lagt fram tillögur til stjórnvalda
sem miða að því að taka heildstætt á þeim vanda
sem við blasir. Lykilatriði í þeim lausnum er að
virkja tímabundnar aðgerðir til sveiflujöfnunar,
svo sem að gera afurðastöðvum kleift að taka
sameiginlega ábyrgð á útflutningi kindakjöts.
Þær hugmyndir hafa ekki fengið brautargengi
og staðan því óbreytt hvað það varðar. Hættan
er sú að þær aðgerðir sem landbúnaðarráðherra
nú leggur til séu ekki nægar og verði aðeins til
þess að draga ástandið á langinn.
Samkomulag er um að flýta endurskoðun
sauðfjárhluta búvörusamninga og stefnt er að
því að niðurstaða hennar liggi fyrir 1. apríl á
næsta ári. Í þeirri vinnu þarf að ræða áfram þau
mál sem ekki eru leyst og eins meta árangur af
þeim aðgerðum sem ráðist verður í nú.
Aðstæður sem þessar fela óhjákvæmilega í
sér mikla óvissu. Þangað til málin skýrast betur
um útfærslu á lausnum verður mikill órói meðal
bænda. Menn máta sig við tillögur ráðherra
og velta fyrir sér hvernig þær komi út fyrir
hvern og einn og leita orsaka fyrir stöðunni. Því
hefur meðal annars verið haldið fram að hún
sé núgildandi sauðfjársamningi að kenna, sem
nú hefur gilt í átta mánuði og að markaðsmál
greinarinnar séu séu öll í skötulíki.
Ekki núgildandi sauðfjársamningi
um að kenna
Hvað samninginn varðar þá hafa þær breytingar
sem þar voru lagðar upp ekki tekið gildi nema
að óverulegu leyti, enda átti eldri samning-
ur upphaflega að gilda út árið 2017. Af þeim
sökum voru nánast engar breytingar gerðar á
þessu ári og mjög litlar í raun fyrr en 2020. Það
er einfaldlega þannig að við höfum ekki búið
við framleiðslustýringu í sauðfjárrækt í 22 ár.
Þó að margir kalli sauðfjárgreiðslumark enn
kvóta þá er engin framleiðslutakmörkun í því
fólgin. Hver sem er getur hafið sauðfjárfram-
leiðslu án takmarkana og svoleiðis hefur það
verið í meira en 20 ár. Sauðfjárbændur hafa í
raun náð gríðarlega góðum árangri í sínu starfi,
því að núna fást næstum 20% meiri afurðir eftir
hverja kind en um síðustu aldamót. Það er ekki
bara vegna þess að lömbin séu þyngri, heldur
eru þau fleiri og skila sér betur á haustin. Þetta
hefur aukið framleiðslu á meðan að ærnar eru
aðeins 0,4% fleiri. Það er dapurlegt að ekki
sé hægt að fagna svo mikilli framleiðniaukn-
ingu hjá sauðfjárbændum. Í nýja samningnum
er hugmyndin að auðvelda kynslóðaskipti og
gera stuðninginn skilvirkari með því að hverfa
frá því fyrirkomulagi á samningstímanum að
menn þyrftu að kaupa sér ríkisstuðning með
tilheyrandi fjármagnskostnaði. En þar eru líka
ákvæði um endurskoðun á því fyrirkomulagi
ef ekki næðist að hækka afurðaverð. Það þarf
ekki að hafa mörg orð um að það ákvæði mun
virkjast, en það eru ekki trúverðug rök fyrir því
að gildandi samningur hafi skapað þessa stöðu.
Útflutningur er greininni mikilvægur
Ég vil jafnframt hvetja bændur og afurðastöðv-
ar til að missa ekki trú á útflutningi sauðfjár-
afurða þó nú ári illa. Útflutningur er alltaf
nauðsynlegur þó ekki nema vegna þess að ekki
er markaður hérlendis fyrir allar afurðir lengur,
s.s. innmat, hausa, slög og fleira. Sem betur fer
hefur tekist að gera úr þeim verðmæti erlendis
fremur en að láta þau fara í súginn. Við megum
heldur ekki gefast upp við að byggja upp vel
borgandi markaði erlendis, eða til ferðamanna
hér heima, sem byggja á því að selja þá sögu
sem fylgir okkar sauðfjárframleiðslu. Að því
er unnið af hendi sauðfjárbænda í gegnum
verkefnið „Aukið virði sauðfjárafurða“. Til
framtíðar getur íslensk sauðfjárframleiðsla ekki
byggst á öðru en innanlandsmarkaði og erlend-
um mörkuðum sem skila jafngóðu eða betra
verði og erlendis. Að því ættu afurðastöðvar
að vinna í samvinnu við bændur. Það þarf að
þétta raðirnar í því verkefni. Útflutningur á
sauðfjárafurðum frá Íslandi hefur staðið frá
12. öld og á þeim tíma hefur svo sannarlega
ýmislegt gengið á.
Hlustum á neytendur og þrýstum á
afurðafyrirtæki og verslanir
Sama gildir um markaðsmálin almennt. Þar má
alltaf gera betur og vöruþróun hefur oft verið
ábótavant, en stundum snýst málið mest um
hvort að ný vara fær yfirleitt pláss í verslunum.
Á undanförnum misserum hafa þó margar
nýjungar komið á markað. Það er mikilvægt að
efla sem mest samtal bænda og neytenda, hvort
sem við erum að tala um lambakjöt eða aðrar
íslenskar landbúnaðarafurðir. Við þurfum að
hlusta meira eftir þörfum neytenda og ýta undir
að þeim sé sinnt í gegnum afurðafyrirtækin
okkar.
Það er að mörgu að hyggja. Þar á meðal
fara nú í hönd göngur og réttir. Ég vil óska
þeim sem eru að búa sig í það góðrar ferðar,
vona að heimtur verði góðar og að allir komi
heilir heim.
Sindri Sigurgeirsson
formaður Bændasamtaka Íslands
sindri@bondi.is
Missum ekki móðinn þótt brekkan sé brött
Ritstjóri: Hörður Kristjánsson (ábm.) hk@bondi.is – Sími: 563 0339 − Rekstur og markaðsmál: Tjörvi Bjarnason tjorvi@bondi.is – Blaðamenn: Margrét Þ. Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigurður Már Harðarson
smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is – Guðrún Hulda Pálsdóttir – ghp@bondi.is – Auglýsingastjóri: Ásgerður María Hólmbertsdóttir amh@bondi.is – Sími: 563 0303 – Netfang auglýsinga:
augl@bondi.is − Vefur blaðsins: www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Frágangur fyrir prentun: Anna Kristín Ólafsdóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu –
Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621