Bændablaðið - 07.09.2017, Síða 16
16 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
Ytri-Rangá hefur gefið lang-
flesta laxana í sumar og Reynir
Friðriksson leiðsögumaður var að
veiða. Við heyrðum aðeins hljóðið í
honum eftir veiðitúrinn á bökkum
Ytri-Rangár. Gefum Reyni orðið.
„Síðasta sunnudag var ég að
veiða við Ytri-Rangá, það var búin
að vera flott veiði fyrr um morguninn
og aðstæður mjög góðar, þar sem
það var búið að vera hlýtt nóttina
áður, og komu 37 laxar á land þennan
morgun.
Ég hnýtti undir flugu sem er köll-
uð „viagra“ og er hönnuð af Geira
(frænda). Það var svo í fimmta kasti
sem var rifið hressilega í og ég rétti
stöngina, hann tók roku og stökk
allur upp úr, þetta var stór og vel
leginn fiskur sem tók fluguna og
þurfti 15 feta stöngin að hafa vel fyrir
honum þar sem hún var í vinkil allan
tímann. Það var svo um 15 mínútum
síðar sem ég hélt á þykkum 92 cm
hæng. Frábær endir á góðum morgni
og mjög góð tilfinning að sjá hann
dóla rólega aftur út í hylinn þegar ég
sleppti honum.
Það komu 37 laxar á land þenn-
an morgun og þar af annar yfir 90
sentímetra fiskur svo veiðin er enn
mjög góð. Ekki skemmir að vita að
reglurnar eru þannig að sleppiskylda
er á öllum hængum yfir 80 cm og
á hrygnum yfir 70 cm. Svo það er
frábært til þess að vita að þessir
stóru eru þarna og því möguleiki á
ævintýrum og átökum við tveggja
ára fiska við Ytri-Rangá.
Veiðin í Elliðaánum hefur gengið í
sumar og núna eru komnir um 850
laxar úr ánni. Það er lax víða um
ána og mikið sums staðar. Vatnið
hefur verið gott eftir að tók að
rigna og fiskurinn að taka betur
hjá veiðimönnum.
„Þetta var gaman, við settum í
nokkra en þeir tóku grannt, jú, við
fengum lax í soðið,“ sagði Hafþór
Óskarsson en hann var í Elliðaánum
fyrir nokkrum dögum.
„Við vorum í Minnivallarlæk og
þar tók fiskurinn líka grannt en þetta
er samt svakalega skemmtilegt,“
sagði Hafþór enn fremur.
Elliðaárnar hafa staðið sig
vel, Grímsá, Langá, Haffjarðará,
Miðfjarðará og Ytri-Rangá svo ein-
hverjar sé nefndar til sögunnar. Það
er hellingur eftir að sumri, laxinn er
fyrir hendi og sjóbirtingur er mættur
fyrir austan. Það stefnir í veislu í
sjóbirtingnum.
Hreindýraveiðin hefur gengið
ágætlega og margir farið til veiða.
Ásgerður Ásgeirsdóttir var á
veiðislóð fyrir fáum dögum þegar
við heyrðum aðeins í henni.
„Þetta er geggjað gaman en verst
að það er ekki nógu margar konur
í þessu sporti,“ sagði Ásgerður
Ásgeirsdóttir. Hún var að skjóta
sitt annað hreindýr á ævinni fyrir
nokkrum dögum. En fyrir tveimur
árum náði hún sínu fyrsta dýri.
„Þetta var 95 kg tarfur, felldur á
svæði sex núna í ágúst, en svæði sex
er Breiðdalur, Skriðdalur og Öxi.
Það er alveg minn heimavöllur,“
sagði Ásgerður.
Árbæjarfoss í Elliðaám:
Sá sjötti sleit sig lausan
eftir rúmar 20 mínútur
Friðfinnur Hreinsson og Eggert
Sk. Jóhannesson voru fyrir
fáum dögum í Ytri-Rangá og
tóku eina vakt í Árbæjarfossi
við bestu skilyrði sem áin hefur
upp á að bjóða.
„Gott vatn er í ánni og búið að
rigna og það gekk á með rigningu
annað slagið,“ sagði Eggert.
„Það var austan strekkingur á
neðstu svæðunum og varla hægt að
kasta þar almennilega út og vorum
við því fegnir þegar við máttum
vera við Árbæjarfossinn í algeru
logni, sem var frábært.
Það var rólegt framan af en svo
fór hann að gefa sig og tók bæði
bláa og rauða Frances og einn
tók Black Conhead, sá sem sleit
sig lausan hefur allavega verið
rúm 14 pund. Friðfinnur var með
hann á í góðar 20 mínútur og við
hjálpuðumst að við að reyna að
landa honum en hann hafði betur
enda vel sterkur. Reif allt út og
tók ítrekaðar rokur og reyndi m.a.
að flækja línuna í stein sem stóð
upp úr.
Eftir fjóra tíma við veiðar, var
þetta orðið gott. Við vorum búnir
að veiða nóg og kvöddum ána í
bili, eða til næsta sumars,“ sagði
Eggert enn fremur.
Sveppir eru ólíkir plöntum,
meðal annars að því leyti að
þeir hafa ekki blaðgrænu og
geta því ekki ljóstillífað og
unnið lífræn efni úr ólífræn-
um.
Frumur sveppa hafa frumu-
vegg líkt og plöntufrumur en
veggurinn er ekki gerður úr
beðmi eins og hjá plöntum
heldur kítini eins og ytri stoð-
grind skordýra og sjávardýra,
til dæmis humars og rækju.
Sveppir lifa á rotnandi líf-
rænum leifum og/eða í sam- eða
sníkjulífi með plöntum. Með
rotnun umbreyta þeir lífrænu
efni í ólífrænt, sem plöntur nýta
sér. Líkt og plönturíkið er kall-
að flóra og dýraríkið fána er
svepparíkið kallað funga.
Í heiminum eru skráðar yfir
80.000 tegundir sveppa. Talan
er ónákvæm því að á hverju ári
finnast nýjar tegundir sveppa
og sumar af þessum 80 þús-
und tegundum flokkast í raun
ekki til svepparíkisins heldur
til frumdýra, litvera og flétta.
Á heimasíðu Náttúru-
fræðistofnunar segir að líklegt
þyki að í heiminum séu nálægt
1,5 milljón tegundir sveppa og
því mikið verk fram undan við
að lýsa þeim og skrásetja. Þó
má gera ráð fyrir að flestir stór-
sveppir séu þekktir.
Á Íslandi hafa fundist og
verið skrásettar rúmlega 2.000
tegundir sveppa en þá eru
fléttur ekki taldar með. Flestir
þessara sveppa eru svo smá-
vaxnir að þeir sjást ekki með
berum augum.
Það sem í daglegu tali kall-
ast sveppur er í raun aldin eða
fjölgunarfæri örfínna þráða
sem vaxa í jarðvegi, á trjám eða
öðrum hýslum og kallast ímur.
Af þeim ríflega 2.000
tegundum sveppa sem fundist
hafa á Íslandi eru milli 30 og
40 stórsveppir taldir hæfir til
átu en mis eftirsóknarverðir.
Til stórsveppa teljast sveppir
sem sjást með berum augum.
Stór hluti matsveppa telst til
kólfsveppa t.d. lerkisveppur og
kúalabbi.
Egyptar til forna töldu
sveppi vera plöntur eilífs lífs
og eingöngu faraó og hástéttin
mátti neyta þeirra. Þetta gekk
svo langt að almúginn mátti
ekki einu sinni snerta sveppi
og sérstök stétt sem sá um að
safna þeim.
Víða um heim er löng hefð
fyrir því að tína sveppi og á
sumum stöðum eru haldnar sér-
stakar sveppahátíðir í kringum
uppskeru þeirra. Ólík menn-
ingarsvæði hafa gefið svepp-
um mismunandi eiginleika. Í
Rússlandi og Suður-Ameríku
voru ákveðnir sveppir not-
aðir til að komast í samband
við andaheiminn. Normannar
trúðu því að sveppir væru
frygðarlyf og ykju frjósemi
og gáfu brúðgumum stóra skál
af sveppum til að borða fyrir
brúðkaupsnóttina væru þeir
fáanlegir. Annars staðar var
því trúað að ákveðinn sveppur
veitti stríðsmönnum yfirnátt-
úrulegan styrk samanber ber-
serkjasveppinn.
Sveppir hafa lengi verið
vinsælir til átu í Austur-Evrópu
og í Frakklandi þar sem menn
gengu um með svín í bandi og
notuðu lyktarskyn þeirra til
að þefa uppi trufflur sem eru
sveppir sem vaxa neðanjarð-
ar og þykja frábærir til átu. Í
seinni tíð hafa hundar verið
þjálfaðir sérstaklega til að þefa
þá uppi. /VH
Sveppir
STEKKUR
Gunnar Bender
gunnarbender@gmail.com
HLUNNINDI&VEIÐI
Hreindýraveiðar
ganga víða vel
Mynd / Jón
Mynd / Karl Óskarsson
Veiði í Elliðaám gengur vel
Ytri-Rangá:
Alltaf mikill möguleiki á ævintýrum
Í Ferjukoti í Borgarfirði byggðu
Þorkell heitinn Fjeldsted og eig-
inkona hans, Heba Magnúsdóttir,
stórmerkilegt veiðisafn, sem
margir hafa komið og skoðað.
Enda margir þurft að stoppa í
Ferjukoti til að kaupa laxa eftir
laxa eftir fisklitla veiðitúra.
Stór hluta af safninu hefur verið
fluttur niður á Hvanneyri og verð-
ur vonandi þar til sýnis innan tíðar.
Heimildirnar eru stórmerkilegar um
veiðiskap þarna á Ferjukoti og Hvítá.
Þetta er mikið veiðisafn fyrir veiði-
menn á öllum aldri enda margra ára
saga sem hörkufólk passaði vel upp
á og það má alls ekki tapast með tíð
og tíma.
Ekkert var skemmtilegra en
heyra Þorkel segja veiðisögu og
fræða menn um safnið og heyra það
hljóma út á bakka Hvítár og falla í
dýpsta hylinn. Það var fróðleikur
fyrir lífstíð.
Stór hluti veiðisafnsins komið á Hvanneyri
Mynd / G.Bender