Bændablaðið - 07.09.2017, Blaðsíða 26
26 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
Vilborg Bjarkadóttir skyggndist inn í hugarheim fræsafnara og ræktenda:
Framtíðin býr í fræjunum
– -Viðhorfsbreytinga er þörf um verndun fjölbreytileika plantna
„Þó að fræ sé ein minnsta eining
af lífi, þá inniheldur það ansi
flókinn heim sem einkennist
ekki bara af rómantík heldur líka
hugsjón og átökum á milli hópa
sem varðar framtíð mannskyns,“
segir Vilborg Bjarkadóttir,
meistaranemi í þjóðfræði, sem
rannsakar plöntusöfn, fræbanka
og sjálfstætt starfandi ræktendur
sem rækta gömul yrki.
„Þar sem ég er þjóðfræðingur er
verkefnið út frá menningarlegum
forsendum frekar en líffræðileg-
um. Þannig að ég leitast fyrst og
fremst við að skoða hvers konar
menning er í kringum plöntur og
þá sérlega hvað varðar verndun og
fjölbreytileika plantna á Íslandi.
Það er skemmtilegt að sjá hvað
það eru margar leiðir til að vernda
plöntur. Ég hef sjálf sett þessa
verndun í þrjá flokka og hef greint
þá svona: þurrkuð plöntusöfn eru
einhvers konar fortíð plöntunnar,
lifandi plöntusöfn eins og grasa-
garðar eru plantan hér og nú og svo
fræbankar einhvers konar framtíð
plöntunnar,“ segir Vilborg.
Eftirminnileg ferð
Rannsókn hennar, sem er styrkt
af Nýsköpunarsjóði námsmanna,
byggist að stórum hluta á viðtölum
en Vilborg ræddi við nokkra
ræktendur og garðyrkjufræðinga
sem gerði rannsóknarferlið einkar
eftirminnilegt að hennar sögn.
„Mér fannst e inna
skemmtilegast í sumar þegar
ég hitti garðyrkjufræðinginn
Hafstein Hafliðason því mér
hafði margsinnis verið sagt að
hann væri svona eins og minni
Garðyrkjufélags Íslands. Ég hringdi
í hann og spurði hvort hann vissi
um einhver íslensk yrki sem höfðu
varðveist á milli kynslóða. Hann
sagði mér frá bóndanum Lárusi
Helgasyni á Kálfafelli og að hann
ræktaði Kálfafellsrófuna, sem hafði
verið í fjölskyldunni hans í meira
en hundrað ár.
Mér fannst ég hafa dottið í
lukkupottinn að heyra um þetta.
Hafsteinn var svo vinalegur að
bjóðast til þess að taka á móti
mér á Selfossi þegar ég kæmi
úr strætó og keyra mig svo á
Kirkjubæjarklaustur til að hitta
Lárus, til að taka við hann viðtal
um Kálfafellsrófuna. Ferðin var
eins og í skáldsögu, því mér finnst
eins og það sé ekki á hverjum
degi sem tvær manneskjur fara að
hitta bónda á Kirkjubæjarklaustri
til að ræða um rófu. Það var líka
heppilegt að Hafsteinn, sem ég
var með í átta klukkustundir í bíl,
reyndist bráðskemmtilegur maður
sem nýtir tímann svo vel að hann
greinir plöntur í vegköntum á
meðan hann keyrir.“
Gildi fræbanka
Markmið verkefnisins er margþætt
að sögn Vilborgar. Í fyrsta lagi
leitast hún eftir að fá yfirsýn
yfir það sem hefur verið skráð
og skrifað um plöntusafnanir og
fræbanka á Íslandi. Í öðru lagi
gerir hún samtímagreiningu með
viðtölum. Þá skoðar hún einnig
samband íslenskra stofnana við
aðra grasagarða og fræbanka úti
í heimi.
„Til dæmis geymir Grasa-
garðurinn í Reykjavík mjög fágætar
plöntur sem eru mikilvægar fyrir
heiminn og er í alþjóðlegum
samskiptum við aðra fræbanka.
Því hann, eins og flest plöntusöfn,
er hluti af alþýðlegum stofnunum
sem gefa út árlega frælista til
annarra grasagarða til þess að þeir
geti stundað fræskipti. Jafnvel
þegar það er stríð í löndum er fólk
að skiptast á fræjum og hjálpast
þannig þvert yfir landamæri að
vernda plöntur.
En það eru ekki þó ekki
bara stofnanir sem viðhalda
fjölbreytileika plantna því það er
líka heilmikið um að einstaklingar
tíni fræ og gera það jafnvel undir
formerkjum einhverra félaga,
eins og fræbanki Garðyrkjufélags
Íslands, sem er heilmikið batterí.
Ég fékk að skyggnast inn í
þennan dularfulla, forvitnilega
heim í gegnum fræmeistarann og
líffræðinginn Barböru Stanzeit
í sumar, en hún hefur yfirsjón
með bankanum ásamt sérskipaðri
frænefnd, sem hefur það hlutverk
að taka á móti fræjunum, flokka
þau og deila þeim. Árlega er svo
gefin út frælisti yfir það sem safnað
hefur verið. Þá geta félagsmenn
keypt fræin sem eru á listanum á
kostnaðarverði. Þessi starfsemi
viðheldur meðvitund fólks um
plöntur og ýtir ekki síst undir
fjölbreytileika í einkagörðum
ásamt því auðvitað að tengja saman
félagsmenn,“ segir Vilborg.
Merking fræja býr í sögu þeirra
Hluti af rannsókninni var að ræða
við fólk sem safnar svokölluðum
heirloom fræjum. Heirloom fræ eru
fræ sem ganga á milli kynslóða,
einhvers konar ættargripir í formi
fræja. „Oft er skilningur fólks á
ættargripum að þeir þurfi að vera
í formi dauðra hluta. En það sem
flyst á milli kynslóða, hvort sem
það er leirpottur, fjölskyldusiðir,
orðnotkun innan fjölskyldu, eða
fræ er í raun ættargripur. Þannig
má sjá fræ sem ættargrip, enda er
gjarnan litið á fræ sem tákn fyrir
framtíðina,“ segir Vilborg.
Hún segir fólk, sem safnar
heirloom fræjum, vera mikið
hugsjónafólk sem er drifið áfram
af ástríðu.
„Það er ekki bara að vernda
fræin ein og sér, heldur viðhalda
þau þekkingunni um viðkomandi
fræ í samfélaginu og hjálpa þannig
ákveðnum yrkjum að vera hluti
af menningunni sem við lifum í.
Merking fræja liggur vissulega
ekki bara í fræinu sjálfu, heldur
Guðrún Hulda Pálsdóttir
ghp@bondi.is
Vilborg Bjarkadóttir, meistaranemi í þjóðfræði, hefur í sumar rannsakað plöntusöfn, fræbanka og sjálfstætt starfandi ræktendur sem rækta gömul yrki.
Mynd/ghp
Fræbankar viðhalda fjölbreytileika plantna. Félagsmenn Garðyrkjufélags
Íslands halda uppi stærsta fræbanka landsins. „Þessi starfsemi viðheldur
meðvitund fólks um plöntur og ýtir ekki síst undir fjölbreytileika í einkagörðum
ásamt því auðvitað að tengja saman félagsmenn,“ segir Vilborg. Myndir/VB
Tómas Ponzi í Brennholti breytti
skammaði hann í góðlátlegu gríni
um daginn fyrir að hafa eyðilagt hina
tómatana fyrir mér.“ rófu,“ segir Vilborg sem stóðst ekki mátið og smellti af þeim mynd.
ásamt sérskipaðri frænefnd, sem hefur það hlutverk að taka á móti fræjunum,
Vilborg telur rannsóknina geta vak-
ið athygli á því að fjölbreytileiki
plantna og verndun er stórt mál í
samtímanum.