Bændablaðið - 07.09.2017, Side 28
28 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
Byggðaráð Blönduóss og lækkun afurðaverðs:
Veldur forsendubresti
í rekstri sauðfjárbúa
Byggðaráð Blönduósbæjar hefur
lýst yfir miklum áhyggjum af stöðu
sauðfjárbænda. Skorar ráðið á
ráðherra landbúnaðarmála og
ráðherra byggðamála, sem og
á þingmenn kjördæmisins, að
beita sér fyrir því að málefni
sauðfjárbænda verði leyst með
farsælum hætti.
Í samþykkt byggðaráðs sem
samþykkt var samhljóða á fundi þess
nýverið kemur fram að verði af þeim
lækkunum á verði til bænda sem
boðaðar hafa verið í haust sé ljóst að
um gríðarlegt tekjutap verði að ræða
og í raun valdi þær forsendubresti í
rekstri flestra sauðfjárbúa.
Fleiri sveitarstjórnir á svæðinu,
svo sem í Húnavatnshreppi, og
byggðaráð Húnaþings vestra hafa
lýst yfir sömu áhyggjum vegna stöðu
sauðfjárbænda og hefur verið skorað
á þingmenn kjördæmisins sem og
ráðherra að beita sér fyrir því að mál-
efni þeirra verði leyst með farsælum
hætti. /MÞÞ
Það var þungt hljóð í mörgum bændum sem tóku til máls á fundi í Ýdölum, enda sjá þeir fram á mikla tekjuskerðingu.
Mynd / HKr.
Sauðfjárbændur úr Eyjafirði og Þingeyjarsýslum á fundi í Ýdölum:
Allar bjargir í raun bannaðar
– Verða að taka því verði sem í boði er
Sauðfjárbændur úr Eyjafirði og
Þingeyjarsýslum komu á dögun-
um saman til fundar í Ýdölum í
Aðaldal, en til hans hafði verið
boðað vegna þeirrar alvarlegu
stöðu sem blasir við í sauðfjárrækt
í kjölfar 35% lækkunar á afurða-
verði til bænda, sem sláturleyfis-
hafar hafa boðað. Fulltrúar úr
stjórnum Bændasamtakanna og
Landssambands sauðfjárbænda
voru á staðnum og sögðu m.a. frá
viðræðum sínum við ráðherra
landbúnaðarmála og þeim hug-
myndum sem ræddar hafa verið
til lausnar á vandanum.
Fram kom á fundinum gagnrýni
á ráðherra landbúnaðarmála fyrir að
hafa ekki brugðist fyrr við vandan-
um, en ljóst var strax í mars að það
stefndi í óefni í haust og var ráðherra
látinn vita af því þá. Hugmyndir
ráðherra um að fækka fé um 20%
strax í haust féllu í frekar grýttan
jarðveg og töldu fundarmenn það
útilokað að svo mikil fækkun væri
framkvæmanleg, né heldur að vilji
væri fyrir því hjá bændum að fækka
um 90.000 kindur í einum grænum
í haust. Þeir sem til máls tóku töldu
þó flestir að fækkun á fé yrði að eiga
sér stað og að margir sauðfjárbænd-
ur komi til með að fækka fé nú í
haust, en fækkunin yrði ekki svona
mikil á einu bretti þegar aðkoma
ríkisins væri óljós.
Þungt hljóð enda mikil
tekjuskerðing
Það var þungt hljóð í mörgum bænd-
um sem tóku til máls enda sjá þeir
fram á mikla tekjuskerðingu. Ljóst
væri að byggð í sumum héruðum
landsins væri undir og fáar atvinnu-
greinar þyldu 35% lækkun nú, til
viðbótar við 10% lækkun árið 2016.
Mikil umræða var um það á
fundinum hve miklar birgðir væru
raunverulega til af lambakjöti í upp-
hafi sláturtíðar og töldu margir að
þær væru ofmetnar. Margir lýstu
yfir furðu á því hve erfitt væri að fá
áreiðanlegar tölur um þetta. Margir
lýstu einnig yfir furðu sinni á því að
erfitt væri að koma auga á lamba-
kjöt í mörgum verslunum þessa dag-
ana og væri það furðulegt í ljósi
umræðunnar um að of mikið væri
til af kjöti í landinu nú í upphafi
sláturtíðar.
Tekur mörg ár að hífa verðið upp
á ný
Margir höfðu áhyggjur af því að
þetta verð sem væri í boði fyrir kjöt-
ið í haust væri komið til með að vera
og það tæki mörg ár að hífa það aftur
upp. Vel borgandi markaðir erlendis
væru ekki fyrir hendi, gengi krón-
unnar væri útflutningi óhagstæður
og viðskipti við Rússland væri ekki
möguleg. Innanlandsmarkaður væri
eini markaðurinn sem væri í boði
og hann væri yfirfullur um þessar
mundir. Það eina sem bændur gætu
vonast eftir væri að allur almenning-
ur í landinu færi að borða meira af
lambakjöti til að jafnvægi kæmist
á. Ef bændur fengju ekki raunhæf
verkfæri til að losna við umframkjöt
í útflutning á næstu tveimur árum
væri þetta lága verð komið til með
að vera.
Einn bóndi varpaði því fram að
það væri auðvitað óbúandi við það
að vita ekki afurðaverðið sem greiða
ætti fyrir innlegg næsta árs, fyrr en
rétt áður en sláturtíð hefst. Bændur
þyrftu helst að vita verðið heilu ári
fyrr, svo þeir geti gert ráðstafanir í
samræmi við það. Sauðfjárbændur
væru í þeirri ömurlegu stöðu að geta
ekkert gert. Þeir gætu ekki annað
en tekið því verði sem í boði væri
hverju sinni. Sauðfjárbændum væri
í raun allar bjargir bannaðar.
Vörpuðu fram hugmyndum
Ýmsum hugmyndum til lausnar
á vandamálinu var varpað fram
á fundinum, eins og td. að reyna
að fá lánastofnanir til þess að inn-
heimta ekki vexti af lánum sauð-
fjárbænda tímabundið, eða á meðan
þetta ástand varir. Hugmynd um að
Byggðastofnun komi í lið með sauð-
fjárbændum með yfirtöku á lánum
þeirra og breytingar á skilmálum
í kjölfarið var líka varpað fram.
Hugmynd um að láta ærnar bera
seinna á vorin til að lömbin verði
léttari við slátrun og minnka þar
með heildarkjötmagnið sem slátrað
er að hausti, kom einnig fram.
Þingmaður Norðausturkjördæmis
og fyrrverandi forsætisráðherra,
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
var viðstaddur fundinn og ávarpaði
hann bændur. Sigmundur reyndi að
stappa stálinu í bændur og minnti
á það að þeir hefðu meiri stuðning
almennings heldur en ætla mætti af
umræðunni í sumum fjölmiðlum og
taldi að það ætti eftir að koma í ljós
þegar frá líður. Aðrir þingmenn kjör-
dæmisins voru ekki á fundinum að
því er fram kemur á vefnum 641.is
þar sem sagt er frá fundinum.
/MÞÞ
Húnavatnshreppur:
Vilja kanna möguleika
á sameiningu
Sveitarstjórn Húnavatnshrepps
telur eðlilegast að sveitarfélögin
fjögur í Austur-Húnavatnssýslu
kanni möguleika á sameiningu.
Fjallað var um sameiningarmál
á fundi sveitarstjórnar á dögunum
og segir í samþykkt frá þeim fundi
að samstarf sveitarfélaga sé mikið,
meðal annars í byggðasamlögum
um rekstur stórra málaflokka.
Það samstarf sé með ágætum en
óneitanlega þyngra í vöfum en ef
um eitt sameinað sveitarfélag væri
að ræða.
Eflir getu til að veita þjónustu
„Í sameinuðu sveitarfélagi í Austur-
Húnavatnssýslu byggju um 1.850
íbúar og vegalengdir innan sveitar-
félagsins eru ekki hamlandi. Að mati
sveitarstjórnar Húnavatnshrepps
ætti sameinað sveitarfélag Í Austur-
Húnavatnsýslu að hafa burði til að
veita íbúum sínum góða þjónustu
og hefði nægilegan styrk til að bæta
hag íbúanna til framtíðar,“ segir í
samþykktinni.
/MÞÞ
Grýtubakkahreppur:
Rekstrargrundvöllur sauðfjárbúa
algjörlega brostinn
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps
hefur, líkt og mörg sveitarfélög
önnur, lýst yfir þungum áhyggjum
vegna boðaðra lækkana á verði
til sauðfjárbænda í komandi slát-
urtíð.
Fram kemur í bókun sveitarstjórnar
Grýtubakkahrepps að verði boðaðar
verðlækkanir á afurðaverði til
sauðfjárbænda nú í haust að
veruleika sé rekstrargrundvöllur
sauðfjárbúa í landinu algerlega
brostinn. Nú, annað árið í röð,
standi sauðfjárbændur frammi
fyrir verulegri tekjuskerðingu og á
komandi hausti af þeirri stærðargráðu
að ekkert mun standa eftir af tekjum
búanna til greiðslu á launum, þegar
kostnaður við framleiðsluna hefur
verið greiddur. Laun bænda vegna
búrekstrarins verði því engin.
Hrun í greininni og stórfelld
byggðaröskun
Miklir fjárhagsörðugleikar blasi við,
sérstaklega skuldsettum bændum.
Tekjuskerðing komi augljóslega
harðast niður á þeim sem nýlega hafa
byrjað búskap. Afleiðingarnar verða
hrun í búgreininni og í framhaldi
af því stórfelld byggðaröskun þar
sem sauðfjárrækt er víða undirstaða
byggðar.
„Sauðfjárbúskapur er mikilvæg
atvinnugrein í Grýtubakkahreppi
og hefur boðuð lækkun á verði til
sauðfjárbænda gífurleg áhrif á afkomu
margra heimila í Grýtubakkahreppi,“
segir í bókun sveitarstjórnar sem
skorar á stjórnvöld, forystumenn
bænda, sláturleyfishafa og aðra
hlutaðeigandi að leita allra leiða til
leysa þá grafalvarlegu stöðu sem
uppi er. /MÞÞ
„Við erum mjög óánægð með
þessa ákvörðun Íslandspósts
og mótmælum henni harðlega,
þetta getur ekki gengið svona,“
segir Ísólfur Gylfi Pálmason,
sveitarstjóri á Hvolsvelli.
Pósthúsið hefur verið opið
frá 10.00 til 16.00 en frá og með
1. september var hann styttur
í 11.00 til 15.00. Sveitarstjórn
Rangárþings eystra hefur sent frá
sér harðorða ályktun þar sem nýja
afgreiðslutímanum er mótmælt
harðlega.
„Hvolsvöllur er þjónustukauptún
og mikill uppgangur hefur verið í
sveitarfélaginu á síðustu árum.
Í dreifbýlinu er rekinn öflugur
landbúnaður. Þá er ferðaþjónusta
ört vaxandi atvinnugrein. Mikilvægt
er að öll atvinnustarfsemi hafi
aðgang að sendingum sínum sem
fyrst á morgnana til að starfsemi
þeirra gangi sem skyldi. Þegar hefur
póstþjónustu verið hagrætt langt
umfram þolmörk á landsbyggðinni“,
segir í ályktuninni sem var samþykkt
samhljóða.
Nýr afgreiðslutími speglar
umsvif á svæðinu
Brynjar Smári Rúnarsson, upplýs-
ingafulltrúi Íslandspósts, var spurð-
ur af hverju það væri verið að skerða
afgreiðslutímann á Hvolsvelli.
„Við höfum litið svo á að 4 tíma
opnunartími sé heppilegur á minni
stöðum en að sjálfsögðu verðum
við að meta stöðuna á hverjum stað
fyrir sig og taka ákvörðun út frá hvað
hentar hverju sinni. Engir tveir staðir
eru eins og því mikilvægt að skoða
hvern stað sérstaklega með tilliti til
umsvifa og dreifikerfisins. Ástæðan
fyrir breytingunni á Hvolsvelli er
því fyrst og fremst sú að nýr opn-
unartími speglar umsvif á svæðinu,“
segir Brynjar. Þrír starfsmenn vinna
á Hvolsvelli. /MHH
Skert póstþjónusta
í Rangárþingi
– Styttri afgreiðslutími á Hvolsvelli
Pósthúsið á Hvolsvelli verður framvegis opið frá kl. 11.00 til 15.00 en fyrri
afgreiðslutími var frá 10.00 til 16.00. Mynd / MHH