Bændablaðið - 07.09.2017, Side 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
„Ég geri ráð fyrir að málin skýrist
með haustinu, þá verður af alvöru
lagst yfir það og tekin ákvörðun
um hvernig það verður unnið
áfram,“ segir Stefán Tryggva- og
Sigríðarson, eigandi Hotel Natur
á Þórisstöðum á Svalbarðsströnd.
Hann hlaut fyrr í sumar fyrstu
verðlaun í hugmyndasamkeppni
sem EIMUR, Íslensk verðbréf
og Vaðlaheiðargöng ehf. stóðu
fyrir um nýtingu lághitavatns á
Norðurlandi eystra. Hugmynd
Stefáns gengur út á að byggja
baðhella við Vaðlaheiðargöng.
Í verðlaun voru ein og hálf millj-
ón króna en að auki munu Íslensk
verðbréf bjóða sigurvegara aðstoð
við tillögur um hugsanlegar leiðir
til fjármögnunar, að meta og gera
rekstraráætlun ásamt því að meta
áætlaða fjárfestingarþörf. Sú vinna
hefst að sögn Stefáns í haust og
mun standa yfir í vetur, þannig að
ekki er að vænta ákvarðana um
hvort hugmyndin verði að veruleika
fyrr en næsta vor.
Yrði fjölsóttur ferðamannastaður
Grunnhugmynd Stefáns er að auka
virði þess heita vatns sem kemur
úr Vaðlaheiðargöngunum með því
að búa til fjölsóttan ferðamanna-
stað þar sem heita vatnið og upp-
runi þess er aðalaðdráttaraflið,
baðhellarnir yrðu sprengdir inn í
berg sem gengur í sjó fram í landi
Halllands norðan gangnamunnans
að Vaðlaheiðargöngum.
Við gatnamót að Halllandsnesi
verður samkvæmt hugmyndinni
útbúið veglegt útsýnisplan, þar sem
óheft útsýni er yfir Akureyri, sem
og út og inn Eyjafjörð. Neðan við
planið og vestan þess er gert ráð
fyrir veitingaaðstöðu.
Sturtan í jarðgöngum
„Auk þess sem heita vatnið úr
göngunum yrði nýtt til upphitunar
á veitingahúsinu og sem neysluvatn
er meginhugmyndin samkvæmt
tillögu minni sú að sprengja hella
inn í bergið rétt ofan við yfirborð
sjávar. Hellarnir yrðu nýttir til baða
og undirstrika notkun Íslendinga á
heitu vatni til baða um aldirnar,“
segir Stefán. Aðkoma að hellunum
er um tvær hvelfingar með minni
afhellum. Í aðstöðuhúsi yrði
afgreiðsla og búningaaðstaða en
þá taka við jarðgöng sem yrðu ein
samfelld sturta, þannig yrði sýnileiki
þess að vatnið komi úr jarðgöngum
sem mestur. Inni í meginhvelfingunni
er gert ráð fyrir fossi.
Einstakur tónleikasalur
Stefán segir að gert sé ráð fyrir laug-
um, misheitum og djúpum, og inni
í helli útbúa megi gufubað, nudd-
þjónustu og slökun og fleira í þeim
dúr. „Þar fyrir framan sé ég fyrir mér
yllón með sandfjöru úr svörtum eld-
fjallasandi. Inni í hellinum ætti svo að
vera góður hljómburður þannig að til
verður á svæðinu einstakur tónleika-
staður. Í tillögu minni er svo líka gert
ráð fyrir öðrum minni helli, sá yrði
upplýstur með gróðurhúsalömpum
og ég sé fyrir mér að þar væri hægt
að rækta grænmeti og blóm,“ segir
Stefán.
Ekki spilla upplifun gesta með
örtröð
Stefán nefnir að upplifun gesta megi
ekki spilla með örtröð og mannmergð
þannig að takmarka ætti aðkomu að
hellunum. Hleypa 50 til 100 manns
inn á hverri klukkustund að jafnaði.
Með heilsársopnun og miðað við að
um 500 manns kæmu daglega, vel
á annað hundrað þúsund á ári og
aðgangur næmi 5 þúsund krónum
yrðu tekjur hátt í einn milljarður
króna á ári.
Stefán segir á þessu stigi erfitt að
meta kostnað við framkvæmdina, en
giskar á að hann gæti numið tveimur
til fjórum milljörðum króna. /MÞÞ
Hugmyndasamkeppni um nýtingu lághitavatns á Norðurlandi eystra:
Tillaga um baðhella undir heitinu Svörtu loft sigraði
Stefán Tryggva- og Sigríðarson, eigandi hótelsins Natur á Þórisstöðum á Svalbarðsströnd, hlaut fyrstu verðlaun í
hugmyndasamkeppni sem EIMUR, Íslensk verðbréf og Vaðlaheiðargöng ehf. stóðu fyrir um nýtingu lághitavatns
á Norðurlandi eystra. Hugmynd Stefáns gengur út á að byggja baðhella við Vaðlaheiðargöng. Mynd / MÞÞ
Auðkúlurétt við Svínavatn, A.-Hún. laugardaginn 23. sept. kl. 16.00
Árhólarétt í Unadal, Skag. Upplýsingar liggja ekki fyrir.
Deildardalsrétt í Deildardal, Skag. föstudaginn 29. sept.
Flókadalsrétt, Fljótum, Skag. laugardaginn 7. okt.
Hlíðarrétt við Bólstaðarhlíð, A.-Hún. sunnudaginn 17. sept. kl. 16
Laufskálarétt í Hjaltadal, Skag. laugardaginn 30. sept.
Melgerðismelarétt í Eyjafjarðarsveit laugardaginn 7. okt.
Miðfjarðarrétt í Miðfirði, V. - Hún. Upplýsingar liggja ekki fyrir.
Sauðárkróksrétt, Skag laugardaginn 16. sept.
Selnesrétt á Skaga, Skag. Upplýsingar liggja ekki fyrir.
Silfrastaðarétt í Blönduhlíð, Skag. sunnudaginn 24. sept.
Skarðarétt í Gönguskörðum, Skag. laugardaginn 16. sept.
Skrapatungurétt í A.-Hún. sunnudaginn 17. sept. kl. 11
Staðarrétt í Skagafirði. laugardaginn 16. sept.
Tungurétt í Svarfaðardal, Eyf. laugardaginn 7. okt.
Unadalsrétt í Unadal við Hofsós, Skag. föstudaginn 29. sept.
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún. laugardaginn 23. sept. kl. 9.00
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugardaginn 7. okt. kl. 11.00
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. laugardaginn 30. sept.
Þverárrétt ytri, Eyjafjarðarsveit laugardaginn 7. okt.
Stóðréttir haustið 2017
Mikill áhugi er fyrir stóðréttum
ekki síður en fjárréttum. Hér er
listi yfir stóðréttirnar sem að þessu
sinni eru 19 talsins. Ekki voru þó
fyrirliggjandi upplýsingar um þær
allar þegar blaðið fór í prentun.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem blaðið hefur fengið eru
síðustu stóðréttir haustsins þann
7. október í Víðidalstungurétt og
Flókadalsrétt.
Listi yfir fjárréttir er á blaðsíðum
32 og 33 ásamt korti sem sýnir
staðsetningu réttanna.
Fyrirvari er gerður á að einhverjar
villur kunni að hafa slæðst inn og
verður þá reynt að bæta úr því í
næsta blaði eftir því sem kostur
er. Sömuleiðis eru ábendingar vel
þegnar ef einhverjar réttir hafa orðið
útundan í upptalningu blaðsins. /TB
HROSS&HESTAMENNSKAFramleiðnisjóður
landbúnaðarins auglýsir:
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnes
Sími 430-4300
Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir hér með eftir
um sóknum um styrki til stuðnings við nýsköpun, vöru þróun
kynningar- og markaðsstarf til stuðnings íslenskri sauð fjár-
rækt. Sjá nánar inn á heimasíðu sjóðsins www.fl.is, undir
markaðssjóður/verklagsreglur.
Styrkþegar geta verið einstaklingar, hópar, félög, samtök,
rannsóknarstofnanir, háskólar eða fyrirtæki. Styrkhæf eru þau
verkefni sem talin eru styrkja íslenska sauðfjárrækt og falla
undir það að teljast nýsköpun, vöruþróun, kynningar- eða
markaðsstarf.
Umsókn skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar:
a) Listi yfir þá sem eiga aðild að verkefninu.
b) Yfirlit um tilgang og markmið verkefnis.
c) Tímaáætlun verkefnisins og upplýsingar um helstu
áfanga þess.
d) Fjárhagsáætlun verkefnisins í heild.
e) Upplýsingar um hvernig niðurstöður verkefnisins verða
kynntar eða nýttar.
Umsóknarfrestur er til 1. október n.k.
Reglur um styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á
www.fl.is/markaðssjóður. Aðeins er tekið við umsóknum á
eyðublöðunum sem þar er að finna.
Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
Hvanneyri 311 Borgarnes, merktum: Markaðssjóður.
Nánari upplýsingar veitir Þórhildur Þorsteinsdóttir, framkvæmda-
stjóri Framleiðnisjóðs landbúnaðarins hjá thorhildur@fl.is.