Bændablaðið - 07.09.2017, Síða 36
36 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
Eina barónshöllin sem til er
í Noregi er að finna í bænum
Rosendal í Harðangursfirði,
Baroniet, og er frá árinu 1665.
Það er sérstök tilfinning að ganga
um svæðið í kringum höllina og ekki
síður að njóta þess fallega gróðurs
sem umlykur hana en rósagarðurinn
fyrir framan Baroniet er glæsilegur á
að líta og er ákveðið kennileiti fyrir
staðinn.
Saga staðarins er merkileg en árið
1658 var brúðkaup ríkasta erfingja
Noregs og dansks aðalsmanns, Karen
Mowat og Ludvig Rosenkrantz,
fengu bóndabæinn Hatteberg í
Kvinnhéraði í brúðkaupsgjöf og hér
byggðu þau sína litlu höll sem kölluð
var Rosendal sem var fullkláruð árið
1665. Kristján fimmti, konungur yfir
Danmörku og Noregi, tók til sín bar-
ónshöllina árið 1678 sem upp frá því
var kallað Baroniet. Frá árinu 1745
var Rosendal og þar með höllin í eigu
Rosenkroneættarinnar en árið 1927
fékk háskólinn í Osló það að gjöf. Í
dag er félag innan skólans sem fer
með rekstur staðarins.
Þjóðernisrómantík og rósailmur
Það má segja að staðurinn sé algjört
augnakonfekt og ættu flestir að geta
notið þess að ganga um og skoða
bæði höllina og garðinn. Hægt er
að fá kynnisferð um höllina sem
er varðveitt eins og heimili þeirra
sem bjuggu þar síðast árið 1927.
Þannig eru veggirnir í gamla
barokkherberginu, sem síðar var
nýtt sem bókasafn, klæddir með
einstöku frönsku veggfóðri frá því
um 1660. Í matsalnum er hægt að
sjá eitt af elsta konunglega danska
strámynsturpostulíni sem til er í
Noregi. Landslagsmálverkum og
þjóðernisrómantíkinni eru gerð
góð skil á veggjunum eftir þekkta
norska málara og einnig er þar að
finna verk eftir Edvard Munch frá
því um 1880.
300 ára gamall garður
Garðurinn við höllina er
ævintýralegur, 300 ára gamall í
endurreisnarstíl, þar sem rósir í
öllum litum njóta sín í garðinum
sem er byggður upp eins og
völundarhús. Árið 1850 var hvítur
múr sem hafði umlukið garðinn
rifinn niður til að leyfa rósunum
að njóta sín betur.
Það er alveg hægt að gleyma
sér við að ganga í rólegheitum um
garðinn, hlusta á fossa- og árnið
renna hjá og njóta augnabliksins.
Þó að Baroniet sé minnsta höll í
Skandinavíu þá er umhverfið í kring
vissulega stórbrotið og fallegt og
ætti enginn fagurkeri að láta það
framhjá sér fara.
/ehg
Ævintýragarðurinn við barónshöllina
UTAN ÚR HEIMI
Rósir í öllum regnbogans litum prýða
garðinn við barónshöllina.
Inngangurinn að barónshöllinni, sem
talað um gróðurinn sem víða auka