Bændablaðið - 07.09.2017, Síða 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
Brynjar Bragason og Lúðvík Ögmundsson við vígslu Vinavirkjunar á Hesteyri 6. ágúst. Mynd / EFLA
Vinavirkjun tekin í gagnið á Hesteyri
Smávirkjun var vígð á Hesteyri
í Hesteyrarfirði í Jökulfjörðum
þann 6. ágúst.
Það voru eigendur
Læknishússins og Skólans á
Hesteyri á Hornströndum sem
ákváðu að virkja vatnsaflið á
staðnum og tóku nokkrir vinir sig
saman og aðstoðuðu við að virkja
bæjarlækinn á Hesteyri. Virkjunin
var svo vígð í byrjun ágúst, en til
þessa hafði ekkert rafmagn verið
á svæðinu.
Smávirkjunin framleiðir
rafmagn bæði til húshitunar og
vinnurafmagns, aðallega fyrir
húsin, Læknishúsið og Skólann.
Virkjunin er skráð 15 kW en
getur framleitt allt að 20 kW þar
sem rafallinn er 25 kVA. Fallhæð
virkjunarinnar er 62,5 m og
aðfallspípan 180 mm.
Þetta verkefni var sannkallað
vinaverk, enda fékk virkjunin nafnið
Vinavirkjun. Lúðvík Ögmundsson,
Brynjar Bragason og Árni Sveinn
Sigurðsson, sem eru starfsmenn
EFLU, voru hluti af vinahópnum
sem komu að gerð virkjunarinnar.
/HKr.
Leirbukkurinn – Nyalan er uppsett í heilu lagi, stórt karldýr og einstaklega fallega uppsettur og vekur hann mikla
eftirtekt. Mynd / Páll Reynisson.
Heimilisdýrum hefur fjölgað
í Veiðisafninu á Stokkseyri
Heimilisdýrum í Veiðisafninu -
Stokkseyri hefur fjölgað, um er
að ræða sendingu uppstoppaðra
dýra frá Suður-Afríku, alls átta
talsins.
Leirbukkur – Nyala antilópa í
heilu lagi ásamt Impala antilópum,
vörtusvín, skrúfhyrna – Kudu og gnýr
– Blue Wildebeest ásamt framparti af
zebrahesti sem er frístandandi á gólfi
hafa nú verið uppsett í sýningarsölum
Veiðisafnsins.
„Margir safngestir Veiðisafnsins
hafa beðið eftir þessari sendingu því
von hefur verið á þessum dýrum
um nokkurn tíma og er það okkur
sönn ánægja að tilkynna að dýrin
eru komin í hús. Einnig hafa verið
settar inn 300 nýjar ljósmyndir í
myndamöppur safnsins sem hafa
notið mikilla vinsælda gesta. Hlutfall
þeirra gesta sem koma hér aftur og
aftur á Veiðisafnið er mjög hátt,
kom það í ljós strax á fyrstu árum
safnsins og er virkilega gaman að
sjá fjölskyldur koma hér aftur og
aftur, oftar en ekki með stækkandi
barnahóp,“ segir Páll Reynisson,
stofnandi og eigandi safnsins.
„Miklar breytingar hafa átt sér
stað frá opnun safnsins 2004. Bætt
hefur verið í safnkostinn alla tíð
og má þar nefna uppstoppuð dýr,
skotvopn og veiðitengdir munir svo
eitthvað sé nefnt og ekki má gleyma
íslensku veiðimönnunum sem hafa
sérstakan sess hér, bæði persónulegir
munir, ljósmyndir og byssur frá
landsþekktum veiðimönnum.
Það var reynt, í annað sinn, að
veiða hýenu í síðustu veiðiferð en
gekk ekki, það verður reynt aftur
og einnig má nefna það að yngsta
kynslóðin spyr mikið um flóðhest
sem einnig stendur til að reyna að ná
í. Börn eru vel meðvituð í dag um
dýraríkið og þau hafa gaman af því
að skoða dýrin hér í Veiðisafninu í
návígi, sem margir lýsa sem einstakri
upplifun.“
Veiðisafnið á Stokkseyri var
opnað 8. maí 2004
„Veiðisafnið er einstakt á landsvísu
en hvergi á Íslandi er hægt að sjá
jafn fjölbreytt úrval uppstoppaðra
veiðidýra, skotvopna og veiðitengdra
muna en hér ásamt því að fræðast
um veiðidýr, skotvopn, veiðar og
náttúruvernd.
„Ljón og zebrahestar, gíraffi,
hreindýr, apar, selir, bjarndýr og
sauðnaut eru hér ásamt fjölda
annarra dýra. Uppistaða safnsins
eru þó veiðitengdir munir,
skotvopn og uppstoppuð veiðidýr.
Jafnframt eru hér til sýnis munir
frá Náttúrufræðistofnun Íslands
sem Veiðisafnið hefur til sýningar
samkvæmt sérstökum samningi,“
segir Páll.
Fágætar og frægar byssur
„Hér eru til sýnis byssur frá
Veiðisafninu og skotvopn úr
einkasöfnum m.a. annars frá
Sverri Scheving Thorsteinssyni,
Sigurði Ásgeirssyni, Einari frá
Þverá, Sigurfinni Jónssyni, Sveini
Einarssyni, fv.veiðistjóra, Sigmari
B. Haukssyni og fjölmörgum öðrum
veiðimönnum að ógleymdum Drífu-
haglabyssunum frá Jóni Björnssyni
heitnum, byssusmið frá Dalvík.“
Á heimasíðu safnsins, www.
veidisafnid.is, má einnig finna
upplýsingar um Drífuvinafélagið
sem stofnað var 12. mars 2005.
„Einnig er hér að finna
skotfæraverkstæði þar sem sýnd eru
tæki til endurhleðslu skotfæra.
Sérstaða safnsins er meðal annars
það úrval sýningargripa sem eru á
fastasýningu safnsins. Hvergi á
Íslandi er hægt að sjá annað eins
úrval af innlendum og erlendum
veiðidýrum uppstoppuðum ásamt
skotvopnum og veiðitengdum
munum,“ segir Páll Reynisson.
/HKr./PR.
Hverfing / Shapeshifting er
samsýning fjórtán listamanna,
sjö íslenskra og sjö bandarískra,
sem opnuð var í Verksmiðjunni á
Hjalteyri við Eyjafjörð 3. ágúst.
Verk listamannanna á
sýningunni eru flest unnin
sérstaklega inn í hið hráa og
spennandi rými verksmiðjunnar.
Sýningin hefur verið framlengd
til 10. september.
Myndlistarsýning:
„Nr. 1 Umhverfing á Sauðárkróki”
Þann 1. júlí sl. var opnuð
myndlistar sýningin Nr. 1
Umhverfing á Sauðárkróki.
Sýningarhúsnæðið er annars
vegar Safnahúsið og hins vegar
Heilbrigðisstofnun Norðurlands.
Nafn sýningarinnar, Nr. 1
Umhverfing, vísar til þess að fleiri
sýningar verði settar upp með sama
móti víða um land á næstu árum í
samstarfi við heimamenn.
Hugmyndasmiðir og skipu-
leggjendur verkefnisins eru
myndlistarmennirnir Anna Eyjólfs,
sem er jafnframt sýningarstjóri,
Ragnhildur Stefánsdóttir, Rúrí
og Þórdís Alda Sigurðardóttir.
Þessir myndlistarmenn mynda
kjarna sýninganna á hverjum
stað. Hugmyndin er að setja upp
myndlistarsýningar á stöðum og í
húsnæði þar sem ekki er hefð fyrir
nútímamyndlistarsýningum og þar
sem ekki fyrirfinnst hefðbundið
sýningarhúsnæði fyrir myndlist.
Tilgangurinn er að færa myndlistina
inn í óhefðbundið rými og skapa
umræðu um tilgang lífs og lista.
Leitað var eftir samstarfi við
myndlistarmenn sem eiga rætur
að rekja í Skagafjörðinn, og taka
eftirfarandi myndlistarmenn þátt í
sýningunni:
Anna María Sigurjónsdóttir,
Auður Aðalsteinsdóttir, Finna
Birna Steinsson, Guðbrandur
Ægir Ásbjörnsson, Jóhannes
Atli Hinriksson, Kristín Reynis-
dóttir, Ragnheiður Ragnarsdóttir,
Sólveig Baldursdóttir og Valgerður
Bergsdóttir.
Sýningarskrá hefur verið gefin
út í tilefni sýningarinnar og fæst hún
í bókasafninu. Höfundar greina eru
Margrét Elísabet Ólafsdóttir, list-
og fagurfræðingur og Jón Ormar
Ormsson. Hönnuður er Margrét
Weisshappel.
Sýningin mun standa til 10.
september sem gefur möguleika á
samstarfi við skólana á svæðinu, þar
sem nemendur geta fengið leiðsögn
um sýninguna og átt samtal við
myndlistarmennina.
Verk eftir Jóhannes Atla Hinriksson á efri hæð Safnahússins.
Verk eftir Auði Aðalsteinsdóttur í
Safnahúsinu.
Sýningin Hverfing í Verksmiðjunni
á Hjalteyri framlengd
Verkið Tsunami eftir Mary Ellen
Croteau.
Varahlutir í flestar tegundir dráttarvéla
New Holland - Fiat - Ford - Case - Steyr - Zetor - Fendt
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Eigum fyrirliggjandi síur í flestar gerðir þessara véla
og mikið úrval varahluta. Einnig sérpantanir.