Bændablaðið - 07.09.2017, Side 45
45Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
Japanskir plöntufiktarar og
áhugamenn um jarðarber hafa fram-
ræktað ýmis afbrigði hvítra jarðar-
berja og eitt þeirra, sem kallast hvíti
gimsteinninn, er selt sem lúxusvara
og rándýrt.
Saga og nytjar
Jarðarber njóta gríðarlegra vinsælda
um allan heim og hafa kannanir sýnt
að við bragðprófanir velja börn
jarðarberjabragð sem besta bragð-
ið. Jarðarber eru mest borðuð fersk
en einnig úr dós. Þau eru pressuð
í safa, notuð í bakstur, í ís, sósur,
súkkulaði, sultur og sem skraut í
hanastélsdrykki. Hægt er að fá ilm-
vatn, svitalyktareyði og sjampó með
jarðarberjaangan og hvaða karlmað-
ur man ekki eftir fyrsta kossinum
þar sem varir konunnar glönsuðu
og brögðuðust af jarðarberjaglossi.
Garðajarðarber eins og við þekkj-
um þau í dag voru fyrst ræktuð í
Frakklandi. Franski kortagerðar-
og ræktunarmaðurinn Amédée-
François Frézier flutti með sér
jarðarberjaplöntur af tegundinni
F. chiloensis frá Síle árið 1714.
Sjóleiðin frá Síle til Marseille tók
sex mánuði og lifðu fimm plöntur
ferðina af.
Rúmum þremur áratugum síðar,
um 1750, var þeim frjóvgað saman
við F. virginiana sem hafði borist
til Frakklands frá Norður-Ameríku
1624. Úr varð ræktunartegund sem
kallast F. × ananassa og eru vin-
sælustu og mest ræktuðu jarðarber
í dag.
Ræktunarafbrigði og yrki F.
× ananassa hlaupa á þúsundum
og liggur mismunur þeirra í
ólíkum blómgunartíma og þroska
berjanna, þoli gegn sjúkdómum
og meindýrum, frostþoli og
stærð, lögunar, þéttleika og bragði
berjanna.
Fyrir tíma F. × ananassa var
villtum jarðarberjum safnað til átu. Í
Evrópu var algengasta jarðarberið F.
vesca sem stundum er kallað skógar-
jarðarber og berið einu sætindin sem
fátækir gátu leyft sér.
Ómögulegt er að vita fyrir víst
hvenær menn neyttu fyrst jarðar-
berja en fræ þeirra hafa fundist við
rannsóknir á mannvistarleifum frá
nýstein- og járnöld. Ekki eru til
heimildir um ræktun jarðarberja í
Evrópu fyrr en á fjórtándu öld.
Rómversku sagnaritararnir Pliny
og Ovid minnast á jarðarber í ritum
sínum en segja ekkert um ræktun
þeirra. Virgil varar börn við að tíma
jarðarber í einu riti vegna hættunnar
á að snákar leynist í undirgróðrinum.
Á tólftu öld sagði Hildegard von
Bingen að jarðarber væru óhæf til
neyslu vegna þess að snákar, froskar,
sniglar og ormar skriðu innan um
þau.
Heiður og vinsældir jarðarberja
jukust á fjórtándu öld og fyrstu
heimildir um stórtæka ræktun þeirra
er frá Frakklandi árið 1368 þegar
Karl V lét gróðursetja 1200 villt-
ar jarðarberjaplöntur í garðinum
við Louvre. Nokkrum árum síðar
fylgdu hertoginn og hertogaynjan í
Burgundy í kjölfarið og létu planta
út nokkur þúsund jarðarberjaplönt-
um á jarðareign sinni í Dijon-héraði.
Á fimmtándu öld notuðu munkar
í Evrópu lit sem unninn var úr villt-
um jarðarberjum til að lýsa handrit
og í flæmskri og þýskri myndlist frá
fimmtándu til sautjándu aldar voru
jarðarber vinsælt myndefni.
Fljótlega eftir að Kristófer
Kólumbus og kónar hans römbuðu
á Ameríku 1492 kom í ljós að frum-
byggjar Nýja heimsins ræktuðu
bæði stærri og bragðbetri jarðarber
en gert var í Gamla heiminum. Þrátt
fyrir það dróst fram á miðja átjándu
öld að flytja jarðarberjaplöntur frá
Ameríku til Evrópu til að kynbæta
evrópsk skógarjarðarber með.
Í Suðurríkjum Bandaríkjanna, þar
sem mikið er ræktað af jarðarberjum,
byggir uppskeran að stórum hluta
á farandverkafólki og ólöglegum
innflytjendum frá Mexíkó. Laun
þeirra sem tína berin eru mjög lág
og oft undir lágmarkslaunum og
aðstæður fólksins bágbornar.
Þar sem uppskera byggir að
stórum hluta á ódýru vinnuafli
kann verð á jarðarberjum að hækka
verulega á næstu árum verði Trump
Bandaríkjaforseta að áformum
sínum um að reisa múr á landa-
mærum Bandaríkjanna og Mexíkó
og stöðva straum fólks frá Mið-
Ameríku til Bandaríkjanna.
Strawberry Fields Forever
– eitrið eins og dalalæða
Gríðarlegt magn af skordýra-, ill-
gresis- og sveppaeitri og annars
konar efnum er notað við stórrækt-
un á jarðarberjum. Forstöðumenn
gagnfræðaskóla eins í Kaliforníu
hafa miklar áhyggjur af því að
jarðarberjaræktendur sem eru með
akra, sem huldir eru með plasti,
allt í kringum skólann séu að eitra
fyrir nemendum og kennurum með
gengdarlausri notkun á skordýra-,
illgresis- og sveppaeitri.
Skólinn er í hluta sýslunnar þar
sem meirihluti íbúa er af spænsk-
um og mexíkóskum uppruna og
er skólinn og skólalóðin hrein-
lega umkringd jarðarberjaökrum.
Mörgum þætti slíkt eflaust eftir-
sóknarvert en sá hængur er á að
mikið magn af skordýra- og illgres-
islyfjum er notað við ræktunina og
úðast yfir skólann. Þegar mest er
liggur eitrið eins og dalalæða yfir
skólalóðinni og lyktin af því alltum-
lykjandi.
Jarðarberjaræktun í sýslunni er
stórtæk og þar eru framleidd um
hálf milljón tonna af þeim á ári og
mörg efni sem úðað er á þau með
þeim hættulegustu sem notuð eru í
landbúnaði og geta meðal annars
valdið öndunarörðugleikum og
skaða á fóstrum.
Berin frá Driscoll
Driscoll Associates er einn stærsti
framleiðandi og söluaðili jarðarberja
í heiminum og það fyrirtæki sem
mest er flutt inn af jarðarberjum frá
til Íslands. Fyrirtækið er sagt borga
yfir lágmarkslaunum fyrir tínsluna
en hvað varðar notkun á eiturefnum
við ræktunina er það ekki eftirbátur
annarra fyrirtækja.
Þjóðtrú og lækningar
Jarðarber eru tákn ástargyðjunnar
Venusar. Sagt er að ef samvax-
in jarðarber eru tekin í tvennt og
annar helmingurinn gefinn aðila af
hinu kyninu muni sá eða sú verða
ástfanginn af gefandanum og gef-
andinn af þiggjandanum.
Rómverjar töldu berin góð til
ýmiss konar lækninga og meðal
annars draga úr þunglyndi, nýrna-
steinum, yfirliði, þembu, hita,
hálsbólgu, þvagsýrugikt og ýmsum
blóðsjúkdómum.
Myndir af jarðarberjum voru
meitlaðar á steinsúlur í kirkjum sem
tákn um fullkomleika og réttlæti.
Sagan segir að Kleópatra
drottning í Egyptalandi hafi baðað
sig upp úr geitamjólk. Slíkt bliknar
þó í samanburði við böð maddömu
Tallien við hirð Napóleons keisara
sem baðaði sig reglulega í safa af
ferskum jarðarberjum. Slíkt hlýtur
að hafa krafist talsverðrar vinnu á
sínum tíma en kosturinn er að berin
hljóta að hafa staðist allar kröfur um
að vera lífræn.
Í Bæjaralandi er til siðs að hengja
körfur með jarðarberjum á horn
nautgripa sem gjöf til álfanna. Í
staðinn er sagt að álfarnir auki nyt
og hraustleika kúnna.
Jarðarber á Íslandi
Villt jarðarber finnast allvíða á
Íslandi og er kjörlendi þeirra skógar
og brekkur á móti suðri. Þau eru
minni en búðajarðarber og þrosk-
ast seint en eru einstaklega góð á
bragðið.
Í Grasnytjum síra Björns
Halldórssonar frá Sauðlauksdal, frá
1781, segir um villt íslensk jarðarber
sem Björn kallar jarðarberjagras:
„Bæði berin og rótin eru nokkuð
samandragandi, bæta hlandstemmu,
flýta fæðingu kvenna, tempra
blóðhita. Jurtin græðir og hreinsar
sár þegar hún er við þau lögð.
Rótin stemmir blóðnasir, jurtin í
munni tuggin og berin segja menn
hreinsi og verji við eitruðu lofti. Hrá
berin, með sykri, mjólk eða víni,
þykja sælgæti og þó halda menn
þau hollari með sykri og víni en
með feitri mjólk. Þessi ber hreinsa
hraðberg af tönnum og skaða þær
þó ekki. Þau eru góð lækning við
liðaveiki og fótaveiki og skal þá eta
mikið af þeim. Hr. von Linné segist
hafa etið af þeim fullt skerborð um
sinn og við það batnaði honum sín
fótaveiki. Líka eru þessi ber þeim
góð sem haldnir eru af lungnasótt.“
Schierbeck, landlæknir og for-
maður Hins íslenska garðyrkju-
félags, birti skýrslu um nokkrar
tilraunir til jurtaræktunar á Íslandi
í Tímariti hins íslenska bókmennta-
félags ári 1886 þar sem hann segir
meðal annars: „Jeg er enn á því, að
rækta megi jarðarber hjer á íslandi
í reit með gluggum yfir bæði vetur
og vor, enda þótt jeg hafi verið mjög
óheppinn hingað til með tilraunir
mínar að því er þetta snertir. Vorið
1884 sendi Möllgaard garðjurtasali
mjer ágætar tegundir af jurt þessari;
en af því að rúm vantaði fyrir þær
í reit, voru þær gróðursettar á ber-
svæði og uxu þær þar mjög vel,
blómstruðu, og flækjur uxu út frá
þeim, en engin ber komu á þær.
Ætlun mín var sú, að flytja þær inn í
reit um haustið, en það var því miður
eigi gjört, af því að tími vannst eigi
til þess, og næsta vor voru þær allar
dauðar, nema ein. Haustið 1885
fjekk jeg 200 afbragðsgóðar jarð-
berjajurtir frá Rothe garðyrkjumanni
við Rosenborgarhöll; en þar eð þær
komu hingað með októbermánað-
arferðinni, gátu þær eigi náð að festa
nægar rætur fyrir veturinn, með
því að þá tók að frjósa fám dögum
seinna. Öll aðhlúning með glugg-
um og yfirbreiðslu um veturinn var
þess vegna ónóg og engin einasta
af jurtum þessum lifði til vorsins.
Samt sem áður fýsir mig að gjöra
nýjar tilraunir í þessu efni.“
Talsvert er um að fólk rækti
jarðarber í heimagörðum en
helstu framleiðendur er Silfurtún,
Jarðarberjaland, Sólbyrgi, Kvistar
og Dalsgarður.
Ræktun heima
Jarðarber þrífast best á sólríkum
stað og í næringarríkum jarðvegi
með sýrustig milli 6 og 6,5. Til
þess að tryggja góða uppskeru er
nauðsynlegt að endurnýja plönturn-
ar á fjögurra til sex ára fresti.
Einnig er gott að skipta um
ræktunarstað þegar plönturnar eru
endurnýjaðar til að koma í veg fyrir
jarðvegsþreytu. Gott er að rækta
jarðarber í hengipottum en í beði er
æskilegt bil á milli plantna 30 til 40
sentímetrar. Ranabjöllur og sniglar
eru sólgnir í jarðarber og geta gert
mikinn skaða.
Yrkin 'Zephyr’, 'Korona’,
’Glima’, ’Rita’ og ’Senga Sengana’
hafa öll reynst vel hér á landi.
Ber jarðarberjaplantna eru ekki ber skv. skilgreiningu grasafræðinnar heldur
samaldin sem myndast í blómum með mörgum frævum og mynda mörg fræ.
Uppskera á jarðarberjum í Suðurríkjum Bandaríkjanna byggir að stórum
Gríðarlegt magn af skordýra-. illgresis- og sveppaeitri og annars konar
efnum er notað við stórræktun á jarðarberjum.
Stjórnendur gagnfræðaskóla eins í Kaliforníu hafa áhyggjur af því að jarðarberjarækt, sem hulin er með plasti, allt
í kringum skólann sé að eitra fyrir nemendum og kennurum.