Bændablaðið - 07.09.2017, Qupperneq 50
50 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
Í sumar fóru 24 útskriftarnemendur
frá búfræðibraut Landbúnaðar-
háskólans í útskriftarferð til
Þýskalands, Lúxemborgar,
Belgíu og Hollands. Ferðin lá
um höfuðborgirnar í síðasttöldu
þremur löndunum, en hófst
í ármótaborginni Koblenz í
Þýskalandi – þar sem árnar Rín
og Mósel falla saman.
Þema ferðarinnar var, auk þess
að heimsækja höfuðborgirnar þrjár,
að kynna sér landbúnað á hinum
heimsóttu svæðum og var m.a. farið
á Libramont landbúnaðarsýninguna,
en frá henni var einmitt greint
lauslega í síðasta blaði. Í ferðinni
var farið í fjölbreyttar faglegar
heimsóknir bæði til bænda og
fyrirtækja í landbúnaði og verður
hér gerð stuttlega grein fyrir einni
þeirra, til mjólkurvinnslustöðvar
Arla í Pronsfeld í Þýskalandi.
Mikilvæg staðsetning Pronsfeld
Pronsfeld er lítið 1.000 manna
þéttbýli í vesturhluta Þýskalands
og er Pronsfeld í lýðveldinu
Rhineland-Palatinate, sem er eitt
af 16 lýðveldum sem standa að
sambandslýðveldinu Þýskalandi.
Pronsfeld, sem stendur í rúmlega
300 metra hæð yfir sjávarmáli, er
nánast á landamærum Þýskalands,
Lúxemborgar og Belgíu og þaðan er
einnig afar stutt yfir til Frakklands.
Vegna þessarar afar góðu legu
Pronsfeld ákvað framleiðenda
samvinnufélagið MUH að byggja
upp vinnslustöð þarna og var það
gert árið 1967.
MUH, sem var samvinnufélag
kúabænda í Þýskalandi, Lúxemborg
og Belgíu, var afar framsýnt félag
og var strax horft til vinnslu
á geymsluþolinni mjólk og
mjólkurvörum og varð MUH fljótt
stærsta félagið á sínu sviði í Evrópu.
Árið 2011 voru félagsmenn MUH
2.400 og nam innvigtunin í Pronsfeld
á þeim tíma 1,3 milljörðum kílóa.
Þrátt fyrir sterka stöðu á sviði G-vöru
framleiðslu var rekstur MUH erfiður
árin eftir hrun og því ákvað stjórn
félagsins að leita til annarra og stærri
afurðafélaga með samruna í huga.
Úr varð að félagið rann inn í Arla
árið 2012, sem þá var samvinnufélag
kúabænda í Danmörku, Svíþjóð,
Þýskalandi, Hollandi og Englandi.
Eftir sameininguna voru
kúabændurnir sem stóðu að Arla
orðnir nærri 14 þúsund og innvigtun
mjólkur á þessum tíma var þá um
14 milljarðar kílóa hjá félaginu.
Síðan hefur félagið haft hægt um
sig á markaðnum og hefur eigendum
fækkað jafnt og þétt eftir því sem
bú hætta eða bændur draga sig út úr
rekstri t.d. vegna aldurs.
Í dag eru eigendur félagsins um
12.500, starfsmenn þess um 19
þúsund og eru mjólkurvörur Arla
seldar til fleiri en 100 landa.
Næststærsta afurðastöð Evrópu
Stjórn Arla ákvað fljótt að
nýta heppilega staðsetningu
afurðastöðvarinnar í Pronsfeld
og var bæði ákveðið að byggja
upp enn frekari afurðavinnslu í
stöðinni auk þess að nýta hana sem
dreifingarmiðstöð fyrir hluta af
vörum félagsins.
Hjá félaginu í Pronsfeld starfa
um 1 þúsund manns og er vinnslan
keyrð allan sólarhringinn. Innvigtun
mjólkur er í dag sú næst mesta á
einum stað í Evrópu eða um 1,6-1,7
milljarðar kílóa á ári. Mjólkin er sótt
til rúmlega 2 þúsund kúabúa í um
250 kílómetra radíus frá Pronsfeld
og kemur mjólkin frá löndunum
fjórum sem áður hafa verið nefnd.
Þess má reyndar geta að frönsku
kúabændurnir sem leggja inn
MUH – samvinnufélag kúabænda í Þýskalandi, Lúxemborg og Belgíu:
Ein stærsta afurðastöð Evrópu
Nortura í Noregi:
Nýtir kjöt af varphænum
í hakk til manneldis
Nortura í Noregi hefur
gert samning við þarlent
fyrirtæki, Vingulmark, um
að vinna saman að lífrænni
eggja framleiðslu og að nýta
hænurnar í lok tímabilsins
til manneldis sem áður var
fargað sem úrgangi.
Þetta er nýnæmi í Noregi og
kemur í kjölfar neytendaþáttar
hjá norska ríkis sjónvarpinu sem
sýndi að Svíar nýta hænur til
manneldis í lok varptímans og
úr þeim er meðal annars gert
hænsnahakk og -bollur.
Vingulmark selur árlega um
180 tonn af lífrænum eggjum til
verslana og í stóreldhús. Eggin koma
frá tveimur sveitabæjum í Østfold-
fylkinu sem hafa hingað til látið slátra
hænunum með gasaðferð sem síðan
eru flokkaðar sem úrgangur og nýttar
í fóðurgerð.
Hænsnakjöt er dýrindisgott og
hægt að nýta í marga góða matrétti.
Með samvinnunni vill Nortura bæta
ímynd sína með því að huga enn frekar
að sjálfbærni og umhverfisstefnu
til að stemma stigu við matarsóun.
Nortura mun sjá um að pakka bæði
hænsnakjötinu og eggjunum í
neytendapakkningar en í verslunum
verður varan merkt sem lífræn frá
Vingulmark. /ehg - Bondebladet
UTAN ÚR HEIMI Á FAGLEGUM NÓTUM
Upplýsingar veittar í síma 823-3340 og í netfangið jonina.
bjorg.gisladottir@gmail.com. Myndir sendar í tölvupósti.
Pronsfeld er lítið 1.000 manna þéttbýli í vesturhluta Þýskalands og er Pronsfeld í lýðveldinu Rhineland-Palatinate,
Mynd / HKr.