Bændablaðið - 07.09.2017, Page 53
53Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 2017
Í síðasta Bændablaði var sagt frá
því að gróffóður væri grundvöllur
búvöruframleiðslu af nautgrip-
um og sauðfé hér á landi. Þar var
rætt um fenagreiningarþjónustu
og bent á ráðgjafa sem því sinna.
Þar féll hins vegar niður smá
klausa um fleiri leiðir til að óska
eftir heysýnatöku og mælingum
og biðst blaðið velvirðingar á því.
Eins og á liðnu ári er ástæða til
að hvetja sauðfjárbændur til að láta
efnagreina sín hey. Markviss fóðrun
búfjár byggist á upplýsingum um
efnainnihald fóðursins sem gefið er.
Hvert geta bændur snúið sér?
Við hvetjum alla bændur; – kúa-
bændur, sauðfjárbændur, hrossa-
bændur – til þess að kynna sér
þessa mikilvægu þjónustu og nýta
sér hana. Þær upplýsingar sem fást
gegnum fóðurefnagreiningar nýt-
ast ekki eingöngu varðandi fóðrun
heldur ekki síður við ákvörðun á
áburðargjöf.
Þeir sem hafa áhuga á því að
taka þátt í fóðuráætlanagerð fyrir
mjólkurkýr með NorFor kerfinu, -
eða fóðurráðgjöf / fóðuráætlanagerð
fyrir sauðfé og jafnframt nýta sér
efnagreiningarþjónustu samkvæmt
samningi RML og Eurofins / BLGG,
vinsamlega hafi samband við ein-
hvern af eftirtöldum ráðgjöfum
RML.
Baldur Örn Samúelsson, sími
516-5020. Vesturland E-póstur
baldur@rml.is
Guðfinna L. Hávarðardóttir,
sími 516-5067. Norðurland vestra
E-postur glh@rml.is
Harpa Birgisdóttir, sími 516-
5048. Norðurland vestra E-póstur:
harpa@rml.is
Eiríkur Loftsson, sími 516-5012
Skagafjörður. E-póstur: el@rml.is
Sigurlína E. Magnúsdóttir, sími
516-5046 Skagafjörður. E-póstur
sigurlina@rml.is
Berglind Ósk Óðinsdóttir, sími
516-5009 Norðurland eystra.
E-póstur boo@rml.is
Elín Nolsöe Grethardsdottir,
sími 516-5066 Norðurland eystra.
E-póstur elin@rml.is
Steinunn A. Halldórsdóttir,
sími 516-5045 Norðurland eystra.
E-póstur sah@rml.is
Anna Lóa Sveinsdóttir, sími 516-
5006 Austurland E-póstur als@rml.
is
Jóna Þórunn Ragnarsdóttir, sími
516-5029 Suðurland. E-póstur
jona@rml.is
Hjalti Sigurðsson, sími 516-5072
Surðurland. E-póstur hjalti@rml.is
Gunnar Guðmundsson, sími
516-5022 Vesturland / Vestfirðir
E-póstur gg@rml.is
Einnig er hægt að hafa sam-
band við skiptiborð á starfsstöðv-
um RML (sími 516 5000) til að
óska eftir heysýnatöku eða til að
óska eftir fóðurráðgjöf / fóður-
áætlanagerð. Nú þegar er hægt að
panta heysýnatöku og í framhaldinu
fóðurráðgjöf / fóðuráætlanagerð
á heimasíðu RML www.rml.is.
Ráðunautar RML stefna að því að
hefja sýnatöku hjá bændum í ágúst.
Efnagreiningar ehf. á
Hvanneyri mun einnig sinna
efnagreiningaþjónustu fyrir
bændur. RML liðsinnir bændum
með sýnatöku og túlkun niðurstaðna
þeirra, hvar svo sem þeir kjósa að
láta efnagreina sitt fóður.
Gunnar Guðmundsson, RML
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
Meira af fóðurefnagreiningum
Athygli er vakin á því að í ramma-
samningi um almenn starfsskilyrði
landbúnaðarins eru ákvæði um
jarðræktarstyrki og landgreiðslur
sem hafa ekki áður verið til staðar
í samningum milli ríkis og bænda.
Forsendan fyrir því að hljóta
slíka styrki er meðal annars skil á
skýrslu haldi í jarðrækt í forritinu
Jörð.is.
Til ráðstöfunar er ákveðið
fjármagn sem skal úthluta til
jarðræktar, þ.e. nýræktar og
endurræktunar á túnum, kornræktar
og ræktun annarra fóðurjurta
og útiræktunar á grænmeti.
Landgreiðslur eru hins vegar
greiddar út á ræktað land sem er
uppskorið til fóðuröflunar. Fjöldi
styrkhæfra hektara sem sótt verður
um fyrir á landsvísu ræður síðan hve
hár styrkurinn verður.
Samkvæmt reglugerð 1240/2016
um almennan stuðning við landbúnað
skal sækja um jarðræktarstyrki
og landgreiðslur eigi síðar en 20.
október en það er Matvælastofnun
sem hefur með úthlutun styrkjanna
að gera.
Til þess að standast skilyrði um
fullnægjandi skýrsluhald í jarðrækt
þarf að uppfylla eftirfarandi skrán-
ingar samkvæmt reglugerðinni.
Athugið að túnkort þarf að vera til
staðar í Jörð.is.
• Nafn og/eða númer spildu.
• Hnitsetning spildu byggð á
landupplýsingakerfi (LUK)
sem byggir á stafrænu túnkorti.
Túnkortið á að sýna nákvæmlega
þær ræktunarspildur sem eru
grundvöllur að styrkjum.
• Ræktun, þ.e. gras, grænfóður,
korn, olíujurtir eða útiræktað
grænmeti.
• Tegund og yrki, þegar sótt er um
jarðræktarstyrk.
• Stærð spildu í hekturum.
• Ræktunarár, ef ræktað
síðastliðin 5 ár.
• Heildaruppskeru í kg þurrefnis
fyrir hverja spildu.
• Heildaruppskeru í kg í
útiræktuðu grænmeti.
Ráðunautar Ráðgjafarmiðstöðvar
landbúnaðarins taka að sér að
útbúa form til skráningar á ræktun
og uppskeru í samræmi við
fyrirliggjandi túnkort en það kann
að vera ástæða til að byrja á að
tryggja að túnkortið sé í samræmi
við þá ræktun sem er fyrir hendi.
Einnig tekur RML að sér að skrá
skýrsluhaldið fyrir þá sem þess óska.
Innheimt er fyrir þessa þjónustu
samkvæmt tímaskráningu og
gildandi gjaldskrá.
Þeir sem óska eftir þjónustu RML
í þessum efnum ættu að huga að því
fyrr en seinna svo raunhæft verði
að sækja um jarðræktarstyrki og
landgreiðslur innan tilsetts tíma.
Nánari upplýsingar veita Borgar
Páll Bragason (bpb@rml.is)
Guðfinna Lára Hávarðardóttir (glh@
rml.is) og Eiríkur Loftsson (el@rml.
is, hjá RML í síma 516-5000.
Skýrsluhald í jarðrækt er nú forsenda
jarðræktarstyrkja og landgreiðslna
Borgar Páll Bragason
fagstjóri í nytjaplöntum
hjá RML
bpb@rml.is
Þegar bændur og ráðunautar
gera áburðaráætlanir er lögð
áhersla á að nýta heimafengin
áburðarefni sem best. Góð nýting
búfjáráburðar er helsta leiðin
til þess að lækka hlut tilbúins
áburðar án þess að koma niður á
magni og gæðum uppskeru.
Til þess að það sé hægt er
mikilvægt að þekkja efnainnihald
sem best. Á flestum búum er hins
vegar aðeins hægt að styðjast
við meðalgildi á efnainnihaldi
búfjáráburðar. Þær rannsóknir sem
gerðar hafa verið á áburðarefnum
í búfjáráburði sýna að mikill
breytileiki er milli bæja. Það má því
ætla að eftir nokkru sé að slægjast
fyrir bændur að láta efnagreina sinn
búfjáráburð.
Helsti áhrifavaldur í efnainnihaldi
búfjáráburðar er fóðrið. Ef mikið er
af fosfór í fóðri skilar það sér í auknu
fosfórmagni í mykjunni og ef fóðrið
inniheldur mikið prótein og kalí
skilar það sér í auknu köfnunarefni
og kalí. Það eru því gild rök fyrir
því að mykja undan geldneytum sé
rýrari af áburðarefnum en mykja
undan kúm sem fóðraðar eru fyrir
mjólkurframleiðslu. Af þessu sögðu
má sjá að ekki er hægt að heimfæra
gildi fyrir efnainnihald mykju undan
mjólkurkúm og geldneytum ef
safnrými eru aðskilin.
Hvernig á að standa að sýnatöku?
Mikilvægt er að sýnið sé sem næst
því að vera þverskurður af þeim
búfjáráburði sem við viljum vita
efnainnihaldið í. Þurrt sauðatað
er til að mynda erfitt í sýnatöku
vegna þess hve misleitt það er. Því
þarf að skipuleggja slíka sýnatöku
vel með það markmið að ná yfir
breytileikann með mörgum sýnum.
Þegar um er að ræða upphrærðan
búfjáráburð fer sýnatakan fram
um leið og mykjunni er keyrt út.
Margir þekkja að mykjan er mis
þykk frá fyrsta ferð mykjudreifara
til þeirrar seinustu. Því þarf að
framkvæma sýnatöku í nokkur
skipti meðan dreifing fer fram.
Hvað upphrærðan búfjáráburð
varðar skal taka mið af eftirfarandi
verkferli:
Taka skal sýni 5 sinnum meðan
á útdælingu stendur, 5 lítrar hverju
sinni er ágætt. Ekki úr því allra
fyrsta (brunnur getur verið fullur
af vatni) en síðan með sem jöfnustu
bili og seinasta sýnið tekið úr
seinustu tankfylli.
Þessum sýnum er steypt saman
í kerald og þegar allt er komið er
hrært vel og endanlegt sýni tekið
í litla fötu eða brúsa (2 l er ágætt)
lokað vel og sýnið merkt.
Þegar um er að ræða búfjáráburð
sem er ekki er á fljótandi formi
svo sem þurrt sauðatað eða úr
safnhaug, getur ferlið verið ögn
flóknara. Líkt og þegar tekið er sýni
úr upphrærðri mykju er mikilvægt
að sýnið sem sent er til greiningar
endurspegli þann efnivið sem nýta
á sem áburð. Það þarf því að taka
sýni á nokkrum stöðum úr safninu
til þess að fanga breytileika sem
þar er að finna.
Best er að taka sýni um leið
og búfjáráburður er keyrður út.
Ein leiðin til þess taka sýni úr
óhrærðum búfjáráburði er að nota
plastdúk sem breiddur er út á tún
sem borið er á. Ágætt viðmið er
notast við 3x3 metra dúk. Síðan
er einfaldlega borið á túnið og
sá búfjáráburður sem á dúknum
lendir er tekinn upp og settur í ker
(mikilvægt að taka búfjáráburðinn
sem fyrst af dúknum). Þetta þarf
að endurtaka nokkrum sinnum
þannig að sýni fáist sem víðast
úr hauggeymslu eða safnhaug.
Að þessu loknu er sýnunum hrært
vel saman í kerinu og eitt hlutsýni
tekið sem á að endurspegla þann
áburð sem í haugnum er.
Þegar sýni er tekið beint úr
safnhaug þarf að taka 10–20 sýni
úr haugnum og setja saman í ker.
Gæta þarf að taka sýni bæði úr
kjarna haugsins sem og jöðrum
enda getur verið nokkur breytileik
þar á milli. Hægt er að nota skóflu
eða gaffal við verkið en einnig
getur þurft að nota ámoksturstæki
til að moka frá svo þægilegra sé
að taka sýni úr miðju haugsins. Að
þessu loknu er hrært upp kerinu og
eitt hlutsýni er tekið.
Hægt er að fá sýnin greind hjá
Efnagreiningu ehf. á Hvanneyri.
Ef geyma þarf sýnin lengi þar þarf
að frysta þau, en geymsla á svölum
stað í eina til tvær vikur skiptir
ekki máli. Jarðræktarráðunautar
RML geta aðstoðað við túlkun á
niðurstöðum efnagreininga og fært
inn í Jörð.is þar sem hægt er að
nota þær við gerð áburðaráætlunar.
Einnig geta ráðunautar RML
aðstoðað við að koma sýnum í
efnagreiningu. Frekari upplýsingar
er hægt að nálgast hjá ráðunautum
RML í jarðrækt í síma 5165000.
Snorri Þorsteinsson
ráðunautur í jarðrækt
hjá RML
snorri@rml.is
Sýnataka úr búfjáráburði
Jarðvegssýnataka haustið 2017
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins
vill minna bændur á að huga að
jarðvegssýnatöku í haust.
Efnagreiningar á jarðvegi
ræktarlands gefa mikilvægar
upplýsingar sem bændur geta notað
til að byggja áburðargjöf á. Þær segja
til um næringarástandið, hvort það sé
skortur eða hvort hægt sé að draga
úr áburðargjöf ákveðinna efna.
Einnig fást upplýsingar um sýrustig
jarðvegs og hvort huga þurfi að
kölkun. Niðurstöður jarðvegssýna
frá haustinu 2016 benda til þess að
algengt sé að sýrustig túna sé lægra
en þau viðmiðunargildi sem æskileg
þykja í jarðrækt.
Jarðvegssýni sem ráðunautar
RML taka í haust verða send til
greiningar hjá Efnagreiningu ehf.
á Hvanneyri. Þegar niðurstöður
efnagreininga liggja fyrir geta
bændur óskað eftir því að ráðunautar
RML fari yfir niðurstöðurnar og
sendi bændum túlkun á þeim sem
mun nýtast við gerð áburðaráætlana
og í öðrum verkefnum er tengjast
jarðrækt. Niðurstöðurnar fara
einnig inn í forritið jörð.is þar sem
þær eru geymdar og aðgengilegar.
Til að fylgjast með breytingum
sem kunna að verða á sýrustigi og
næringarástandi í efsta jarðvegslagi
túna og akra er æskilegt að taka úr
þeim jarðvegssýni á nokkra ára fresti.
Varðandi jarðvegssýnatöku er rétt
að nefna að það er óæskilegt að taka
sýni þar sem búfjáráburður hefur
verið borin á síðsumars eða í haust.
Æskilegt er að sem flestar pantanir
liggi fyrir snemma í ferlinu til þess að
auðvelda skipulagningu heimsókna.
Hægt er að panta rafrænt á heimasíðu
rml.is, eða með því að hringja í síma
516-5000. Snorri Þorsteinsson
Um er að ræða timburhús til flutnings, húsið er 79 fm
að stærð með sjálfberandi þaki.
Húsið er upphaflega
byggt sem kennslustofa
og hefur verið notuð
sem slík undanfarin ár
af Listaháskóla Íslands
við Sölvhólsgötu.
Einfalt að breyta innra skipulagi eftir frekari óskum,
t.d. í ferðaþjónustu-, starfsmanna-, íbúðarhús.
Tilboð óskast
KENNSLUSTOFA - FERÐAÞJÓNUSTA - STARFSMANNAHÚS
Steindór Guðmundsson
Löggiltur fasteignasali:
Sími 480-2901
steindor@log.is
REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
www.VBL.is
REYKJAVÍK Sími: 414-0000 /// AKUREYRI Sími: 464-8600 /// www.VBL.is
Zetor Proxima Power 120
4 cyl. mótor, 117 hestöflÁrgerð 2013
Notuð 1436 vinnustundir Lækkað verð kr. 5.190.000 án vsk.
Með Trac Lift ámoksturstækjum og skóflu