Bændablaðið - 07.09.2017, Qupperneq 58
Bændablaðið | Fimmtudagur 7. september 201758
Bændablaðið
Smáauglýsingar
56-30-300
Hafa áhrif
um land allt!
Ágætu kúabændur um land allt!
LESENDABÁS
Styrkir til rannsókna
og þróunarverkefna
í garðyrkju
Framleiðnisjóður landbúnaðarins
Hvanneyrargötu 3, 311 Borgarnes
Sími 430-4300
Framleiðnisjóður landbúnaðarins auglýsir hér með eftir um-
sókn um um styrki til rannsókna og þróunarverkefna í garð yrkju
samkvæmt reglugerð um almennan stuðning við land búnað
nr. 1240/2016.
Styrkhæf eru ráðgjafarverkefni, kynningarverkefni, rannsókna-
eða tilraunaverkefni, vöruþróunarverkefni og endur mennt-
unarverkefni. Sjá nánar inn á heimasíðu sjóðsins www.fl.is,
undir þróunarfé/verklagsreglur fagráðs í garðyrkju.
Umsókn skulu fylgja eftirfarandi upplýsingar, eftir því sem
við á:
a) Yfirlit um tilgang og markmið verkefnisins, þ.m.t. rök-
stuðn ingur fyrir því hvernig það fellur að þeim mark-
mið um sem tilgreind eru hér að ofan og hvernig það
gagnast viðkomandi búgrein að öðru leyti.
b) Listi yfir alla sem eiga aðild að verkefninu.
c) Tímaáætlun verkefnisins.
d) Fjárhagsáætlun verkefnisins í heild.
e) Hvar og hvernig niðurstöður verkefnisins verða kynntar.
Umsóknarfrestur er til 1. október n.k.
Reglur um styrkina og umsóknareyðublöð er að finna á www.
fl.is/þróunarfé. Aðeins er tekið við umsóknum á eyðublöðunum
sem þar er að finna.
Umsóknum skal skilað til Framleiðnisjóðs landbúnaðarins,
Hvanneyri 311 Borgarnes, merktum: Umsókn um þróunarfé.
Nánari upplýsingar veitir Þórhildur Þorsteinsdóttir, framkvæmda-
stjóri Framleiðnisjóðs landbúnaðarins hjá thorhildur@fl.is.
Síðastliðin 5 ár hef ég stundað nám
í dýralækningum við háskólann í
Kaupmannahöfn og er nú komið
að endasprettinum, þ.e. skrifum á
lokaverkefni, sem lýkur með vörn
og útskrift um mánaðamótin jan-
úar/febrúar 2018. Í verkefninu
verður fjallað um burðarerfið-
leika, kálfavanhöld og heilsufar
mjólkurkúa á Íslandi.
Kálfavanhöld hafa verið stórt
vandamál í íslenskri mjólkur-
framleiðlu í gegnum árin og árið
2016 voru kálfavanhöld 14% á lands-
vísu. Þá situr Ísland á toppnum yfir
flesta dauðfædda kálfa í Evrópu.
Markmið mitt með verkefninu
er að gera úttekt á burðarerfið-
leikum og umfangi burðarhjálpar,
kálfavanhöldum sem og heilsu-
farsvandamálum kýrinnar um og
eftir burð.
Hér verða burðarerfiðleikarnir
kjarni verkefnisins og í því samhengi
litið á afdrif kálfs og heilsufar móður
um og eftir burð, ásamt því að litið
verður lauslega á fóðrun og umhirðu
gripa fyrir og eftir burð.
Svo af verkefninu megi verða
þarfnast ég aðstoðar íslenskra kúa-
bænda næstu tvo mánuðina.
Sendir verða út tveir spurninga-
listar; annar almenns efnis en hinn er
sérstaklega ætlaður til að afla upplýs-
inga um hvern einstaka burð. Óskað
er eftir að bændur skrái búsnúmer en
það er til þess ætlað að bera megi
saman svörin úr hvorum spurninga-
lista fyrir sig. Ekki verður greint frá
niðurstöðum einstakra búa og því
fyllstu nafnleyndar gætt.
Almenni spurningalistinn verð-
ur aðgengilegur á forsíðu Huppu.
Listinn samanstendur af 13 spurn-
ingum (þar af 10 krossaspurningum)
og honum þarf aðeins að svara einu
sinni.
Spurningalistinn um hvern ein-
staka burð verður aðgengilegur undir
skráningu burðar í Huppu. Honum er
óskað svarað við hvern burð á búinu.
Listinn samanstendur af 16 spurn-
ingum (þar af 11 krossaspurningum)
sem öllum er tiltölulega fljótsvarað.
Í einni spurningunni óska ég eftir
þyngd kálfs í kg. Þessi spurning er
sennilega sú sem krefst hvað mestrar
vinnu og er það að sjálfsögðu val-
frjálst hvort bændur svari henni eða
ekki. Ég yrði hins vegar mjög þakklát
ef bændur hefðu tök á að vigta kálf-
ana nýfædda svo kanna mætti hvort
meðalþyngd þeirra við fæðingu sé
að aukast.
Fyrir þá bændur sem ekki eru í
rafrænu skýrsluhaldi verða sendir út
spurningalistar í pappírsformi.
Sjálf er ég fædd og uppalin á
Herjólfsstöðum í Álftaveri þar sem er
stundaður blandaður búskapur með
nautgripi, sauðfé og hross. Ég hef alla
tíð haft mikinn áhuga á því sem við
kemur æxlun og frjósemi jórturdýra,
sem og afdrifum ungviðis og móður
um og eftir burð. Sá áhugi stigmagn-
aðist svo á kandídatsárunum þegar ég
hitti fyrir leiðbeinendur mína í þessu
verkefni sem nú hefur göngu sína.
Þegar ég kynnti hugmyndir mínar
fyrir þeim á vormánuðum þessa árs
urðu þær fullar áhuga á að gera úttekt
á viðfangsefninu hérlendis þar sem
aðstæður hér eru nokkuð öðruvísi
en þær eiga að venjast í sínu heima-
landi. Það er því von mín að þið
hafið áhuga á að koma með mér í
þetta verkefni því án ykkar aðstoðar
yrðu niðurstöðurnar harla litlar (og
þar fyrir utan yrði lokaritgerðin mín
ákaflega þunnur pappír).
Með vinsemd og von
um góðar undirtektir,
Harpa Ósk Jóhannesdóttir,
dýralæknanemi við háskólann
í Kaupmannahöfn.
Harpa Ósk Jóhannesdóttir,
TÖKUBÁSAR FYRIR NAUTGRIPI
Öflugir tökubásar fyrir nautgripi. Innbyggð vigt.
Tilboðsverð kr. 349.900 auk vsk.
Aðeins þrír básar eftir.
Upplýsingar og
pantanir í símum
899 1776 og 669 1336. Meira fyrir aurinn
MENNING&LISTIR
„Hröð og mögnuð
spennusaga“
Veröld hefur gefið út
spennutryllinn Þrjár mínútur
eftir Roslund & Hellström.
Piet Hoffmann er á flótta
undan sænskum yfirvöldum og
gerist flugumaður bandarískra
stjórnvalda í kólumbísku
kókaínmafíunni. Honum tekst að
komast til metorða í hrottalegum
heimi glæpamanna sem svífast
einskis.
Þegar háttsettur bandarískur
stjórnmálamaður er tekinn í gíslingu
lendir Hoffmann milli steins og
sleggju – báðir aðilar vilja hann
feigan. Sænski lögreglumaðurinn
Ewert Grens er sendur til Kólumbíu
til að reyna að ná sambandi við
Hoffmann sem hefur ákveðið að
taka málin í sínar hendur.
Háspennutryllir úr smiðju þeirra
Roslund & Hellströms sem grípur
lesandann heljartökum og sleppir
honum ekki fyrr en á síðustu síðu.
„Hröð og mögnuð spennusaga,
eins og að horfa á æsispennandi
kvikmynd.“
Dagens Nyheter
„Í senn sérlega haganlega
samansett glæpasaga og pólitískur
spennutryllir.“
Borås Tidning
„Spennandi saga um ofsóttasta
mann í heimi í kókaínfrumskógum
Kólumbíu.“
Sveriges Radio, P4
„Skyldulesning sumarsins,
eða kannski bara einfaldlega
skyldulesning fyrir alla.“
Skånska Dagbladet
Þrjár mínútur er 599 blaðsíður að
lengd. Sigurður Þór Salvarsson
þýddi. Jón Ásgeir hannaði
bókarkápuna og Eyjólfur Jónsson
sá um umbrot. Bókin er prentuð hjá
Nørhaven, Danmörku.
Roslund & Hellström.
Stóra smákökubókin
Stóra smákökubókin er gullfalleg
bók með 55 smákökuuppskriftum.
Smákökubakstur er rík hefð á
Íslandi. Uppskriftir ganga gjarnan á
milli kynslóða og sömu
kökurnar kunna jafnvel
að vera ólíkar eftir
landshlutum. Í þessari
bók eru gamlar og
góðar kökur sem hafa
lifað með þjóðinni í
stílabókum, dagbókum,
glósubókum og lausum
blöðum en einnig
nýjar og spennandi
uppskr i f t i r að
ljúffengum smákökum.
Þá má ekki gleyma
smákökum sem eru
án sykurs eða hveitis
og eru hreinlega bráðhollar. Þetta
er ómissandi bók á hverju heimili.
Góða skemmtun!
„Ég óttast mest að geta ekki
bakað neitt upp úr þessari bók því
síðurnar eru svo girnilegar að mig
langar helst að borða þær heilar!“
/Lilja Katrín Gunnarsdóttir,
blaka.is
Fanney Rut Elínardóttir er höfundur
metsölubókarinnar Hvorki meira né
minna sem kom út 2010 og hefur
skrifað og eldað fjölda uppskrifta
fyrir blöð og tímarit.
Systir Fanneyjar, María
Elínardóttir ljósmyndari, tók allar
myndir í bókinni.