Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 45

Bændablaðið - 29.08.2019, Blaðsíða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 2019 45 Kerrur og gjafabúnaður Sturtukerrur 2700 - 3500kg Flatkerrur 2700- 3500kg Vélakerrur 2700 - 3500kg Fjölnota kerrur 2700kg Nýtt útlit á 26 hö vél. Meira úrval hjólbarða. Meira úrval fylgihluta. Allt að 113hö Perkins mótor Greipar-Rúlluskerar-Stæðuskerar-Afrúllarar VALLARBRAUT.IS Trönuhrauni 5 220 Hafnarfirði S-8411200 &-8417300 Gripakerrur í miklu úrvali 2700 - 3500kg NUGENT kerrurnar frá Írlandi eru einstaklega sterkar og vandaðar - Vörubílar - Rútur - Vinnuvélar Hausttilboð Öll tæki frá Sulky nú með 20% afslætti Vor�lboð á áburðardreifurum, pinnatæturum og sáningarvélum Bjóðum 15% afslá� á síðustu tækjunum fá Sulky þe�a vorið. Vor�lboð á áburðardreifurum, pinnatæturum og sáningarvélum Bjóðum 15% afslá� á síðustu tækjunum fá Sulky þe�a vorið. Flottur hópur við nýju skiltin, frá vinstri: Loftur Ingólfsson, Jóhanna B. Ingólfsdóttir og Guðmundur Ingólfsson frá Iðu, Páll M. Skúlason, Magnús Skúlason, Sigrún Skúladóttir og Ásta Skúladóttir frá Hveratúni. Á myndina vantar þau Hólmfríði Ingólfsdóttur og Benedikt Skúlason. Söguskilti sett upp um sögu Iðuferju og brúar við Iðu yfir Hvítá Sögu Iðuferju, brúarinnar á Hvítá hjá Iðu og Laugaráss eru gerð skil á söguskiltum sem nú hafa verið sett upp við norðurenda brúarinnar. Skiltin voru afhjúpuð þann 24. ágúst í einstakri veðurblíðu að viðstöddu fjölmenni. Við athöfnina gerðu þau Elínborg Sigurðardóttir á Iðu og Páll M. Skúlason í Kvistholti grein fyrir tilurð skiltanna, sem voru gerð í minningu hjónanna Ingólfs Jóhannssonar og Margrétar Guðmundsdóttur á Iðu og Guðnýjar Pálsdóttur og Skúla Magnússonar í Hveratúni í Laugarási. Það voru afkomendur þeirra sem áttu frumkvæði að þessari framkvæmd og þeir styrktu gerð þeirra með umtalsverðu fjárframlagi. Það voru síðan börn Iðuhjóna og Hveratúnshjóna sem afhjúpuðu skiltin. Í lok athafnarinnar afhentu afkomendur hjónanna Sveitarfélaginu Bláskógabyggð skiltin til umsjónar og varðveislu og sveitarstjórinn, Ásta Stefánsdóttir, veitti þeim viðtöku. „Halló, halló, ferja“ „Millifyrirsögnin vísar til minninga bræðranna Einars og Jósefs Ólafssona, en faðir þeirra, Ólafur Einarsson, var héraðslæknir í Laugarási frá 1932–1947. Þeir voru oft sendir á Skálholtshamar, sem er þar sem norðurendi brúarinnar er nú, til að kalla á ferjuna og flýta þannig fyrir föður sínum, sem þurfti að fara í læknisvitjun austan ár. Þeir voru einnig ósjaldan sendir á ferjuna með lyf sem þurfti að koma yfir. Það sama má segja um mjóróma hróp þeirra af Auðsholtshamri, en þar var einnig lögferja langt fram eftir síðustu öld,“ segir Páll, sem vann allan texta á skiltin og valdi myndir, ásamt Elínborgu. Bláskógabyggð styrkti verkið einnig, svo og Vegagerðin og fleiri aðilar. Skiltin voru sett upp samhliða bæjarskilti fyrir Laugarás. „Saga beggja ferjanna, brúarinnar og Laugaráss er samtvinnuð og söguskiltin gera nokkra grein fyrir henni, en ég er að vinna vef um Laugarás og nágrenni, www.laugaras.is, þar sem þessari sögu eru og verða gerð ítarlegri skil bæði í texta og með myndefni af ýmsu tagi. Tilvísun í vefinn er að finna á skiltunum,“ bætir Páll við. /MHH Páll og Elínborg gerðu grein fyrir tilurð skiltanna, sem voru gerð í minningu hjónanna Ingólfs Jóhannssonar og Margrétar Guðmundsdóttur á Iðu og Guðnýjar Pálsdóttur og Skúla Magnússonar í Hveratúni í Laugarási. Bænda 12. septemberHvar auglýsir þú?Sími 563 0300 / Netfang: bbl@bondi.is / bbl.is 45,6% fólks á landsbyggðinni les Bændablaðið 20,4% 45,6% á landsbyggðinniá höfuðborgarsvæðinu 29,5% landsmanna lesa Bændablaðið Lestur Bændablaðsins: BÆNDABLAÐIÐ ER GEFIÐ ÚT Í 32 ÞÚSUND EINTÖKUM Á TVEGGJA VIKNA FRESTI Heimild: Prentmiðlakönnun Gallup, okt.-des. 2018. Aldur 12-80 ára. börn og vél- knúin ökutæki bílar, dráttarvélar, vöruflutninga- eða mjólkurbílar ættu aldrei að nálgast leiksvæði barna. Það er góð hugmynd að girða leikvelli tryggilega af og sjá til þess að vélknúin ökutæki þurfi ekki að snúa eða bakka í námunda við þá. Er þitt bú öruggur og góður vinnustaður? PO RT h ön nu n Kynntu þér leiðbeiningaefni um öryggi og vinnuvernd í landbúnaði á bondi.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.