Bændablaðið - 29.08.2019, Síða 51

Bændablaðið - 29.08.2019, Síða 51
Bændablaðið | Fimmtudagur 29. ágúst 2019 51 nemur 0,3 dönskum krónum eða um 5,5 íslenskum krónum á hvert kíló mjólkur. Horfir í hverja krónu Lars segir að það sé nauðsynlegt að horfa í hverja krónu og þó svo að búið sé rekið með myndarlegum hagnaði núna þá þurfi að eiga fyrir mögulegum áföllum. Hann fylgist afar vel með fóðurkostnaði búsins og veit upp á hár hvað hver kýr étur fyrir mikla upphæð á degi hverjum. Gróffóðurkostnaðurinn liggur fyrir og einnig birgðirnar af því en hann notar sérstakt birgða- og fóðurstjórnunarforrit til að stýra því hvernig fóðruninni er háttað á degi hverjum. Hann getur þannig stýrt því af mikilli nákvæmni að lítið sem ekkert fari til spillis og ekki sé verið að eyða peningum í moð. Lars segir að kúabændur sem séu að framleiða mjólk sem sveiflast samhliða breytingum á heimsmarkaðsverði þurfi að vera undir breytingar búnir og telur hann að afurðastöðvaverð þurfi að haldast í að lágmarki 2,5 dönskum krónum, um 46 íslenskum krónum, eigi mjólkurframleiðsla að geta dafnað í Danmörku. Tekur við flóttafólki Samhliða stækkun búsins hefur Lars þurft að ráða til sín fólk og hefur nú á 12 ára tímabili aukið við starfsmannafjöldann úr 3 í 15! Nú er hann með 11 fastráðna starfsmenn, 3 nemendur í starfsnámi auk þess að vera með ungling í vinnu sem kemur eftir skóla og grípur í verk. Aðspurður segir hann að Trine hafi í raun aldrei unnið við búið, hún hafi síðasta áratuginn haft í nægu að snúast í kringum börnin þeirra sex en þau eiga bæði börn frá fyrri samböndum og svo tvö sameiginlega. Þá er hann sjálfur að mestu hættur að vinna við hefðbundin búverk og sér nú orðið um bústjórnina og eins og hann kallar það að sinna bráðaútköllum. Það sem hefur komið honum einna mest á óvart er að hann hefur aldrei þurft að auglýsa eftir fólki, búið hefur verið svo vel og myndarlega rekið að orðspor þess hefur farið víða. Hann fær því oft fyrirspurnir um störf og sérstaklega hafa útlendingar sóst eftir að komast í vinnu á búinu. Í dag er hann með danska, pólska, rúmenska og sýrlenska starfsmenn en þeir síðastnefndu koma á vegum sveitarfélagsins sem flóttafólk. Sveitarfélagið gerði nefnilega við hann samkomulag um að hann taki að sér að kenna flóttafólki að vinna á kúabúi og þess í stað borgar sveitarfélagið helminginn af launum fólksins. Afurðamiklar kýr Kýrnar á Elmegården eru af Holstein kyni og síðan hann tók við búinu hafa meðalafurðirnar aukist jafnt og þétt og úr því að vera í meðallagi á danskan mælikvarða í að vera með þeim afurðahæstu í Danmörku. Í dag er meðalnytin 13.800 kíló af orkuleiðréttri mjólk og skilar hver kýr 1.020 kílóum af verðefnum mjólkur að jafnaði sem verður að teljast afar góður árangur. Samhliða afurðaaukningunni hefur ending kúnna einnig aukist verulega og hafa æviafurðirnar aukist um 15 tonn að jafnaði á þessum fáum árum. Endurnýjunarhlutfallið á kúnum á Elmegården er nú ekki nema 18%, sem er langtum lægra en gerist og gengur hjá flestum dönskum kúabúum. Kynbótastarfið Lars notar fyrst og fremst erfðaefni frá félaginu VikingGenetics en það er kynbótafélag sem bændur í Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi eiga en Lars segist einnig kaupa sæði frá öðrum til að bæði hafa val og til að halda verðtilfinningu. Eins og áður segir hefur hann náð afar góðum árangri með kýrnar og er ending þeirra góð. Þá hefur hann skýra sýn varðandi kynbótaáætlun búsins en hún er að sæða allar kvígur með kyngreindu sæði svo þær fá eingöngu kvígur sjálfar. Vill stórar kýr! Kynbótamarkmið búsins er að sækjast eftir því að fá stórar kýr sem geta étið mikið og þar með mjólkað mikið. Þá vill hann kýr með sterklega fætur og leggur áherslu á hraustleika en hann vill gjarnan að kýrnar geti enst í allt að 10 ár. Ekki nema 40% af mjólkurkúnum eru sæddar með sæði úr Holstein nautum en hinar, sem þá ekki eru ætlaðar til áframhaldandi ræktunar til lengri tíma litið, eru sæddar með holdanautasæði. Góð velferð kúnna skiptir öllu Góð dýravelferð er það sem Lars telur að skipti einna mestu máli eigi að ná góðum árangri og hann er sannfærður um að það að vera með sand í legubásunum og að mjólka kýrnar fast þrisvar á dag sé lykillinn að þeim góða árangri sem hefur náðst á búinu. Greinarhöfundur getur hér bætt því við, eftir að hafa verið ráðgjafi búsins um tíma, að Lars er einstaklega öflugur bóndi og skynsamur. Hlustar á rök og ráðleggingar og hann hikar ekki við að breyta út frá gömlum venjum. Þetta opna viðhorf hefur klárlega skilað honum á þann stað sem hann er í dag. Kýr á fyrsta mjaltaskeiði sér Það er alþekkt að kýr á fyrsta mjaltaskeiði mjólka mun betur ef þær eru hafðar sér en fæst bú geta haft þær sér vegna smæðar. Búið hjá Lars er hins vegar það stórt að hann getur verið með sérhóp fyrir kvígurnar og það skilar sér að hans sögn. Þær sleppa við að keppa við sér eldri kýr um fóður og legusvæði og fá auk þess tíma til að aðlagast breytingunum sem verða þegar þær hafa borið í fyrsta skipti. Sérstök fæðingardeild Þegar kýrnar og kvígurnar vantar viku í áætlaðan burðardag eru þær færðar úr geldkúaaðstöðunni, þar sem þær hafa verið í sex vikur, og yfir í sérstaka deild þar sem er hlúð sérstaklega vel að þeim. Um er að ræða stóra hópstíu með hálmi og fara þær þá á aðlögunarfóður að því fóðri sem þær svo fá eftir burðinn. Í þessari aðstöðu er Lars með sérstakt starfsfólk sem hefur reynslu í meðferð og meðhöndlun kúa og er lögð áhersla á að kúnum líði vel og séu afslappaðar þegar kemur að burðinum. Smákálfarnir úti Eftir fæðinguna fá kálfarnir brodd af lágmarks gæðum en öll broddmjólk er gæðametin og ef hún stenst ekki mál fær kálfurinn brodd sem stenst gæðakröfurnar frá brodd- mjólkurlager. Þegar tryggt er að kálfarnir hafi drukkið broddinn og fengið þar með þau mótefni sem þeir þurfa til að takast á við framtíðina eru þeir færðir út í smákálfahýsi sem Lars hefur utandyra. Í þessum hýsum eru kvígurnar í þrjá mánuði og þar af fá þær mjólk fyrstu tvo mánuðina. Eftir útivistina eru þær svo færðar inn í fjós í hópstíur og eru þar fram að fyrsta burði. Fín mjólkurgæði Lars nýtir sér ráðgjöf varðandi flesta þætti í rekstrinum og eitt af því sem hann ákvað að gera var að ná tökum á júgurheilbrigði búsins. Hann keypti því ráðgjafarpakka hjá mjólkurgæðasviði SEGES sem kallast „Frumutölu-viðsnúningur“, en eins og nafnið bendir til snýst það um að ná tökum á frumutölunni og gera breytingar sem halda. Of langt mál væri að fara nánar út í þetta verkefni en í fáum orðum sagt tókst einkar vel að ná utan um málið og fór frumutalan úr því að vera rúmlega 200 þúsund í það að vera nú rétt í kringum 100 þúsund! Dýralæknirinn kemur einu sinni í viku Elmegården er með í gæðastjórn- unarkerfi sem snýr að meðhöndlun á skepnum en það þýðir að ákveðnir starfsmenn búsins hafa farið á námskeið hjá dýralækni í meðhöndlun algengustu sjúkdóma og geta eftir það sjálfir lyfjameðhöndlað ef þörf krefur. Fyrir vikið þarf ekki dýralækni í útköll en hann kemur hins vegar fast einu sinni í viku og fer yfir þær mögulegu meðhöndlanir sem hafa verið gerðar, skoðar nýbærur og sinnir forvarnarstarfi. Þá er búið einnig með í gæðastjórnunarkerfinu Arla- gaarden®, sem er staðlað matskerfi fyrir fyrirmyndarfjós. Fyrir þátttökuna í því hækkar afurðastöðvaverðið um 1 evrusent eða um 1,4 íslenskar krónur. Stefnir á aukna nyt Aðspurður um framtíðina segir Lars að það sé ekki á stefnuskránni að stækka búið frekar. Næstu skref séu að ná enn betri tökum á framleiðslunni, hámarka arðsemi búsins og auka afurðasemi kúnna enn frekar. Hann telur raunhæft að stefna á 15 tonna meðalafurðir á næstu fimm árum og að 18 tonn að jafnaði eftir kúna sé ekki óraunhæf framtíðarsýn fyrir búið. Ástæðan fyrir áherslu á afurðasemina sé að með aukinni nyt fylgi veruleg hagræðing og þar með aukast möguleikar búsins á að greiða hratt niður skuldir, en hann stefnir að því að ná 50% skuldsetningu, þ.e. sem hlutfall af veltu, árið 2024. Byggt á viðtali við Lars sjálfan, auk gagnlegra upplýsinga úr viðtölum við Lars í tímaritunum Buskap og LandbrugNord frá því fyrr í ár. ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF. KLETTHÁLSI 3 110 REYKJAVÍK SÍMI: 540 4980 info@yamaha.is www.yamaha.is GRIZZLY 700 EPS DRÁTTARVÉL SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á WWW.YAMAHA.IS Tilboðsverð: 2.390.000,- Fullt verð: 2.550.000,- Örfá eintök til afhendingar strax! Lars Kristensen hefur byggt upp bú sitt af miklu myndarskap á undanförnum árum. Mjaltabásinn, sem er 2x24 með hraðútgangi, er notaður nokkuð vel en í honum er mjólkað 15 klukkustundir á dag. Sandlegubásar eru bestir fyrir kýr að mati Lars enda kýrnar tandurhreinar og hraustar.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.