Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Qupperneq 5

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Qupperneq 5
M.G.-félag Islands stofnað Stjórn M.G.-félagsins. Frá vinstri: Sr. Hjalti Guðmundsson, Eysteinsdóttir, Guðrún Þorgeirsdóttir. Hinn 29. maí sl. var boðað til stofnfundarM.G.-félagsíslands í kaffisal ÖBÍ. Hátúni 10. M.G. stendur fyrir My asthenia Gravis-sjúkdóminn, sem á íslenzku hefur fengið nafnið vöðvaslensfár. Á stofnfundinum mættu um 30 manns — sjúklingar og aðstandendur og á fundinn bárust sjö umsóknir þeirra um stofnaðild, sem ekki gátu sótt fundinn. Félagið er sjúklingafélag svo og allra þeirra sem áhuga hafa á félags- aðild. Það var forgöngukona undirbún- ingshópsins Ólöf S. Ey steinsdóttir sem setti fundinn og lýsti tilgangi félags- stofnunarinnar og þeim markmiðum sem aðstandendur hennar vilja ná með félaginu. Til að glöggva þessi markmið skulu þau kynnt hér: Markmið félagsins eru þessi: a) að afla upplýsinga um hverjir eru M.G.-sjúklingar á Islandi, hagi þeirra og þarfir. b) að auka kynni og samstöðu M.G.- sjúklinga. c) að afla upplýsinga um M.G.- sjúkdóminn, eðli hans og meðferðarmöguleika. d) að stuðla að auknum rannsóknum á M.G.-sjúkdómnum. e) að beita sér fyrir bættri meðferð og aðstöðu M.G.-sjúklinga. f) að miðla upplýsingum um M.G.- sjúkdóminn til M.G.-sjúklinga, aðstandenda, heilbrigðisstétta, stjórnvalda og almennings. g) að vera í forsvari fyrir M.G.- sjúklinga gagnvart stjórnvöldum og almenningi, svo og hliðstæðum félögum hér á landi og erlendis. h) að kynna M.G.-sjúklingum hvar aðstæður eru til ferðalaga, starfa, þjálfunar, skemmtana og dvalar fyrir hreyfihamlaða. i) að vinna á annan hátt að bættri líðan og aðstöðu M.G.-sjúklinga. Ólöf tilnefndi Helga Seljan sem fundarstjóra og séra Hjalta Guð- mundsson fundarritara. Dr. Sigurður Thorlacius læknir flutti því næst glöggt og greinar- gott erindi um sjúkdóminn, eðli hans og einkenni, greiningu og meðferð. Hann kom víða við, kvað sjúkdóm- inn sjaldgæfan — 10 tilfelli á hver 100.000 væri algeng viðmiðun. Hérlendis væru innan við 20 greindir með sjúkdóminn sem hann vissi um. Einkenni væru mjög sveiflukennd, en gætu orðið mjög alvarleg fyrir sjúklinginn, sem t.d. allt að því missti mál þegar verst gegndi. Á eftir erindi dr. Sigurðar voru líflegar umræður og hann svaraði fyrirspyrjendum fljótt og vel. Stofnun félagsins var því næst samþykkt sam- hljóða og lög þess sömuleiðis. Tillaga kom fram um að félagið sækti um aðild að Öryrkjabandalagi Islands og var hún einnig samþykkt samhljóða. Stjórn hins nýja félags skipa: Ólöf S. Eysteinsdóttir formaður, Guðrún Þorgeirsdóttir gjaldkeri og séra Hjalti Guðmundsson ritari. Til vara í stjórn er: Steinunn Guðmundsdóttir. Endur- skoðendur voru kjörnir: Eyjólfur Eysteinsson og Þórey Gylfadóttir. Formaðurþakkaði fólki hinarfrábæru undirtektir, fagnaði stofnun hins nýja félags og síðan var sezt að veglegum kaffiveitingum í boði undirbúnings- hópsins. Stofnfélagar voru við stofnun um 38 alls en von var á fleirum fljótlega. Á aðalfundi ÖBI. í haust verður svo tekin fyrir aðildarumsókn félags- ins. H.S. Steinunn beðin velvirðingar Leiðrétting ein og afsökun- arbeiðni féll niður í síðasta tölu- blaði. I fyrsta blaði ársins birtist falleg afmæliskveðj a frá Steinunni Finnbogadóttur til Ólafar Ríkarðs- dóttur. En þar urðu á mikil mistök m.a. þau verst að í síðustu línu var sjálfsbjörg rituð með stórum staf öfugt við alla merkingu. Og kemur hér kveðjan eins og Steinunn vildi kveðið hafa. Gáfna miðill gæfu barn geislum stráir veginn þroskast vegur þakkar gefur þeim er sjálfsbjörg þrá. Bezta afsökunarbeiðni. Ritstjóri. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJAB ANDALAGSINS

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.