Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Page 8

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Page 8
Helga Ingólfsdóttir starfsm. SPOEX Af vettvangi SPOEX Fræðslu- og félagsmál Fræðslufundir hafa alla tíð verið verið ofarlega á verkefnalista stjómar Samtakapsoriasis- og exemsjúklinga, SPOEX, enda raunin sú að fátt er félagsmönnum nauðsynlegra en að kunna sem best skil á sjúkdómi sínum og fylgjast með nýjungum í lækninga- meðferðum. Aukin þekking víkkar og sjóndeildarhring þeirra, eykur umburðarlyndi og styrkir þá í baráttunni gegn fordómum með- al samborgara. I vor var gert stærra átak í fræðslumálum en þekkst hefur í 20 ára sögu SPOEX, er 8 fræðslufundir voru haldnir í jafnmörgum bæjum víða um land, með á ann- að hundrað fé- lagsmönnum á þriggja mánaða tímabili frá 16. janúar til 24. apríl. Bæirnir sem sóttir voru heim voru: Stykkishólmur, Akureyri, Sauðárkrókur, Selfoss, Akranes, Keflavík, Vestmannaeyjar og Isa- fjörður. Má heita að stjórnarmenn SPOEX hafi verið á faraldsfæti um flestar helgar á þessum þrem mánuðum, því stjómarformaður og einn eða fleiri stjórnarmenn fylgja jafnan aðalfyrirlesaranum á fundunum og fræðaranum: húðsjúkdómalæknin- um, og greinafrá starfi félagsins. Jafn- framt var ný fræðslumynd um psoria- sis sýnd á þessum fundum og stór- felldu magni af kynningarbæklingum um psoriasis og exem og Fréttabréfi SPOEX dreift meðal fundarmanna og sent heilsugæslustöðvum um land allt og bókasöfnum. Loks var litríku kynn- ingarplakati dreift í allt að 2000 ein- tökum og er það nú komið upp við sundlaugar, íþróttamannvirki og heilsugæslustöðvar um allt Vestur-, Norður- og Suðurland. Eins og sjá má af upptalningunni hér að ofan hafa Austfirðingar ekki enn komist á blað yfir fræðslufundi SPOEX 1993. Á því verður ráðin bót þegar í haust og eru nú í undirbúningi fundir sérfræðinga og stjómarmanna með heimamönnum á þremur stöðum þar eystra. Einnig er fyrirhuguð kynning í skólum, og verður farið að huga að þeim málum í haust. Á vettvangi félagsmála hefur ýmislegt áhugavert borið við það sem af er árinu. Nefnum við þar fyrst sjálfshjálparhópana sem komið hafa saman reglulega frá því í vor í húsakynnum SPOEX í Bolholti 6 og rætt vandamálin sín í milli undir stjórn Dagnýj ar Elsu Einarsdóttur, sem hefur sérstaklega kynnt sér slíka starfsemi. Félagsmenn hafa sýnt mikinn áhuga á þessu starfi Dagnýjar Elsu og aðsókn aðfundunumhefurveriðframaröllum vonum. Fundir hafa verið vikulega nema yfir sumarmánuðina er þeim var fækkað þannig að þátttakendur komu saman einu sinni í mánuði, en með haustinu verður þeim fjölgað á ný og starfinu haldið áfram af fullum krafti. Um sjálfshjálparstarfsemi sem þessa er það að segja að hún verður æ vinsælli meðal psoriasisfélaga víða um heim, eins og sést t.d. á því að þýsku samtökin halda upp á 20 ára afmæli sitt í október í haust með ráðstefnu undir heitinu „Sjálfshjálp og vísindi“. Ný og betri aðstaða við Bláa lónið í ágúst var opnuð ný meðferðar- aðstaða fyrir psoriasis- og exem- sjúklinga við Bláa lónið. Var félags- mönnum SPOEX boðinn ókeypis aðgangur fyrsta mánuð starfsem- innar, en eins og margir vita hafa félagsmenn og aðrir húðsj úklingar sótt sér heilsubót í lónið allt frá árinu 1978 er stjórn SPOEX hafði fyrst afskipti af því. Það er Heilsufélagið við Bláa lónið (HBL) sem stendur að þessum fram- kvæmdum á svæð- inu og sér um reksturinn. Nýja aðstað- an er eingöngu ætluð húðsjúklingum, innlendum og erlendum, og verður öll starfsemi undir eftirliti húðsjúkdóma- læknis. I lýsingu Gríms Sæmundsen, framkvæmdastjóraHBL, áaðstöðunni kemur m.a. fram að sjúklingar geta stundað lækningaböð í sérstakri Bláalónslaug og þar er einnig boðið upp á ljósameðferð sem er svo nauð- synleg öllum húðsjúklingum. Þá eru þar Bláalónsnuddpottar og kísileðju- pottar og eimgufa í hraunhelli og að sjálfsögðu fullkomin búnings- og baðaðstaða, hvíldarherbergi og setu- stofa. Þegar þetta er ritað hefur skrif stofa SPOEX afgreitt 33 skírteini til félags- manna sem haft höfðu samband og óskað eftir að nýta þessa nýju meðferð- araðstöðu fyrsta opnunarmánuðinn. Norrænt og alþjóðlegt samstarf Fyrir 7 árum gerðu samtök

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.