Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Page 15
Tíðindi í textasímamálum
Hinn 25. j úní sl. var boðað til fundar
af Póst- og símamálastofnun til
kynningar á nýjum hugbúnaði fyrir
PC-tölvur, sem hentað gæti heyrnar-
lausum og heyrnarskertum varðandi
textasíma. Að þessum kynningarfundi
var mjög myndarlega staðið og
boðið hinum ýmsu aðilum er þessu
tengjast m.a. frá Félagi heyrn-
arlausra, Heymarhjálp, Heymar-
og talmeinastöð, Samskipta-
miðstöð, Foreldra- og styrktar-
félagi heyrnardaufra og svo frá
Öryrkjabandalagi íslands. Því var
undirritaður fylgisveinn for-
mannsins á fundi þessum og þótti
við hæfi þar sem hann er jafn-
ófróður um alla tölvutækni og for-
maðurinn er gjörfróður.
Fundurinn hófst með ávarpi
Ólafs Tómassonar póst- og síma-
málastjóra, en ávarpið í heild fer hér á
eftir:
A varpsorð póst- og símamálastjóra:
„Ástæða þess að Póstur og sími
kallar saman til þessakynningarfundar
hér í dag er sú að nú er lokið á þýðingu
á textasímaforritinu NOTEKS, en
forrit þetta er sérstaklega hannað með
þarfir heyrnarskertra og heymarlausra
í huga. Með forriti þessu er hægt að
nota allar IBM samhæfðar PC tölvur,
sem textasíma en hingað til hafa
heyrnarskertir notast við textasíma af
bandarískri gerð sem þóttu mikil
bylting á sínum tíma, en þykja nú
úreltir. Með þessum textasímum gátu
heyrnarskertir aðeins haft samskipti
við þá sem höfðu sams konar síma en
með nýja forritinu geta þeir haft
samband við alla þá tölvueigendur
sem hafa NOTEKS og tölvuna sína
tengda með upphringingamótaldi.
Miðað við þá almennu tölvueign sem
er hér á landi ætti að vera hægt að
auðvelda heyrnarskertum aðgang að
ýmiss konar þjónustu sem þeim sem
heyra stendur daglega til boða og þykj a
sjálfsagðar t.d. upplýsingaþjónustu
ýmiss konar, tölvubanka auk sam-
skipta við fyrirtæki og stofnanir.
Textasímaforritið auðveldar einnig að
sjálfsögðu dagleg samskipti einstakl-
inga innan þessahóps hvers við annan.
Með NOTEKS skapast einnig
möguleiki til samskipta við útlönd, en
það var ekki hægt með gamla
símanum.
Þegar þetta forrit sem hannað var
í upphafi af starfsmönnum á rannsókn-
arstofnun norska símans (Televerkets
Forsknings Institutt) var fyrst kynnt á
fundi í NFTH sem er norræn nefnd
sem er ráðgefandi og sér um upplýs-
ingastreymi í málefnum sem snerta
fjarskiptamál fatlaðra, vakti það strax
mikla athygli og var fljótlega ákveðið
að Póstur og sími hefði forgöngu um
að þýða forritið yfir á íslensku og
koma því í tilraunanotkun hér á landi.
Nokkrir gallar komu fram í fyrstu
útgáfu fomtsins og var því ákveðið að
fá norskt hugbúnaðarfyrirtæki til að
endurhanna það og lagfæra.
Við hönnun forritsins var haft í
huga að gera öll samskipti með þessum
nýja búnaði sem líkust því sem um
venjulega notkun á síma væri að ræða.
Endanleg gerð forritsins lá loks fyrir
nú í vor og var þá hafist handa við að
þýða forritið upp á nýtt og aðlaga það
íslenskum aðstæðum, ganga frá notk-
unarleiðbeiningum o.fl. Að verki
þessu hafa aðallega unnið þeir Gylfi
Már Jónsson og Kristinn Jóhannesson,
starfsmenn Pósts og síma.
Eins og ykkur er kunnugt hefur
Póstur og sími um nokkurt skeið rekið
textasímaneyðarþjónustu á Ritsím-
anumíReykjavíktilað auðveldasam-
skipti milli þeirra sem nota gömlu
textasímana og þeirra sem heyrandi
eru. Með tilkomu þessa nýja forrits og
almennri notkun á þessum nýju texta-
símum verður þjónusta þessi auðveld-
ari og væntanlega minna notuð þegar
til lengri tíma er litið þar sem bein
samskipti milli heymarlausra og þeirra
heyrandi eru auðveldari.
Póstur og sími hefur staðið straum
af öllum kostnaði vegna þessa verks
sem hefur orðið umfangsmeira en
áætlað var í fyrstu auk þess sem
notkunar- og dreifingaiTéttur á
forritinu hefur verið keyptur af
norska símanum.
Stjóm Pósts og síma hefur
ákveðið að færa Félagi heyrn-
arlausra fyrsta eintakið af end-
anlegri gerð NOTEKS forritsins
ásamt dreifingarrétti forritsins að
gjöf í þeirri von að það geti
auðveldað félagsmönnum ykkar
og öðrum þeim sem búa við skerta
heyrn samskipti við hvem annan
og þá sem heyrandi eru.
Öll notkun og dreifing forrits-
ins er ykkur því heimil og má skoða
framlag þetta sem stuðning Pósts og
síma við starfsemi ykkar.“
að var Anna Jóna Lárusdóttir for-
maður Félags heyrnarlausra,
sem veitti forritinu viðtöku og færði
Pósti og síma einlægar þakkir fyrir.
Einnig þakkaði Arnþór Helgason
form ÖBÍ. velvild og stuðning Pósts
og síma við málefni heyrnarlausra.
Gy lfi Már Jónsson yfirtæknifræðingur
sagði svo frá þróun NOTEKS-hugbún-
aðarins og notkunarmöguleikum, en
Kristinn Jóhannesson rekstrarstjóri
kynnti hugbúnaðinn enn nánar.
Ekki ætlar tölvuóviti sér þá dul að
rekja frásögn þeirra, en ljóst að þeir
sem þarna höfðu á þekkingu hrifust
mjög af.
Miklar umræður urðu um kynning-
arerindin, en þó einkum hversu heyrn-
arlausir gætu nú komið á skiptum
textasíma frá þeim gömlu úr sér
gengnu yfir í þá nýju með þessum
góða hugbúnaði og fullkomna.
Fram kom að nær helmingur þeirra
200 textasíma, sem heyrnarlausir
hefðu á sínum tímafengið væri í lama-
sessi.
Mikil ánægja var með þessa
kynningu svo og rausn og skilning
Pósts og síma á þessum mikilvægu
málefnum heymarlausra.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS