Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Qupperneq 23

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Qupperneq 23
safnaði öllum þeim gögnum sem fengust afhent. Reyndist það mjög gagnlegt. Einnig fann ég margan fróðleik á bókasöfnum sem stoð var í. Eftir að landlæknisembættið hafði lokið sínum þætti hafði ég samband við Helga Seljan og Karvel Pálmason og fékk að ráðfæra mig við þá. Á þeim tíma vorum við hjónin mjög vonsvikin, fannst að niðurstaða landlæknisembættisins og Læknaráðs íslands væri slík að við gætum engan veginn við unað. Karvel gaf mér þá ráð sem dugað hefur mjög vel. — Að láta allt fara fram skriflega og gæta þess að fá skrifleg svör. Fundum við á þeim tímamótum, að vissulega eru til menn sem reynast öðrum vel í raunum. Málið var lagt fyrir Áma Guðjónsson hrl. til skoðunar. Árni Guðjónsson benti á lögfræðistofu Ragnars Aðalsteinssonar hrl., sem skoðaði málið frá 3. okt. 1990 til 11. júní 1991. Þá hringdi Ragnar Aðalsteinsson hrl. til undirritaðrar og sagði „að sér sýndist málið erfitt en visst horn í málinu sé þáttur ákveðins læknis og hann vilji ekki taka málið að sér vegna persónutengsla sinna við þann lækni“. Nú hafði mál V. V. verið í stöðugri skoðun og umfjöllun frá árinu 1989 — tvö ár liðin og málið hafði ekkert þokast. Sú raunaganga sem V.V. og við fjölskyldan höfðum mátt ganga stöðugt frá árinu 1973 hafði ekkert lagast en að þurfa að berjast við landlæknisembættið og læknana fyrir mannréttindum í þessu máli til viðbótar öllu veikindastríðinu, áhyggjunum og vonleysinu finnst okkur hjónunum ómannúðleg meðferð. Hvenær stendur einstaklingur berskjaldaðri við að berjast fyrir rétti sínum en einmitt þegar heilsan brestur? Við veltum fyrir okkur, hvort ekki hefði verið nauðsynlegt í máli eins og V. V. að leita umsagnar hlutlausra, sérfróðra aðila utan landsteinanna, þar sem vitað er að landið okkar er lítið, hópur sérfræðinga í læknastétt fámennur og virðist standa þétt saman ef alvarleg mál koma upp? Þegar við fengum niðurstöðu Ragnars Aðalsteinssonar hrl. varð það okkur mikið reiðarslag. En þegar neyðin er stærst er hjálpin oftast næst. Góðir vinir reyndust okkur ómetanlegar hjálparhellur. Við fórum með málið til umboðsmanns Alþingis, Gauks Jörundssonar,ogtilheilbrigðisráðherraþáverandi,Sighvats Björgvinssonar. Málið var sent til ráðherranefndar um ágreiningsmál samkvæmt 3. gr. laga nr 97/1990. Ragnar Hal ldór Hall formaður nefndarinnar benti okkur á að leita lögfræðiaðstoðar. Jón Steinar Gunnlaugsson hrl. hefur verið okkar lögfræðingur frá desember 1991. Hann hefur reynst okkur mikill vinur og aðstoð hans var okkur sérstaklega dýrmæt. Málalok urðu þau að Ragnar Halldór Hall og ríkislög- maður Gunnlaugur Claessen hrl. gengu til samn- inga um bótagreiðslu til V. V. á grundvelli heimildar í 6. gr. fjárlaga fyrir árið 1993. Gengið var formlega frá málinu 21. júní 1993. Við vorum sátt við niðurstöðu málsins og fannst hún sanngjörn. Heilsan verður aldrei keypt fyrir fjármuni. Þessi fjögur seinustu ár hafa vissulega reynt mikið á V.V. og okkur í fjölskyldu hans. Björtu hliðarnar voru: Við vorum lánsöm að hafa góðan heimilislækni sem hefur reynst okkur einstaklega vel. Á raunagöngu okkar höfum við kynnst mörgu drengskaparfólki sem stendur vörð um að réttindi hins almenna borgara séu ekki fyrir borð borin. Það sem rekið hefur okkur áfram í gegnum þetta mál er sú vissa, að ef við létum kyrrt liggja yrði sagan ekki krufin og þá gæti slík harmsaga aftur gerst. V egna al varlegra veikinda V. V. hef ég lengst af séð um að halda utan um málið fyrir hans hönd. Sorgin á sér margar hliðar. Fyrst eftir að sjúkdómsvaldurinn greindist var ég alveg yfirþyrmd af reiði og sorg. Mér fannst ég vart geta hugsað skýrt fyrir reiði. Eftir reiðistigið komst ég að ákveðinni niðurstöðu. Að horfa frarn á veginn og leggja áherslu á, að af harmsögu okkar megi gott af leiða fyrir þá sjúklinga sem eftir koma. Erna F. Baldvinsdóttir. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.