Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Blaðsíða 29
Helgi Hróðmarsson fulltrúi:
Samstarf Landssamtak-
anna Þroskahjálpar og
Öryrkj abandalags íslands
Hér verður fjallað um nokkur
þeirra verkefna sem Samvinnunefnd
Landssamtakanna Þroskahjálpar og
Öryrkj abandalags I slands hefur unnið
að eða styrkt frá hausti 1992 til hausts
1993. Sum verkefnin hafa skapað sér
fastan sess í hugum fólks enda hefð
komin áframkvæmd þeirra. En einnig
hefur verið leitast við að róa á fleiri
mið með það í huga að ná fram stefnu-
málum samtakanna.
HEIMSÓKNIR í SKÓLA
Heimsóknir í grunnskóla Reykja-
víkur og nágrannaby ggðanna til kynn-
ingar á málefnum fatlaðra eru orðnar
fastur liður í starfi Samvinnunefndar.
í heimsóknunum eru samtök fatlaðra
ky nnt, hlutverk þeirra og ýmis verkefni
sem þau vinna að. Þá er rætt um
blöndun og ýmis hugtök skýrð sem
tengjast málefninu. Fram hefur komið
hjá börnunum í 5. bekk, sem eru 10
ára, að mikil þörf er fyrir kynningu
sem þessa. í ferðimar fer fatlað fólk
sem segir frá reynslu sinni af skólum,
vinnustöðum, notkun hjálpartækja og
fleira. Fjörugar umræður hafa orðið
og margar spurningar vaknað.
ALþJÓÐLEG RÁÐSTEFNA
Ákveðið hefur verið að halda
alþjóðlega ráðstefnu um málefni
fatlaðraíReykjavík 1.—3.júní 1994.
Efni ráðstefnunnar verður: „Eitt
samfélag fyrir alla“. Ráðstefnan er
skipulögð af Landssamtökunum
Þroskahjálp og Öryrkjabandalagi
íslands auk samtaka frá Bandaríkj-
unum sem nefnast United World
Partnership on Developmental Dis-
abilities.
í vinnuhópi vegna ráðstefnunnar
sitja fyir hönd Þroskahjálpar Ásta B.
Þorsteinsdóttirog Sigrún Sveinbjöms-
dóttir og fyrir hönd Öryrkjabanda-
Helgi Hróðmarsson.
lagsins Arnþór Helgason og Haukur
Þórðarson. Ásta varráðin starfsmaður
ráðstefnunnar, auk þess sem hún er
formaður nefndarinnar. Starfsmaður
nefndarinnarer Helgi Hróðmarsson. I
tengslum við ráðstefnuna verður
sýning ábúnaði og hjálpartækjum fyrir
fatlað fólk. Ráðstefnan er án efa viða-
mesta verkefni sem samtökin hafa
staðið fyrir í sameiningu og hér er um
gífurlega kostnaðarsama framkvæmd
að ræða. Þess vegna hefur verið leitað
til fjölda styrktaraðila auk þess sem
Ferðaskrifstofa Islands mun vinna,
ásamt nefndinni, að undirbúningnum.
Mikil vinna fer í undirbúning ráðstefn-
unnar næstu mánuði. Það er því ósk-
andi að hún skili tilætluðum árangri
og verði grunnur til að byggj a á áfram-
haldandi baráttu í málefnum fatlaðra.
HEIMSÓKN REIÐÞJÁLFARA
I mars komu til landsins tvær
finnskar konur, Solveig Ingo og
Susanne Ingman Friberg. Þær hafa
unnið við reiðþjálfun fatlaðs fólks þar
sem íslenski hesturinn hefur verið not-
aður. Þær heimsóttu sjúkraþjálfunar-
staði og kynntu aðferðir sem þær hafa
notað. Þá héldu þær fyrirlestur í
Háskóla Islands þar sem fjallað var
um hvemig íslenski hesturinn nýtist
sem sjúkraþjálfunartæki; reiðmennsku
sem kennslutæki; markmið með reið-
mennsku og annað sem tengist reið-
mennsku. Heimsóknin varkærkomin
og góður undirbúningur fyrir starf
sumarsins.
RFJDNÁMSKFIÐ
I sumar voru í gangi reiðnámskeið
að Reykjalundi, eins og undanfarin
sumur, fyrir þá sem þurfa á sérstakri
aðstoð að halda. Framkvæmdastjóri
námskeiðanna er Sigurveig Magnús-
dóttir. Á námskeiðunum er farið í
stutta reiðtúra og leiki auk þess sem
undirstöðuatriði varðandi reið-
mennsku og meðferð hestsins eru
kennd. Þátttakendur kynnast hreyfing-
um hestsins, viðbrögðum hans og
hvemig bera skuli sig að við stjórnun
hestsins. Farið er ítarlega í alla hluti
sem snerta hestamennsku, svo sem
ásetu, taumhald, gangtegundir og ein-
kenni hestsins. Þá eru gerðar bæði
verklegar og bóklegar æfingar. Að
sögn Sigurveigar má nota reiðaðferð
til þess að þjálfa skert jafnvægi, við-
brögð, samhæfingu og styrk vöðva.
Þannig er bæði um líkamlega og and-
lega örvun að ræða. Ásta B. Péturs-
dóttir, þroskaþjálfi starfar einnig með
Önnu og sér um „hippotherapiu" þar
sem hesturinn er sérstaklega notaður
sem þjálfunartæki. Þátttaka á nám-
skeiðin hefur aukist mjög undanfarin
ár. Af þeim sökum var ákveðið að láta
reyna á hvort þessi starfsemi gæti far-
ið fram einnig yfir vetrartímann. Sótt
hefur verið um styrki til nokkurra
aðila vegna þessa.
SÝNING Á VEGUM MENCAP
Sýning á verkum þroskahefts fólks
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS