Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Síða 48

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1993, Síða 48
Sýnishorn afvöruúrvali kapaldeildar. Starfsmaður Örtækni. Sýnishorn frá samsetningardeild. Örtækni • • / Tæknivinnustofa O.B.I. Tæknivinnustofa Öryrkjabandalagsins var stofnuð í nóvember 1976 og var þá í eigu Hússjóðs Öryrkja- bandalagsins. í dag eru vinnustofurnar, Örtækni og Saumastofan, í eigu Öryrkjabandalags íslands. í upphafi var aðallega um að ræða framleiðslu rafeindatækja, svo sem gjaldmæla o.fl. en sfðari árin hefur megin- framleiðslan verið tölvukaplar og samsetning tölvubretta fyrir rafeindatæki, sem unnin eru fyrir ýmis fyrirtæki. Að öðru leyti tökum við að okkur allskyns verkefni fyrir bæði lyrirtæki og einstaklinga þar sem m.a. er krafist fínvinnu og nákvæmni. Helst er sóst eftir verkefnum sem ganga jafnt og þétt um nokkurn tíma svo hægt sé að þjálfa upp færni og nákvæmni innan vinnustaðarins. Örtæknikaplar er sú deild sem framleiðir og flytur kapla og jaðarbúnað fyrir tölvur. Framleiðslan er aðallega fólgin í smíði sérkapla, sem yfirleitt fást ekki af lager, en einnig eru fluttar inn allar algengustu gerðir tölvukapla frá Taiwan og seldar á góðu verði bæði í heildsölu og smásölu. Helstu viðskiptavinir eru tölvusalar um allt land. Hjá Örtækni vinna nú 13 starfsmenn, 3 í fullu starfi en 10 í hálfu starfi. Laun að lokinni þjálfun miðast við grunn- taxta Iðju, en oftast ílendast starfsmenn Örtækni hjá fyrirtækinu um lengri tíma. Til að geta veitt fleiri öryrkjum atvinnu þurfum við á hentugum verkefnum að halda og biðjum við þig, lesandi góður, að líta nú í kringum þig og benda öðrum á okkur, eða hafa samband við okkur ef þú veist af hent- ugum verkefnum. Ef þig vantar kapal eða annan tengi- búnað fyrir tölvuna þína, borgar sig að hafa samband við okkur áður en þú kaupir annarsstaðar. Það er mikil þörf á starfstækifærum fyrir öryrkja. Einar Aðalsteinsson framkvæmdastjóri - sími 91-26832

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.