Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Síða 2
fréttabréf
ÖRYRKJABANDALAGS
ÍSLANDS
2. TÖLUBLAÐ
11. ÁRGANGUR 1998
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Helgi Seljan
Umbrot og útlit:
K. Fjóla Guðmundsdóttir.
Prentun:
Steindórsprent/
Gutenberg h.f.
Forsíðumynd:
Sonja Jónasdóttir.
Aðrar ljósmyndir:
Hafliði Hjartarson o.fl.
Frá ritstjóra
Enn eitt blaðið er nú útgefið og áfram sent til allra okkar ágætu
lesenda. Allt frá upphafi hefur Fréttabréf Öryrkjabandalagsins
verið lesið inn á hljóðsnældur fyrir blinda og sjónskerta. Það hafa
alla tíð annast þau Asgerður Ingimarsdóttir, framkvæmdastjóri
bandalagsins og ritstjórinn. A því verður fram-
hald ef allt fer sem ætlað er.
Asgerður ritar einmitt forystugrein þessa blaðs
nú, sem er allrar athygli verð eins og allt annað
er hún skrifar og skráir. Hún hefur margar mæta-
góðar forystugreinar ritað í þetta blað og lagt því
til mikið af afbragðsefni öðru og von ritstjóra sú
að eitthvert framhald verði þar þó óneitanlega
verði nú nokkur skil þar sem Ásgerður hætti
framkvæmdastjórastarfi 1. júní sl. Ritstjóri tók við hennar vanda-
sama og margþætta starfi og vonar það eitt að hann megi við það
ráða. Enn um sinn hyggst hann halda ritstjórninni áfram. En hér
hafa orðið mikil vatnaskil á vettvangi bandalagsins því Ásgerður
hafði hér starfað í 28 ár með einstakri prýði, atorku og samvisku-
semi.
Sannarlega er eftirsjá að slíkri öndvegispersónu úr starfi en von
okkar sú að við megum í einhverju njóta hennar kærkomnu krafta
og blaðið m.a. bera þess vitni. Henni fylgir heit þökk.
Á vit sólar og sumars með síungri þrá er nú haldið. Megi sumarið
færa ykkur öllum gnótt gjafa, sólbros og sumarblóm með ilm af
gróðri og glaðan söng kátra kjarrfugla. Auðnan vísi ykkur veg og
lýsi leið.
H.S.
EFNISYFIRLIT
Frá ritstjóra....................................2
Aftur kemur vor í dal............................3
Framkvæmdastjóraskipti...........................4
Tvö ljóð.........................................4
Utskrift í Hringsjá..............................5
Bók á íslensku um parkinsonveiki.................6
Forstöðumaður prjóna- og saumastofu..............7
Afmælisrit Styrktarfélags vangefinna.............8
Hlerað............. 10, 13, 18, 35, 37, 39, 40, 46, 48
Getið góðs liðsmanns............................10
Fegurðin og boðaföllin..........................11
Vegavinna.......................................12
Aldarfjórðungur á Grensásdeild..................14
Stærsta verkefni sveitarstjórna.................15
Sjálfsbjargarheimilið 25 ára....................16
Stöku stökur....................................18
Að námi loknu...................................19
Skerðingu beitt.................................20
Gamall maður nýtur sín vel......................22
Norræna ráðið í málefnum fatlaðra...............23
Heilablóðfallseining............................24
Kynning.........................................25
Hinn gullni meðalvegur bestur...................26
Jóker - Hvað er nú það?.........................27
Þemahefti um áfengi............................28
Hundahald......................................29
Bauð örlögunum birginn.........................30
Blöð rósarinnar................................35
Nokkur sýnishorn...............................36
Hugleiðing.....................................36
Kynning........................................37
Frá Sjóði Odds Ólafssonar......................38
MG-sjúkdómurinn................................39
Heilagengið....................................40
Kveðja frá ÖBÍ.................................41
Til upplýsingar listunnendum...................41
Viðhorf........................................41
Tökum á - tækin vantar.........................42
Ein örlítil saga...............................42
Hvað er Perthes?...............................43
Að mega vera í fýlu............................43
Gömul bæjarnöfn................................43
Af stjómarvettvangi............................44
Rittúlkun......................................46
Styrktarfélag vangefinna.......................47
Styrkir ÖBÍ....................................48
Boð frá Bardo..................................48
Merk tímamót í ferlimálum fatlaðra.............49
Mannréttindaskrifstofa Islands.................49
Þjálfun blindrahunda...........................49
I brennidepli..................................50
2