Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Page 5
Hluti útskriftarhópsins.
ÚTSKRIFT
f HRINGSJÁ
Hinn 14. maí sl. fór fram
útskrift nemenda í Starfs-
þjálfun fatlaðra í Hring-
sjá.Guðrún Hannesdóttir forstöðu-
maður flutti hið ágætasta ávarp. Nú
væri fjórtándi hópurinn að útskrifast
og sá fjórði úr Hringsjá. Nú útskrif-
uðust 12 og hefði þá alls 141 útskrifast
frá Starfsþjálfun fatlaðra og væri það
fríður hópur.
Hún minnti á afmælishátíðina, þar
sem margt hefði verið sér til gamans
gert. Gat einnig um þjónustusamn-
inginn milli Öryrkjabandalagsins og
félagsmálaráðuneytis um Starfs-
þjálfun fatlaðra sem þýðingarmikill
væri og gæfi fyrirheit um ný sókn-
arfæri.
Hún sagði 17 nýja nemendur hafa
komið inn í janúar, nokkrir helst úr
lestinni, aðrir komið í þeirra stað.
Minnti síðan á ýmsa viðburði
vetrarins. Sagði frá námskeiðahaldi
vetrarins m.a. námskeiði í samvinnu
við Dagvist Sjálfsbjargar, sömuleiðis
námskeiði fyrir þá sem sótt höfðu í
Starfsþjálfun fatlaðra, en ekki komist
að. Einnig aðstandendanámskeið í
samvinnu við Tölvumiðstöð fatlaðra.
Nemar hefðu séð um mötuneyti fyrir
þátttakendur námskeiðanna. Einn
fyrrum nemandi var í starfsþjálfun hjá
Hringsjá í símaþjónustu. Asókn í
námskeið er afar mikil því nú liggja
fyrir yfir um 80 umsóknir. Minntist
svo á Hringsjárnafnið sem tákn þess
að sýn yrði sem best til allra átta og
víðsýni væri ríkjandi.
Hún kvað árangur nemenda vissu-
lega ævintýri líkastan, en
áreynslulaust yrðu ævintýrin ekki
staðreynd smbr. piltinn sem vann
prinsessuna úr klóm drekans.
Enginn vinnur sigrana fyrir okkur,
það gerum við sjálf, sagði Guðrún.
Avarpaði svo 1. annar nemana,
sem hefðu lagt sig fram og tækju nú á
móti nýjum hóp með haustinu.
Afhenti svo þeim 16 sín prófskírteini.
Utskriftaraðallinn gengi nú á vit
nýrra ævintýra eftir að hafa hér fengið
bærilegt veganesti. Gat sérstaklega
um Fréttaþjálfann sem sýndi ágæt
tilþrif nemenda.
Munið að þið eruð ykkar eigin
gæfu smiðir, sagði Guðrún og afhenti
svo þessum 12 skírteini sín.
Margrét Margeirsdóttir færði
ámaðaróskir frá stjórn Starfsþjálfunar
fatlaðra.
Hér hafa nemendur fengið haldgott
nesti, hvort sem er til framhaldsnáms
eða starfa. Gróskan væri einstök, hér
væri í raun alltaf hátíð. Gerði þjón-
ustusamninginn að umtalsefni og
kvað Starfsþjálfun fatlaðra ekki geta
verið í betri höndum en hjá Öryrkja-
bandalaginu. Minnti sérstaklega á
hinn farsæla og gefandi þátt Asgerðar
Ingimarsdóttur í gegnum tíðina, fram-
lag hennar sem framkvæmdastjóra
Öryrkjabandalagsins ómetanlegt.
Nafnið Hringsjá væri og frá henni
komið. Færði Asgerði hlýjar framtíð-
aróskir. Asgerður þakkaði úr sæti sínu
og bað Hringsjár blessunar.
Helgi Seljan afhenti útskriftaraðli
bækur frá Starfsþjálfun - bók
Margrétar Margeirsdóttur: Paradís
ferðamannsins - Suður Afríka - land
tækifæranna. Bækurnar voru fagur-
lega áritaðar af Margréti sjálfri.
Isleifur Jónsson flutti kveðju- og
þakkarorð útskriftaraðals með góðum
undirtektum annarra nemenda sem
útskrifuðust nú. Söknuður væri vissu-
lega í hug en þetta hefði verið tími
góðrar lífsfyllingar, jafnvel lífgjafar.
Gæfa þeirra að hafa mátt teyga af
viskubrunni vísra kennara. Jákvæðni
þessa litla samfélags efst í huga.
Vitnaði til Marínar að betra væri að
horfa upp en niður, fram en ekki aftur.
Flutti kveðjur og óskir frá Dóru
Pálsdóttur sem erlendis var.
Færði kennurum svo fagra rós að
skilnaði. Ragnar Einarsson flutti
ávarp f.h. 1. annar nemenda og þakk-
aði sérstaklega hópnum sem var að
kveðja. Nemendur 1. annar færðu
útskriftaraðli og kennurum bók að
gjöf. Lokaorðin voru svo Guðrúnar
og síðan gæddu menn sér á góðum
veitingum. Héðan eru heillaóskir
hlýjar sendar. Vökult og veitult starf
er vissulega til fyrirmyndar. H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
5