Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Síða 10
um fjölskyldur, þar sem foreldrar eru,
annað eða báðir, þroskaheftir eða
seinfærir.
Bækur um líf einhverfra og fólks
með Asperger heilkenni eru kynntar
þarna m.a. Dyrnar opnast og Hér
leynist drengur sem áður hafa verið
hér kynntar. Einnig kynnir Bjarnveig
Bjarnadóttir bók sænskrar konu með
Asperger heilkenni: En riktig
mánniska. Vel væri þess virði að þessi
bók yrði þýdd á íslenzku.
Hjálpum fólki út á vinnumarkað-
inn nefnist viðtal við Guðrúnu Hann-
esdóttur forstöðumann Hringsjár.
Ekki þarf það efni frekar hér að kynna,
en Guðrún gerir glögga grein fyrir
starfinu og m.a. þeirri staðreynd að
um 70% af útskrifuðum nemendum
(alls yfir 120) eru í vinnu, námi eða
heimavinnandi með ungum börnum.
Minnt er fallega á hugamyndasmið
jólakortanna hjá Styrktarfélaginu,
Sólveigu Eggerz Pétursdóttur og
hennar góða hlut þar. Jólahátíð
gleðigjafans, André Bachmann fær
sína umfjöllun og svo eru fáein orð
um fólk, kynning stutt á starfsfólki hjá
félaginu í hinum ýmsu verkefnum.
Sömuleiðis er sagt frá námskeiði
félagsins um tengsl, virkni og þátttöku
fjölfatlaðra.
Lokin eru svo helguð ýmsum
ártölum í sögu félagsins, fróðlegt
mjög til aflestrar. Þau ein sanna og
sýna að vel hefur jafnan verið að verki
staðið og framsýni haldist í hendur við
stórhug og raunsæi. Styrktarfélagi
vangefinna og ritstjóranum Halldóru
Sigurgeirsdóttur er sannur sómi að
þessu glæsilega 58 síðna riti. Til
hamingju þið öll og megi heilladísir
áfram vaka yfir velferð ykkar.
H.S.
Hlerað í hornum
Öldruð kona kom til læknisins síns.
Hún var ellileg mjög í andliti en
afskaplega vel vaxin og hélt vexti
sínum mjög vel. Þegar hún kom svo
út frá lækninum var starfsbróðir hans
þar fyrir og á tal þeirra heyrði sú
aldraða á leiðinni út þó ekki ætti hún
nú að heyra það. Annarsagði: “Mikið
svakalega er þessi gamla kona vel
vaxin”. Þá svaraði læknir hennar:
“Já, hún væri bara eins og ung stúlka,
ef það væri búið að taka af henni
höfuðið”.
GETIÐ GÓÐS
LIÐSMANNS
Þórir Helgason yfirlæknir
Formálsorð:
Sigurður V. Viggósson form. Samtaka sykursjúkra kom þessum pistli á framfæri
við ritstjóra. Meginefni hans varðar Þóri Helgason yfirlækni á Landspítalanum,
göngudeild sykursjúkra, en hann mun nú vera hættur störfum. En hér kemur
pistill Sigurðar orðréttur:
Hann átti frumkvæði að stofnun Samtaka sykursjúkra hér á landi árið
1971. Fyrir forgöngu hans var hafin skipulögð þjónusta við sykursjúka
hér á landi með stofnun göngudeildar fyrir sykursjúka við Landspítalann árið
1974. Þórir hefur verið yfirlæknir við deildina frá stofnun hennar. Frá upphafi
hefur hann lagt áherslu á mikilvægi góðrar blóðsykur-
stjórnunar fyrir hina sykursjúku og lagt sig í líma við að
kenna þeim tökin á sjúkdómnum og örva til dáða í
baráttunni. Jafnframt hefur hann með eldmóði sínum og
kennsluhæfileikum tekist að hafa áhrif á læknastúdenta og
lækna til hagsbóta fyrir sykursjúka sem verða á vegi þeirra.
Það er ekki síst framsýni og atorku Þóris að þakka að Island
getur í dag státað af betra heilbrigði meðal sykursjúkra en
þekkist víðast annarstaðar, nokkuð sem birtist meðal annars
í mjög lágri tíðni fylgikvilla sykursýki. Hér á landi eru
blinda og nýrnabilun vegna sykursýki margfalt fátíðari en
í sambærilegum löndum. Þórir hefur lagt sérstaka áherslu
á mikilvægi fullkominnar sykurstjórnunar hjá þunguðum
konum með sykursýki og fylgt stórum hluta þeirra eftir með
frábærum árangri. Fyrir stofnun göngudeildar sykursjúkra
var burðarmálsdauði hjá sykursjúkum konum um 10%, á
áratugnum 1980-1989 var talan komin niður í 2,3% og frá
1983 hefur engin sykursjúk kona misst bam sitt við fæðingu.
Arangur Islands á sviði sykursýki hefur vakið alþjóðlega
athygli m.a. hjá Alþjóða heilbrigðismálastofnuninni, þar
sem menn hafa undrað sig á árangrinum.
Þrátt fyrir miklar annir í klínisku starfi, hefur Þórir látið töluvert að sér
kveða á vísindasviðinu. Þar ber hæst rannsóknir hans á orsakatengslum
milli neyslu á N-nítróso-samböndum í matvælum og insúlínháðri sykursýki.
Þessar rannsóknir hafa vakið heimsathygli, en Þórir var í raun með þeim fyrstu
í heiminum til að benda á efni í fæðu sem mögulegan orsakavald insúlínháðrar
sykursýki. I dag er þetta sá þáttur sem vísindamönnum þykir líklegastur, og er
oft vitnað í rannsóknir Þóris, sem bæði byggðust á faraldsfræðilegum gmnni
og á dýratilraunum. Vitnað er í þessar rannsóknir í helstu kennslubókum um
sykursýki. Undir stjórn Þóris hafa ennfremur verið unnar merkar
faraldsfræðilegar rannsóknir á insúlínháðri sykursýki og á fylgikvillum
sykursýkinnar.
Þess má líka geta að þrír aðilar frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni komu
hingað til lands til að kynna sér með hvaða hætti íslendingar stæðu að eftirliti
og umönnun sykursjúkra, því ekki eingöngu er árangurinn undraverður, heldur
er kostnaðurinn aðeins um helmingur af því sem gengur og gerist. Hin ástæðan
fyrir því að þessi ferð var farin til Islands var sú að það átti að gera íslensku
aðferðina að leiðandi meðferð sykursjúkra út um heiminn.
Með bestu kveðju,
Sigurður V. Viggósson
form.Samtaka sykursjúkra
Þórir
Helgason
Sigurður V.
Viggósson
10