Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Blaðsíða 17
í haustferð Sjálfsbjargarheimilisins nieð Ferðaþjónustu fatlaðra.
Að í Fjörukránni í Hafnarfirði.
efni afar vel og er samtökunum til
sóma. Dagvistin flutti í nýtt og glæsi-
legt húsnæði í ágústmánuði 1994. Þar
með gafst íbúum Sjálfsbjargar-
heimilisins kostur á að sækja um dvöl
þar, sem þeir hafa í auknum mæli nýtt
sér. Skrifstofur Sjálfsbjargar, lands-
sambands fatlaðra og Sjálfsbjarg-
arheimilisins voru aðskildar um mitt
ár 1993. í október 1995 varnýtt skrif-
stofuhúsnæði fyrir Sjálfsbjargar-
heimilið tekið í notkun. Vel er nú búið
að þessum þætti starfseminnar. I árs-
byrjun 1996 yfirtóku sjúkraþjálfarar
heimilisins rekstur endurhæfingar-
stöðvarinnar. Frá sama tíma kaupum
við sjúkraþjálfun fyrir íbúa heimilis-
ins af endurhæfingarstöðinni sem
heitir nú Stjá, sjúkraþjálfun ehf. Hef-
ur það fyrirkomulag reynst vel í alla
staði.
✓
síðasta ári voru tvö íbúðar-
herbergi á 3. hæð heimilisins
sameinuð í eina stofu. Heilbrigðis-
og tryggingamálaráðherra gaf heimild
til þess að auka sameiginlegt rými
íbúa með þessum hætti. Hefur hin
nýja stofa reynst vel ekki síst þar sem
morgunverður og síðdegiskaffi sem
áður var snætt í matsal er nú snætt á
hverri hinna þriggja hæða heimilisins.
Nú bíðum við þess að fá heimild til
samskonar framkvæmdar á 4. og 5.
hæð. Með breytingunum á 3. hæð
hefur íbúðarherbergjum fækkað úr 45
í 43. Þar af eru skammtímarými 2
talsins.
En svo er það innihaldið sem öllu
skiptir í raun, þó allur umbúnað-
ur þurfi að vera sem bestur. Hvað
er um innri starfsemina að segja?
Hvað varðar breytingar á inni-
haldi þá em þær ekki síður mik-
ilvægar en ef til vill ekki eins sýni-
legar. Á 59. fundi stjómar Sjálfsbjarg-
arheimilisins 5. mars 1997 var sam-
þykkt skipulagsskrá fyrir heimilið.
Þar segir ma.: Sjálfsbjargarheimilið
er ætlað hreyfihömluðum er þarfnast
aðstoðar og stuðnings í daglegu lífi
sínu. Markmið heimilisins er að gera
íbúum þess kleift að vera eins sjálf-
bjargaogþeimerunnt. Þessskalgætt
að ákvörðunarréttur þeirra sé virtur,
tekið sé mið af þörfum hvers og eins
og stuðlað að því að þeir geti lifað
innihaldsríku lífi.
Samþykkt skipulagsskrárinnar átti
sér langan aðdraganda. Þannig var,
að í ársbyrjun 1994 hófst verkefni
undir yfirskriftinni “aukin lífsgæði-
aukin starfsgleði”. Markmið verkefn-
isins var eins og af yfirskriftinni má
ráða að reyna að auka lífsgæði íbúa
með öllum tiltækum ráðum og sam-
hliða skapa starfsmönnum betri starfs-
aðstæður og styðja þá í starfi svo sem
kostur væri. Á þessum árum hefur
margt tekist vel en alltaf má gera
betur. Nafni heimilisins var breytt úr
Vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar
í Sjálfsbjargarheimilið til að leggja
áherslu á að vilji okkar stendur til þess
að búa íbúum hér heimili og draga
sem mest við getum úr stofnunar-
yfirbragðinu. Heimilinu hefur verið
deilt upp í 6 einingar í stað 3ja áður,
sérstakur hópstjóri og tiltekið starfslið
tilheyrir hverjum hópi til að reyna að
skapa samfellu og jafnvægi í vinnu-
ferlið. Hver íbúi hefur sérstakan
tengilið sem er fyrirkomulag sem
reynst hefur afar vel. Starfsmanna-
klæðnaður var mjög fljótlega
aflagður. Sú breyting ein og sér hafði
mikil áhrif á allt yfirbragð starfs-
umhverfisins.
Starfsmannafræðsla hefur verið
aukin, til hagsbóta ekki einvörð-
ungu fyrir starfsmenn heldur og
einnig fyrir íbúa. Á haustmánuðum
1994 var okkur boðin aðild að sam-
starfi 13 danskra stofnana er vinna í
þágu hreyfihamlaðra á svipuðum
grunni og gert er hjá okkur. Höfum
við sótt fundi til Danmerkur og haldið
einn hér á landi síðan. Samstarf þetta
er okkur afar mikilvægt, víkkar sjón-
deildarhringinn og stuðlar að þróun í
starfi okkar hér. Starfsemi í dagvist
hefur á síðustu misserum tekið mikl-
um breytingum. Með aðild íbúa
heimilisins að dagvistinni hefur bæst
ný og jákvæð vídd inn í þeirra daglega
líf sem er, að ég tel, þeim afar mikil-
væg. Lögð er áhersla á að koma til
móts við þarfir yngri fatlaðra. Á síð-
asta ári var með stuðningi Reykjavík-
urborgar tveimur tilteknum fötlunar-
hópum boðið námskeið í dagvistinni.
Markmiðið með því var sjálfstyrking
einstaklinganna.
Og nú er afmælisár. Hvað á nú
að gera af því tilefni til
verulegra hátíðabrigða?
Eins og fyrr er frá greint eru í
sumar 25 ár síðan fyrsti íbúinn
kom til dvalar í Sjálfsbjargarheim-
ilinu. Af því tilefni hefur stjórn heim-
ilisins ákveðið að gera sem flestum
úr hópi íbúa kleift að fara í skemmti-
ferð til Danmerkur í sumar. í 25 ára
sögu heimilisins hefur slík ferð ekki
verið farin. Á Sjálfsbjargarheimilinu
búa um 40 íbúar, margir mikið fatl-
aðir, sem þurfa aðstoð við flestar
athafnir daglegs lífs. Til að það sé
gerlegt að fara í slíka ferð er nauð-
synlegt að hafa aðstoðarmenn með í
för. í því skyni hefur verið leitað til
starfsmanna heimilisins og þannig
reynt að tryggja að ferðin heppnist
sem best.
Við höfum fest okkur gistingu í
sumarhúsum sérhönnuðum fyrir fatl-
aða við austurströnd Jótlands og
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
17