Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Side 19
Marín Björk Jónasdóttir náms- og starfsráðgjafi hjá Hringsjá:
AÐ NÁMILOKNU...
Frá útskrift á liðnum vetri.
Eitt aðalmarkmiðið með
starfseminni hjá Hringsjá,
starfsþjálfun fatlaðra er að
búa nemendur undir störf á almennum
vinnumarkaði og
nám í framhalds-
skólum.
í tilefni af 10
ára afmæli Hring-
sjár nú í haust fór
fram ítarleg síma-
könnun meðal
nemenda sem
Marín Björk stundað hafa nám
Jónasdóttir hjá Hring-
—........ sjá.Tilgangur
könnunarinnar var að athuga hvað
fyrrverandi nemendur hefðu fyrir
stafni. Hvort þeir væru í vinnu, við
nám eða heimavinnandi. Jafnframt
því að athuga hvort þeir sem væru
heima væru að leita sér að vinnu eða
stefndu í framtíðinni aftur út á
vinnumarkaðinn. Akveðið var að
hringja í alla nemendur sem hefðu
lokið a.m.k. einni önn eða meira.
Heildarfjöldi eldri nemenda voru 136
nemendur þar af náðist í 128,68 karla
og 60 konur, eða 94% sem telja má
mjög góðan árangur í könnun sem
þessari.
Akveðið var að skipta svörunum
niður í fimm meginflokka og má sjá
þau hér fyrir neðan í töflu 1.
Þar sem 30% nemenda eru heima-
vinnandi og ekki að leita sér að vinnu
þótti forvitnilegt að athuga ástæður
sem þar lægju að baki í ljósi þeirra
markmiða sem sett eru hjá Hringsjá
og var því svörunum í fyrsta lið skipt
enn frekar niður eins og sést í töflu
tvö.
Til gamans má geta þess að af þeim
9 (allt konur) sem voru heimavinnandi
með lítil böm voru 7 með böm á fyrsta
ári. Einnig vitum við að nokkrir af
karlkynsnemendum okkar eiga einnig
börn sem eru á fyrsta ári. Hvað veldur
þessari skemmtilegu tilviljun skal
ósagt látið og læt ég lesendum eftir
að velta þessu nánar fyrir sér.
Af þeim nemendum sem voru
útivinnandi lék okkur forvitni á að vita
hvort það væru fleiri á almennum
vinnumarkaði en vernduðum vinnu-
stað og hvert starfshlutfall þeirra væri.
Niðurstöðurnar af þessum vanga-
veltum eru í töflu 3.
I stuttu máli má því túlka niður-
stöðu könnunarinnar svohljóðandi:
Af þeim 128 nemendum sem
náðist í voru eingöngu 8% þeirra að
leita sér að vinnu, 13% heimavinnandi
og stefndu ekki á að fara út á vinnu-
markaðinn og 5% gátu ekki svarað
því hvort þeir stefndu út á vinnu-
markaðinn aftur. Þannig að 74%
nemenda er að sinna þeim málefnum
sem þeir vilja, hvort sem um er að
ræða að vera heimavinnandi, í vinnu
eða námi.
Þessar niðurstöður eru mjög
ánægjulegar að okkar mati þar sem
eitt af markmiðum Hringsjár er að búa
nemendur undir störf á almennum
vinnumarkaði og nám í framhalds-
skólum.
I lokin vil ég svo þakka öllum
fyrrverandi nemendum fyrir einstak-
lega góðar móttökur í þessari könn-
un.
Marín Björk Jónasdóttir
Tafla 1.
Viðfangsefni: Fjöldi Hlutfall
1. Heimavinnandi ekki að leita að vinnu 39 30%
2. Heimavinnandi að leita að vinnu 10 8%
3.1 vinnu 52 41%
4.1 námi 21 16%
5. í vinnu og námi 6 5%
ALLS 128
Tafla 2.
Heima ekki að leita að vinnu: Fjöldi Hlutfall
a. Heimavinnandi með barn/ börn 9 23%
b. Voru í iðjuþjálfun, eða á leið í aðgerð 7 18%
c. Geta ekki unnið vegna fötlunar eða aldurs 17 44%
d. Gáfu ekki upp ástæður 6 15%
ALLS 39
Tafla 3.
Utivinnandi: Fjöldi Hlutfall
a. A almennum markaði allan daginn 25 48%
b. A almennum markaði hálfan daginn 22 42%
c. A vernduðum vinnustað allan daginn 1 2%
d. Á vernduðum vinnustað hálfan daginn 4 8%
ALLS 52
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
19