Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Síða 23
Norræna ráðið í
málefnum fatlaðra
Formálsorð Þóreyjar V.
Ólafsdóttur:
Þórey á sæti í stjórn ráðsins f.h.
Öryrkjabandalagsins.
Ráðið var sett á laggirnar á síðasta
ári í kjölfar breyt-
inga og endur-
skipulagningar á
Norrænu nefnd-
inni um málefni
fatlaðra (NNH).
Stefnt skyldi
að því að gera
störf að málefnum
fatlaðra sýnilegri,
tengja þau meira
stjórnmálum og
dreifa starfinu á liina ýmsu sam-
félagsgeira.
Hér fer á eftir útdráttur úr starfs-
reglum samþykktum af samstarfsráð-
herrunum.
Tilgangur
Norræna ráðið í málefnum fatlaðra
(Nordiska Handikappolitiska Rádet,
NHPR) er nefnd, sem er ráðgefandi og
stefnumótandi fyrir Norræna ráðherra-
ráðið, samstarfsaðila þess og stofnanir.
Ráðið á að efla norræna samvinnu
varðandi málefni fatlaðra á öllum þeim
sviðum þjóðfélagsins, sem máli skipta.
Það skal taka þátt í að gera að veruleika
sameiginleg pólitísk markmið í því
skyni, að fatlaðir nái jafnrétti og fullri
þátttöku í samfélaginu.
Starfsemi
Starfsemi ráðsins skal tengjast við-
fangsefnum sem heyra undir Norræna
ráðherraráðið og fara fram í samvinnu
við Norrænu samstarfsnefndina um
málefni fatlaðra (NSH).
Ráðið skal
* hafa ráðherraráðið sem grundvöll
og fá stuðning þeirrar stofnunar til
þess að pólitísk viðhorf í málum
fatlaðra verði lýðum ljós og tekið
verði tillit til þeirra í allri starfsemi
ráðherraráðsins
* eiga frumkvæði að pólitísku
framlagi til málefna fatlaðra bæði í
einstökum geirum og milli þeirra
* koma með greinargerðir og álit
fyrir Norræna ráðherraráðið í
málum sem hafa pólitíska
grundvallarþýðingu í málefnum
fatlaðra
* hjálpa til að efla norræna pólitíska
samvinnu í málefnum fatlaðra
* stuðla að því skipst sé á
upplýsingum og reynslu milli
Norðurlandanna í málefnum
fatlaðra, m.a. að því er varðar
Evrópusambandið og milli
grannsvæða
* vinna að því að farið verði eftir
meginreglum Sameinuðu
þjóðanna um sömu möguleika
fyrir fatlaða.
Samsetning ráðsins
íráðinueru 19 fulltrúar: 5erufull-
trúar samtaka fatlaðra, 5 eru fulltrúar
mismunandi geira samfélagsins, 5 eru
fulltrúar kjörinna stjórnmálamanna í
lands-, svæða- eða sveitarstjórnar-
pólitík, 3 eru fulltrúar sjálfstjórnar-
svæða og 1 er fulltrúi Norrænu sam-
starfsnefndarinnar í málum fatlaðra
(formaður nefndarinnar).
Skipun í ráð og geirakerfi
Samstarfsráðherrarnir skipuðu í
ráðið haustið 1997 á eftirfarandi hátt:
Fulltrúar samtaka fatlaðra voru til-
nefndir af Norðurlandaráði fatlaðra í
samvinnu við Öryrkjabandalag Norð-
urlanda. Stjómmálamennimirvorutil-
nefndir af Norðurlandaráði. Fulltrúar
mismunandi samfélagsgeira voru
tilnefndir af embættismannanefndum
Norræna ráðherraráðsins. Um er að
ræða vinnumarkaðs- og vinnustaða-
pólitík, samgöngur, húsnæði, mennta-
mál og rannsóknir og ennfremur
samstarfummenningarmál. Hverem-
bættismannanefnd tilnefndi 5 menn,
einn frá hverju landi. Einn þeirra sem
tilnefndur var í hveijum geira fékk sæti
í ráðinu, en hinir mynda e.k. tilvísun-
amet fyrir viðkomandi geira.
Fyrsti fundur ráðsins
Norræna ráðið í málefnum fatlaðra
hélt fyrsta fund sinn 13.nóv. 1997 í
Helsingfors. Á fundinum var tekin
ákvörðun um almenna starfsstefnu
fyrir árin 1998- 2000 og sérstakt
þemaár 1998.
Almenn starfsstefna 1998-2000
Með tilliti til þeirra forsendna og
möguleika, sem samsetning og umboð
ráðsins gefa, reynslunnar af fyrra nor-
rænu samstarfi og þess, að á Norður-
löndum ríkir víðtæk samstaða um mál-
efni fatlaðra, hefir Norræna ráðið í
málefnum fatlaðra samþykkt að eftir-
farandi atriði skuli mynda gmndvöll
fyrir starfið fyrstu árin. I samræmi við
umboð sitt og meginreglur Sþ um
sömu möguleika fyrir fatlaða vill ráðið
koma með hugmyndir og uppbyggilegt
framlag í pólitískt starf fyrir fatlaða;
hjá hverri einstakri þjóð, samnorrænt
og í Evrópusamstarfi.
Ráðið vill með starfi sínu, í sam-
ræmi við það hvernig Norðurlanda-
búar líta á mál fatlaðra, styðja tilraunir
einstakra þjóða til að gera að veruleika
regluna um ábyrgð hvers geira.
Ráðið vill efla regluna “aðgengi
fyrir alla” sem grunn fyrir pólitíska ný-
sköpun í mismunandi samfélags-
geirum.
Ráðið vill vinna “út á við” og m.a.
nota verðlaunasamkeppni til að örva
meðal þjóðanna starf, sem gerir sam-
félagið öllum aðgengilegt svo að það
nýtist öllum.
Þemaárið 1998
Norræna ráðið í málefnum fatlaðra
hefir ákveðið að vinna með þemaár til
þess að leggja sérstaka áherslu á
mikilvæg verkefni. Fyrir fyrsta starfs-
ár sitt hefir ráðið valið þemað “Að-
gengi fatlaðra að byggðum bólum”.
Ymis verkefni eru á þemaárinu
1998, m.a. áskorun til höfuðborga
Norðurlanda um jákvæða samkeppni
um það, hvaða borg kemur með bestu
áætlunina 1998 um þróun aðgengis-
mála fram til ársins 2000. Gert er ráð
fyrir að áætlunin varði fyrst og fremst
opinberar byggingar, götur og
skemmtigarða, en almenningssam-
göngur geta einnig fylgt með.
16. október verður haldið norrænt
þing í Stokkhólmi. í því taka þátt
Norræna ráðið í málefnum fatlaðra,
samtökin EIDD Sverige og menning-
arhöfuðborgin 1998 Stokkhólmur.
Þetta er norræn ráðstefna um þemað:
“um aðgengi í borg, með höfuðborgir
Norðurlandanna sem dæmi”. Ráðið
lítur á ráðstefnuna sem tækifæri til
gagnkvæmra skipta á upplýsingum, en
einnig til að samræma það, hvernig
höfuðstaðir Norðurlanda bregðist við
áskorun ráðsins.
Ráðið hefir einnig stofnað til ár-
legra verðlauna “Aðgengi fyrir alla”.
Árið 1998 tengjast þau þemaárinu og
beinast að aðgengishönnun, þegar
endurnýjaðar eru menningarsögulegar
byggingar. Þórey V. Ólafsdóttir
Þórey V.
Ólafsdóttir
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
23