Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Síða 42
Tökum á
- tækin
vantar
Landssamtök hjartasjúklinga
héldu átaksfundíPerlunni 5.maí
sl. undir kjörorðinu: Tökum á - tækin
vantar.
Ataksfundurinn var í tilefni söfn-
unarátaks sem var svo helgina á eftir
ogmunhafamjög veltekizt. Þaðvar
varaformaðurinn, Jón Þór Jóhanns-
son, sem setti fundinn og stjórnaði
honum.
Formaður samtakanna, Gísli J.
Eyland, flutti í upphafi hvatningar-
ávaip og minnti um leið á fyrri safn-
anir og góðan árangur þeirra sem
hefði svo ágætum afrakstri skilað.
Axel F. Sigurðsson hjartalæknir
sagði frá nýjungum í hjartalækning-
um. Hann minnti á hið mikilvæga
hlutverk landssamtakanna. Greindi
frá rannsókn sem fram hefði farið í
18 löndum á batahorfum hjartasjúkl-
inga. I ljós hefði komið að Island
hefði þar fremst verið, sem sannaði
að þar væri vel að verki staðið. Sam-
spil svo margs væri forsenda slíks
árangurs: sjúklingurinn, hjúkiunar-
fólk, læknar og stjómvaldsaðgerðir.
Hann skipti svo hjartasjúkdómum í
fjóra flokka: kransæðasjúkdóma,
hjartsláttartruflanir, hjartabilanir og
lokusjúkdóma. Kvað hvarvetna vera
um mikla og góða þróun að ræða,
framfarir örar og með þeim fylgzt
mætavel hérlendis.
Meðal fullorðinna væru kransæða-
sjúkdómar langalgengastir. Hin full-
komnu tæki eru forsenda góðs árang-
urs, sagði Axel í lokin og hvatti til
myndarlegs átaks nú.
Hróðmar Helgason barnalæknir
sagði þessu næst frá árangri í
bamalækningum á Islandi en eins og
við öll vitum er hann afar góður, hefði
fyrsta hjartaaðgerð á barni farið fram
hérlendis einfaldlega sakir þess að
barninu var ekki treyst í erfiðan
flutning milli landa. Hann minnti á
hina góðu aðkomu LHS að þessu máli
sem hefði svo myndarlega stuðlað að
því að koma hlutunum í verk. An
þeirra myndi staðan í dag vera allt
önnur og lakari. Minnti á helztu
áfanga og árangur um leið. Nú væru
liðin 8 ár frá því hjartaskurðaðgerðir
hófust hér og alls væm þær orðnar um
30 talsins. Hann minnti á þann mikla
kostnað sem því fylgdi að senda þessi
börn til útlanda fyrir utan allt óhag-
ræðið og erfiðleikana hjá aðstand-
endum barnanna.
Hann sagði það mikið gleðiefni að
þessar aðgerðir hér stæðust fyllilega
samanburð við aðgerðir og árangur
þeirra erlendis.
“Mér um hug og hjarta nú”, hið
hugljúfa lag með jafnhugljúfum texta
hljómaði nú um Perluna. Þaðvarkór
hjartveikra barna sem söng undir
stjórn Elínar Viðarsdóttur form.
Neistans og hefðum við gjaman viljað
heyra meira svo fallega sem sungið
var.
Karl Andersen hjartalæknir kynnti
svo tæki þau er safna skyldi fyrir.
Annars vegar leisergeislatæki við
Landspítalann, nýjung en um leið
viðbót og hjartasíriti fyrir Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri sem væri í
raun hjartagæzlutæki. Karl lýsti að-
gerð á hjartavöðva og sagði frá hinni
hraðfara tækni sem mjög góða raun
hefði gefið. Leisergeislatækið væri
mjög mikilvæg og kærkomin viðbót
við annan tækjakost.
Að lokum sungu eldri félagar
Karlakórs Reykjavíkur nokkur lög
undir stjóm Kjartans Sigurjónssonar
og var vel fagnað.
Fundarstjóri sleit svo fundi með
áeggjan til félaga að nú skyldi vel
duga.
H.S.
Ein örlítil saga
Eitt sinn var lítil stúlka að koma heim frá afa og ömmu, hún fór
ein í rútu. Á leiðinni var hún að gá að því hvort hún gæti talið alla
bæina sem hún fór framhjá en það gekk ekki svo vel, svo hún hætti því.
Þá sá hún aðra stelpu sem var líka að fara sömu leið svo hún fór til
hennar og spurði hvort hún mætti sitja hjá henni og spjalla við hana á
leiðinni. Stúlkanjáttiþvíogþærskemmtusérvelviðhittogþetta. Allt
í einu voru þær komnar heim og þær bundust um það fastmælum að
næst þegar þær færu til afa og ömmu þá færu þær saman og það gerðu
þær.
Eygló Ebba Hreinsdóttir
42