Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1998, Page 45
Glatt hjúkrunarfólk í Grensáslaug.
bandalagsins sameiginlega hins vegar
um aðild hagsmunasamtakanna að
nefnd sem kanna skal búsetuvanda
fatlaðra í Reykjavík. Ráðuneytið
féllst að lokum á tilnefningu eins
fulltrúa sameiginlega í þessa nefnd.
Friðrik Sigurðsson aðalmaður og
Hafliði Hjartarson til vara, en trúlega
með virkri aðild. Sömuleiðis gat for-
maður um tilnefningu bandalagsins í
nefnd félagsmálaráðuneytis sem
kanna skal leigumarkaðinn í heild
sinni og gera í kjölfarið tillögur um
málið. Fulltrúi ÖBÍ er Anna Ingvars-
dóttir framkvæmdastjóri Hússjóðs.
Þá minnti formaður á styrkveitingu
ráðuneytis félagsmála til hagsmuna-
samtakanna að upphæð 500.000 kr. til
kynningar á málefnum fatlaðra.
Akveðið að verja þeim til kynningar
Meginreglna Sameinuðu þjóðanna,
endurvinna þýðingu þeirra, koma
þeim einnig á auðlesið mál og gefa
síðan hvoru tveggja út í handhægum
ritum. Það mál er komið á góðan rek-
spöl. Þessu næst sagði formaður frá
útgáfu bæklings nú fyrir sveitarstjórn-
arkosningarum yfirfærsluna væntan-
legu á málefnum fatlaðra til sveitar-
félaganna. Heitiðer: Stærsta verkefni
sveitarstjórna á kjörtímabilinu.
Þroskahjálp og Öryrkjabandalagið
munu senda bækling þennan til allra
framboðslista a.m.k. í öllum stærri
sveitarfélögum og sem víðast, stílað
á nafn efsta manns á framboðslist-
anum.
á greindi hann frá aðild banda-
lagsins að Mannréttindaskrif-
stofu Islands en frá því máli greint
glögglega hér í blaðinu. Þá sagði
formaður frá ráðningu Garðars
Sverrissonar varaformanns banda-
lagsins í hálft starf hjá bandalaginu frá
og með l.apríl sl. með sérstakri
áherslu á kjaramál og kynningarstarf.
Væri mikils vænst af hans framlagi
þarna.
Hann kvað menn vita frá fyrri
fundi að Asgerður Ingimarsdóttir
myndi hætta störfum sem fram-
kvæmdastjóri frá 1. júni þ.á. Fram-
kvæmdastjórn bandalagsins hefði
gengið frá ráðningu Helga Seljan í
stöðu framkvæmdastjóra frá og með
sama tíma til tveggja og hálfs árs eða
ársloka 2000. Skv. lögum bandalags-
ins skal staðfesta samninginn um
ráðninguna á aðalstjórnarfundi og var
svo gert einróma af öllum viðstöddum
atkvæðisbærum.
2. Styrkveitingar.
Gjaldkeri bandalagsins, Hafliði
Hjartarson, greindi frá tillögum fram-
kvæmdastjórnar um styrkveitingar
bæði til aðildarfélaga og annarra
skyldra aðila.
Þess var um leið getið að tvö félög
hefðu sótt um eftir að lokaúthlutun
lauk og reynt yrði að verða við þeirra
óskum síðar á árinu.
Til lögur framkvæmdastjórnarinnar
samþykktar samhljóða en skrá um
styrkveitingar birt í blaðinu nú.
3. Umsagnir um mál til Alþingis.
Helgi Seljan gerði grein fyrir
umsögnum bandalagsins og fór
allnokkrum orðum um þingmál sem
umsagnir. Málinvoru: Stjórnarfrum-
vörp um húsnæðismál, tekju- og
eignaskatt þ.e. fylgifrv. með húsnæð-
ismálum og almannatryggingar (lög-
heimilismál, slysatrygging sjómanna
og fleira). Þingmannamál voru um:
Þjónustugjöld í heilsugæslu, langsjúk
börn, tryggingaráð (fulltrúi ÖBI þar),
réttarstöðu íbúa á hjúkrunar- og dval-
arheimilum, sérfræðiþjónustu barna
og unglinga(sálfræði, félagsráðgjöf),
félagslega aðstoð (barn öryrkja lækki
ekki bætur), gleraugnakostnað yngri
en 18 ára (aukin þátttaka ríkisins),
almannatryggingar (sama upphæð
öryrkja eftir 67 ára aldur) og aukinn
rétt foreldra veikra barna.
Anægju lýst með aukinn umsagn-
arrétt hjá bandalaginu af hálfu lög-
gjafans.
4. Bréf Umboðsmanns Alþingis.
Garðar Sverrisson greindi fyrst frá
forsögu málsins, kvörtunum nokkurra
aðila til Umboðsmanns Alþingis
vegna skerðingar bóta af völdum
makatekna sem kvartendur og
Öryrkjabandalagið teldu ekki lagastoð
fyrir. Uskurðarorð Umboðsmanns
Alþingis þau að þetta bryti ekki í bága
við lög en taka þyrfti af öll tvímæli í
löggjöf þetta varðandi því ákvæði
væru ekki nægjanlega skýr. Urskurður
þessi hafði verið sendur til Alþingis
og því skrifuðu Garðar og Helgi f.h.
kjaramálanefndar ÖBI bréf til
heilbrigðis- og trygginganefndar
Alþingis þar sem skýrð voru sjón-
armið okkar og helstu rök með því að
ólöglegt væri, lagaákvæði ekki til
enda eðlilega hvergi á það bent í úr-
skurði Umboðsmanns. Málinu fylgt
eftir með heimsókn þeirra félaga til
nefndarinnar sem skýrði mál frekar og
í raun vilyrði fengið fyrir frekari skoð-
un málsins og sem fyrst. Mál þetta
mun fá umfjöllun Alþingis nú í vor
með utandagskrárumræðu og breyt-
ingartillögu við frv. til laga um al-
mannatryggingar. Menn fögnuðu vel
framþróun þessa máls sem á yrði að
verða unandi lausn sem allra fyrst,
enda málið tekið upp til þess einu
sinni enn.
5. Önnur mál.
Formaður greindi frá því að á
vegum Öryrkjabandalags Norður-
landa væri unnið að samnýtanlegum
grunni vegna kjarastöðu öryrkja fyrir
öll Norðurlöndin og vænti hins besta
af því.
Hafdís Gísladóttir sagði frá nám-
stefnu úti í Amsterdam hjá heyrnar-
lausum, kynning á Mannréttindasátt-
mála S.þ.
SJÁ NÆSTU SÍÐU
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
45