Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Side 12

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Side 12
Jón Sigurgeirsson félagi í Geysi GEÐVERND FYRIR HEILBRIGÐA Eg ætla að hefja mál mitt með því að ávarpa einn fundar- mann sérstaklega. Ásta Ragn- heiður alþingismaður! Þú þarft að huga að geðheilbrigði þínu. Fannst einhverjum hér inni þetta dónaleg athugasemd þar sem ég gef í skyn að hún gæti orðið veik á geði. Hugsið ykkur ef ég hefði sagt við hana: Ásta Ragnheiður! Þú þarft að huga að líkamlegu heilbrigði þínu. Það telst vinaleg athugasemd. Óskin er eins að öðru leyti en því að annars vegar er tekið til líkamlegt heilbrigði og hins vegar andlegt heilbrigði. Ef mönnum finnst verri ósk að biðja alþingismanninn okkar að fara vel með andlegt heilbrigði sitt þá telja rnenn að geðheilsa sé eitthvað annað og verra en líkamleg heilsa. Það séu aðeins einhverjir “geðsjúklingar” með neikvæðum formerkjum sem þurfa að huga að heilbrigði sálar sinnar. Nærri helmingur þeirra sem eru óstarfhæfir vegna fötlunar eru það vegna andlegra veikinda. Við verðum öll fyrir áföllum í lífinu sem reyna á sálina ekki síður en slys reyna á lík- amann. Stór hluti manna þarf að leita sér hjálpar vegna andlegrar líðanar sinnar. Fílhraustir hjálparsveitarmenn á besta aldri þurfa áfallahjálp eftir að hafa upplifað hörm- ungar. Þó alþingis- maðurinn okkar sé sköruleg í sínum stj órnmálaafskiptum er hún manneskja með líkama og sál sem þarf að sinna til að halda heilbrigðri. Hraustu strákarnir í hjálparsveitinni einn- ig. Hvað með okkur hin. Öll þurfum við að huga að sálinni. Geðheilbrigði er ekki Jón Sigurgeirsson einkamál geðsjúkra heldur mál allra einstaklinga. Því beini ég orðum mínum ekki síður til þeirra sem telj- ast heilbrigðir en þeirra sem veikir teljast. Mikilvægt að tilheyra hópi Maðurinn er náskyldur öpum og ýmsar félagslegar þarfir hans eru þær sömu og þeirra. Við erum eins og aparnir hópdýr. Heilbrigðir menn til- heyra oftast mörgum hópum; fjöl- skyldu, vinnustað, félagsskap, kunn- ingjahópi o.s.frv. Sá hópur sem við eyðum að jafnaði mestum tíma í er vinnustaðurinn. Þar sækjum við helst viðurkenningu og virðingu sem er okkur nauðsynleg. Við verðum stöð- ugt að muna að það erum ekki aðeins við sem sækjumst eftir viðurkenn- ingu og virðingu hópsins heldur sér- hver sem með okkur er. Einelti Menn geta notað þessa hóptilfinn- ingu okkar til þess að fá okkur til þess að gera einhverjum einum eða fleir- um vinnufélögum okkar illt með stöðugum neikvæðum athuga- semdum, svo sem uppnefnum, gríni eða því um líku. Vondir stjórnendur geta beitt þessu í skjóli valds síns. Þeir geta verið með neikvæðar at- hugasemdir, sem ekki eru til fram- dráttar þeim verkum sem unnin eru, gert lítið úr því sem vel er gert en að þenja út fyrir eðlileg mörk allt sem miður fer. Gerandinn notar sér bæði hræðsluna við að tapa virðingu hópsins og eigin ógnir til þess að fá menn til að niðra þann sem hann kýs að verði fyrir einelti. Við fýlgjum ósjálfrátt á eftir og mörg okkar geta bæði sagt frá atvikum þar sem við höfum verið þolendur og einnig þar sem við höfum verið ger- endur. Þetta hátterni er alvarleg árás á geð- heilbrigði þeirra sem fyrir því verða, svo alvarleg að sumir ná sér aldrei eftir slíkt. Gerendumir þ.e. þeir sem espa aðra til að- gerða, eru ofbeldis- menn sem eru það gáfaðir að þurfa ekki að berja með höndum til að ná tilætluðum árangri. Afleiðing gerða þeirra er verri en þeirra sem beita hreinu líkamlegu ofbeldi, þeir sleppa Héðinn Unnsteinsson flytur sitt mál. 12

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.