Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Page 14
Niðurlag
Almennir starfsmenn eiga að vera á
verði gagnvart neikvæðni og niður-
lægjandi atferli gagnvart einstakl-
ingum sem ekkert hafa til þess unnið.
Þeir verða að gæta sín að dragast ekki
inn í slíkt og sýna þor að standa á
móti því.
Munum að vinnustaðurinn er einn
mikilvægasti hópur sem við til-
heyrum og lögmál í hugmyndafræði
Geysis um að sérhver þurfi að finna
sig tilheyra hópi, haf’a eitthvað fram
að færa og framlag hans sé metið og
virt og hann finni til ábyrgðar í sam-
ræmi við getu sína eru algild sannindi
íyrir alla vinnustaði. Bæði er það gott
fyrir almennt starfsfólk að hafa hana
í huga til að forðast hegðun sem
skaðar geðheilbrigði samstarfsmanna
og fyrir stjórnendur til að ná árangri
og gæta heilbrigðis starfsfólksins.
Ég hef nú starfað meginhluta þessa
árs í Klúbbnum Geysi. Hann hefur
verið vinnustaður minn. Mér finnst
hann gefa mér mjög mikið og hann
hefúr veitt mér von um morgundag-
inn. Sumir vinnustaðir sem ég hef
unnið á hafa ýmist verið hlutlausir og
hafa ekki verið til þess fallnir að auka
sjálfstraust og getu starfsmanna eða
þeir hafa beinlínis brotið menn niður.
Framlag mitt í Geysi er metið og virt.
Eins og ég hef sagt er það öllum
mikilvægt en ekki síst þeim sem hafa
haft ástæðu til þess að vanmeta fram-
lag sitt vegna veikinda. Geysir er
vegarspotti sem vantaði á leið manna
til heilbrigðs lífs. Sumir ná að vinna
sig upp og fara að stunda vinnu á al-
mennum vinnumarkaði, aðrir halda
áfram að vinna sjálfum sér og öðrum
gagn innan Geysis. Öllum sem leggja
sig ffam við vinnu innan Geysis hlýt-
ur að líða betur því auk virðingarinn-
ar finna þeir tilgang í lífinu. Ég vil
ljúka máli mínu með innilegu
þakklæti til Önnu Valdimarsdóttur
iðjuþjálfa og félaga sem unnu að
stofnun Geysis.
Ég óska ykkur heilbrigðis á sál og
líkama.
Jón Sigurgeirsson.
Erindi flutt á geðheilbrigðisdaginn
10. okt. sl.
Jón er félagi í Klúbbnum Geysi.
Ögmundur Einarsson afhendir Jóni Jónassyni styrkinn.
Daufblindrafélag íslands
styrkt myndarlega
Það var einkar ánægjuleg stund sem við áttum saman hjá Góða hirðinum,
hytjamarkaði Sorpu og líknarfélaga að Hátúni 12 fimmtudaginn 28. sept.
sl. Tilefnið var styrkveiting Góða hirðisins til eins aðildarfélaga okkar,
Daufblindrafélags íslands. Ögmundur Einarsson framkvæmdastjóri Sorpu
bauð fólk velkomið og minnti á 5 ára afmæli samstarfsins milli Sorpu og ýmissa
líknarfélaga. Hann minnti á hina vaxandi umræðu um umhverfismál í samfé-
laginu. Hér væri um að ræða virka aðferð til endumotkunar hluta með reynslu
og sögu sem fengju nýtt hlutverk. Anægjulegt að geta sagt frá því að viðskipta-
vinir Góða hirðisins væru m.a. ungt fólk að hefja búskap. Inn í þetta má ritstjóri
til með að skjóta því, að meðan á hinni hátíðlegu athöfn stóð var stanslaus
verslun í gangi hjá Góða hirðinum sem sýndi vel grósku i versluninni.
Ögmundur minnti á styrkveitinguna í fyrra til sex aðildarfélaga ÖBÍ, þeirra
sem aðsetur eiga í þjónustusetrinu að Tryggvagötu 26. Nú hefði fámennt og
tekjulítið félag erfiðrar fötlunar orðið fyrir valinu. Veröld daufblindra önnur en
sú sem við þekktum þar sem liðsinni við gagnkvæma tjáningu skipti öllu.
Ljóst væri að þarna væri sannkallað afreksfólk á ferð.
Afhenti Ögmundur síðan fulltrúa Daufblindrafélagsins, Jóni Jónassyni, ávísun
upp á 500 þús. kr.
Jón Jónasson flutti hið besta þakkarávarp, þetta væri þeim í félaginu sönn
ánægja og heiður, þakklæti hlýtt fyrir stórkostlegt ffamlag. Jón rakti svör
við spurningunni hvað daufblinda væri, en þetta snerti að sjálfsögðu sjón og
heyrn allt yfir í það að hvom tveggja skorti. Hann rakti einnig stuttlega sögu
félagsins, en til dreifingar lá hin góða og glögga grein Lilju Þórhallsdóttur
framkvæmdastjóra um félagið í Fréttabréfi ÖBI. Hann gat þess hversu margt
þyrfti að læra upp á nýtt, minnti á umferlisnámið og hvíta stafinn, blindraletrið,
táknmálið, fingrastafrófið en síðast en ekki síst samskiptin á tölvunni. Hann
kvað túlkavöntun tilfinnanlega, meiri liðveisla þyrfti til að koma o.s.frv. Jón
þakkaði Lilju Þórhallsdóttur fyrir einstaklega gott starf í þágu félagsins. Afhenti
síðan með innilegu þakklæti Ögmundi Einarssyni blómvönd frá félaginu.
Jakobína Þormóðsdóttir sem er daufblind gaf ljóðabók sína í þakkarskyni og
fyrir hana vel þakkað af Ögmundi. Þama var saman kominn góður hópur m.a.
frá liknarfélögunum sem eiga aðild að Góða hirðinum. Fjölmiðlar gjörðu þess-
um þekka atburði hin ágætustu skil og kastljósinu rækilega beint að þessari
miklu fötlun þar sem fulltrúar daufblindra tjáðu sig um vanda daufblindra í ver-
öld sjáandi og heyrandi.
Einlægar þakkir eru forráðamönnum Góða hirðisins fluttar héðan fyrir þessar
myndarlegu styrkveitingar í fyrra og núna. Daufblindrafélagi íslands er hjartan-
lega óskað til hamingju með þennan dýrmæta styrk til einkar þarfrar starfsemi
sinnar. H.S.
14