Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Síða 15

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Síða 15
FLOGAVEIKI UT UR SKUGGANUM Þín þekking er okkar styrkur Landsssamtök áhugafólks um flogaveiki - LAUF hefur gefið út snotra bók og athyglisverða vel sem ber nafnið: Flogaveiki út úr skugganum og undir- fyrirsögnin er: Þín þekking er okkar styrkur. Bókin er þýdd úr ensku með góðfúslegu leyfi bresku flogaveiki- samtakanna. Formáli er ritaður af Kolbeini Pálssyni formanni LAUFS sem greinir þar frá því að verið sé að ljúka gerð stefnumótunar LAUFS til 2005. Áfram yrði svo unnið sem best að því að draga floga- veikina út úr skugganuni og Kolbeinn boðar deildastofnun í stærri byggðum landsins. Það sem gildir er fræðsla - fræðsla og aftur fræðsla, segir Kol- beinn. Heilbrigðisráðherra, Ingi- björg Pálmadóttir er með ávarp þar sem hún segir að forsvars- menn LAUFS hafi náð miklum árangri í starfi, dáist að krafti þeirra og hugmyndaauðgi. Hún hvetur almenning til að leggja hlustir við boðskap LAUFS. Jón Snævarr Guðnason framkvæmdastjóri LAUFS segir í ávarpi sínu að flogaveiki sé nú forgangsverkefni hjá WHO (Alþjóðlegu heilbrigðisstofnuninni) sem tauga- sjúkdómur. Hann segir flogaveiki vanrækt vandamál, jafnvel hjá þróuðum ríkjum. Alþjóðleg herferð gegn flogaveiki er hafin og LAUF tekur þar sinn þátt, segir Jón Snævarr. Svo kemur að fróðleik fjarska góðum. Flogaveikir for- eldrar og börn er fyrsti kaflinn. Þar segir m.a. að 75% fólks með flogaveiki fái sitt fyrsta flogaveikiskast innan við 20 ára aldur. Lýsing er gefin á flogaveiki í barnæsku, greint er m.a. frá bæði læknismeðferð og skurðaðgerðum. Heitið er á fólk að sýna jákvæðni þó barnið sé flogaveikt. Varað er við einelti og stríðni gagnvart flogaveikum börnum. Svo eru ráð um það hvað gjöra skal og ekki síður hvað ekki skal gjöra. Upplýst er að flest börn með flogaveiki séu jafnhæf til náms og önnur börn, en vandamál geti þó komið upp. Síðan er fjallað um námsörðugleika - aðallega þá af völd- um heilaskaða. Þá er rætt um flogaveiki og atvinnu sem flestir geta stundað án teljandi erfiðleika og ýmsar leið- beiningar gefnar þar um. I viðtali út af vinnu eiga menn að vekja máls á flogaveiki sinni segir þar. Upplýsa ber bæði atvinnurekanda og samstarfsfólk um hversu veikin hagar sér. Varað er við óæskilegum störfum fyrir fólk sem ekki hefur góða stjórn á flogum sínum. Kafli er svo um flogaveiki og sjálfsstjórn þar sem fjögur lykilatriði eru rakin: sjálfsþekking, sjálfsvit- und, sjálfstraust og að axla ábyrgð. Þar segir m.a.: Vitneskjan um að þú ert með flogaveiki getur breytt hugsunarhætti þínum og hegðun, en þessi framantöldu atriði geta líka breytt flogaveiki þinni. Einnig segir: Vandamál sem koma upp í lífi þínu eru ekki aðalatriði, heldur hvernig þú meðhöndlar þau og leysir. Þegar rætt er um flogaveiki er einfaldast og best að upplýsa um ástandið á opinskáan og jákvæðan máta. Það léttir m.a. hulunni af dulúð sem fylgt hefur flogaveikinni og oft viðhaldið fordómum. Lögð er áhersla á sem best samband við lækni viðkomandi og spyrja hann sem mest um vandamálin. Skorað er á floga- veika að ganga til liðs við LAUF og verða virkir þátttakendur. Þarna er einnig tæpt á baráttu- málum LAUFS í þágu floga- veikra. Njóttu lífsins með flogaveiki er fyrirsögn ein og fólk beðið að hafa hugfast: Þetta er þinn líkami og þitt líf - veldu sjálfur hvernig þú lifir því. Kafli er um tómstundir og flogaveiki og farið yfir það sem sækjast ber eftir og eins það sem varast ber. Að- gátar þörf svo víða s.s. við sjónvarpsáhorf og tölvuleiki. Ákveðið lagt til við flogaveika að þeir njóti ferðalaga. í lokin segir svo: Félagslíf er öllum nauðsynlegt og ástæðulaust er að flogaveiki hamli því, svo framarlega að gerðar séu varúðarráðstafanir og ekki tekin óþarfa áhætta. Konur með flogaveiki er svo sérkafli. Hann fjall- ar um fjölmörg atriði s.s. hormónastarfsemi, getnaðar- varnir, frjósemi, fjölskyldulíf, meðgöngu og svo spurninguna miklu: Eignast ég heilbrigt barn? Svo er fjallað um fæðingu sem á að geta gengið vel fyrir sig, komið er inn á að flogaveiki hindri ekki brjósta- gjöf. Varúðarráð eru gefin einnig og ýmsar haldgóðar upplýsingar fyrir konur. Sagt er að eitt af hverjum sex pörum eigi í erfiðleikum með getnað. Lokakaflinn er svo um flogaveiki á efri árum þar sem sagt er að flest eldra fólk með flogaveiki eigi auðvelt með að stjórna sínu lífi með smávægilegum stuðningi. LAUFI er sannur sómi að útgáfu þessari og þeim til hamingju óskað með gott framtak um leið og tekið er undir orð formanns um nauðsyn fræðslu og aftur fræðslu. Þarna er um að ræða gott átak í þágu aukinnar fræðslu um flogaveiki. H.S. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 15

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.