Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Qupperneq 16
Aðalfundur
Öryrkjabandalags Islands
Formaðurinn túlkaður á táknmáli.
Aðalfundur Öryrkjabanda-
lagsins var haldinn laugar-
daginn 21. okt. sl. Formaður
setti fund kl. 9.50 árdegis og bauð
fólk velkomið til fundar. Fundar-
stjórar voru kjörnir Þórir Þorvarðar-
son og Málfríður Gunnarsdóttir.
Fundarritarar Helgi Flróðmarsson og
Kristin Jónsdóttir.
Aðalfundinn sátu milli 70 og 80
manns.
Eins og í fyrra hafði skýrslum og
reikningum verið dreift til fulltrúa
nokkru fyrir aðalfiind og þeim var
svo fylgt stuttlega úr hlaði. Að öðru
leyti verður ekki fjallað um þessar
skýrslur hér en hvað varðar þau atriði
er menn lögðu sérstaka áherslu á.
Yfirlit formanns
Garðar Sverrisson formaður lagði
sérstaka áherslu á nokkur atriði í
ítarlegri skýrslu sinni.
Umsögnin um yfirfærslu málefna
fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga hefði
verið send þingnefnd eftir afar vand-
lega meðferð hjá bandalaginu m.a.
með sérstakri, fjölsóttri ráðstefnu í
september. Hann kvað vaxandi ugg
innan okkar raða vegna yfirfærsl-
unnar.
Formaður vék að dómsmálinu
vegna tengingar bóta við tekjur maka.
Hann minnti á úrskurð Héraðsdóms í
lok síðasta árs, þess væri nú að vænta
að Hæstiréttur lyki málsmeðferð fyrir
nóvemberlok.
Formaður vék að íslenskri getspá
og að svo virtist sem þar væri vel
haldið sjó. Vék einnig í því sambandi
að fjárhag bandalagsins og nauðsyn
þess að það ætti myndarlegan vara-
sjóð s.s. drög hefðu verið lögð að við
gjörð síðustu fjárhagsáætlunar.
Þá fór Garðar formaður yfir árang-
ur af starfi samráðsnefndar við
Tryggingastofnun ríkisins. Þar bæri
helst að nefna námskeið TR fyrir ný-
metna öryrkja með virkri aðkomu
bandalagsins og ný örorkuskírteini
með mynd sem yrðu altæk til notkun-
ar.
Þá sagði formaður frá velheppnaðri
fundaferð þeirra félaga á Austurlandi
sem verulega gagnlegir hefðu verið,
ekki síst þeim félögum.
í lokin greindi svo formaður frá
framkvæmdastjóraskiptum hjá
bandalaginu um áramót, þegar Helgi
Seljan hætti og Arnþór Helgason tæki
við. Lofaði hann starf Helga mjög
mikið og færði honum blómvönd frá
bandalaginu.
Yfirlit framkvæmdastjóra
Helgi Seljan hafði í skýrslu sinni
farið nokkuð yfir starfsferil sinn nú
við starfslok, samstarf við félögin,
fréttabréf bandalagsins og þjónustu
við það íjölmarga fólk sem til banda-
lagsins leitar. Fór svo með kveðju-
ljóð sem birt er hér í blaðinu.
Yfirlit Helga Hróðmarssonar um
erlend samskipti bandalagsins og
samstarfsverkefni með Þroskahjálp
Þátttaka bandalagsins í erlendu
samstarfi, norrænu, evrópsku og al-
þjóðlegu, er mikil og virk.
Helgi nefndi sérstaklega að ísland
færi nú með formennsku í Norræna
ráðinu um málefni fatlaðra-HNR og
mikla vinnu eðlilega í kringum það.
Sömuleiðis árangursríka aðild ís-
lands að Mobility International sem
mikill fjöldi ungs fólks hefði haft af
bæði gagn og gaman.
Helgi minnti á ágætt nefndarálit
um félagslega þátttöku fatlaðra þar
sem margt merkilegt hefði fram
komið til úrbóta en lítt orðið af fram-
kvæmd í kjölfarið. Að lokum minnti
Helgi á sýninguna Liðsinni sem hið
besta hefði tekist.
Lögfræðiþjónusta bandalagsins
Jóhannes Albert Sævarsson gjörði
grein fyrir hinum mikla málafjölda
sem lögfræðiþjónustan sinnti árlega,
fjölbreytileiki þeirra mjög mikill
einnig. Jóhannes Albert á grein hér í
blaðinu um þessi mál.
Djáknaþjónusta
Guðrún K. Þórsdóttir djákni rakti
stuttlega skilgreiningu á djáknaþjón-
ustu almennt og fór svo yfir helstu
starfsþætti. Heimsóknir til fólks og
viðtöl við það mjög þýðingarmikil.
Kyrrðarstund í setustofu hvern mánu-
dag. Gospelkvöld nokkrum sinnum á
vetri, afar vel sótt. Einnig aðstoð við
guðsþjónustur í Hátúni 12 og heim-
sóknir til fólks þar í sjálfboðastarfi.
Hringsjá - starfsþjálfun fatlaðra
Guðrún Hannesdóttir var veik og því
hljóp Sveinn Rúnar Hauksson
stjórnarmaður í Hringsjá í skarðið og
gjörði það skörulega. Þarna væri
unnið sláandi jákvætt starf þar sem
yfir 170 hefðu lokið öllum þrem
önnum og hátt á þriðja hundrað einni
16