Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Síða 17
önn eða meira. Biðlistinn væri samt
of langur. Minnti á myndlist og leik-
ræna tjáningu sem upp hefðu verið
teknar hjá Hringsjá, þar sem fjölda
fólks er komið vel af stað til svo
ffamhaldsnáms eða vinnu. Heila-
gengið - sjálfshjálparhópur starfar
undir handarjaðri Hringsjár og því
fagnað.
Hússjóður Öryrkjabandalagsins
Formaður stjórnar, Helgi Hjörvar
gjörði grein fyrir hinum umfangs-
mikla rekstri hinna mörg hundruð
íbúða Hússjóðsins. Vakti athygli á að
eignir Hússjóðs væru komnar til ára
sinna, þyrftu því mikið viðhald og
endurbætur. Útkoman nokkru lakari
en á síðasta ári enda hefði hlutdeildin
í lottótekjum minnkað. Hússjóður
stendur hins vegar Qárhagslega mjög
sterkt. Helstu verkefni ársins eru ný-
byggingin að Sléttuvegi og viðhald í
Hátúninu. Biðlistinn stöðugt lengst
eða um 400 í dag á biðlistanum.
Helgi fór svo yfir breytingar til hins
verra í húsnæðismálum m.a. varðandi
vaxtakjör sem nú yrðu markaðsvextir
frá og með næstu áramótum. Húsa-
leigubætur yrðu að hækka og þær
yrðu að verða skattfrjálsar. Tæpti á
átaki Hússjóðs í samstarfi við félags-
málaráðuneyti um sérhæfð heimili og
sambýli, en ekkert fast í hendi enn.
Vinnustaðir Öryrkjabandalagsins
Þorsteinn Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri flutti skýrslu og kvað
afkomuna hafa verið góða á síðasta
ári og horfur nú væru góðar. Þjón-
ustusamningur er í gildi við félags-
málaráðuneytið með ákveðnu fram-
lagi svo og legði Öryrkjabandalagið
til styrk einnig. Rekstur saumastofu
væri þó erfiður sem fyrr. Þorsteinn
nefndi svo nýja ráðningarsamninga
við fatlaða starfsmenn, byggða á
starfsmati. Minnti svo á það í lokin
að afrakstur ríkisins af vinnu-
stöðunum væri umtalsvert meiri en
framlagið.
Tölvumiðstöð fatlaðra
Sigrún Jóhannsdóttir forstöðu-
maður minnti fyrst á hverjir stæðu að
Tölvumiðstöð fatlaðra, en Öryrkja-
bandalagið eitt veitti henni styrk til
starfseminnar. Á liðnu starfsári nutu
183 einstaklingar og 43 skólar og
aðrar stofnanir þjónustu Tölvumið-
stöðvar. Fræðslufundir og námskeið
væru vaxandi þáttur m.a. námskeið á
landsbyggðinni. Nauðsyn væri á frek-
ara starfi, bæta yrði við stöðugildi.
íslensk getspá
Þórir Þorvarðarson stjórnarmaður
ÖBÍ hjá íslenskri getspá fór yfir
bráðabirgðauppgjör starfsárið júlí '99
- júníloka í ár. Lítilsháttar aukning
orðið í sölu. Tekjur: 709 rnillj. af
laugardagslottói, 320 af víkingalottói
og 65 af jóker. Arður til Öryrkja-
bandalagsins 129 millj. kr. Áskrift
nú á netinu gefið góðan árangur og
þar væri um nýjan markhóp að ræða.
Tæpti einnig á væntanlegum
nýjungum en ársfundur Islenskrar
getspár er í nóvember ár hvert.
Reikningar Öryrkjabandalagsins,
Hússjóðs, Hringsjár og Vinnustaða
Endurskoðandinn, Eyjólfur Guð-
mundsson kynnti helstu tölur og skal
aðeins á örfáum þeirra tæpt hér.
Fyrst að Öryrkjabandalaginu.
íslensk getspá gaf tekjur að upp-
hæð 121.640 millj.kr. þar af fóru
63.861 millj. til Hússjóðs. Laun og
launatengd gjöld voru rúmar 15 millj.
kr. og annar rekstrarkostnaður rúmar
12.6, fréttabréfið tók til sín rúmar 7
millj. kr.
Styrkir til aðildarfélaga námu
rúmum 13 millj. kr, styrkir til annarra
tæpum þrem milljónum og Vinnu-
staðir fengu 3.3 millj. kr.
Húsaleigutekjur Hússjóðs voru
rúmar 143 millj. kr. en gjöld vegna
fasteigna rúmar 172 millj. kr. Eignir
Hússjóðs eru rétt innan við 3 mill-
jarða. Rekstrartekjur Vinnustaða
voru íúmar 33.8 millj. kr. en rekstrar-
gjöld 45 millj. kr. Framlag ríkissjóðs
9.9 millj. kr. og frá ÖBÍ 3.3 millj. kr.
Rekstrartekjur Hringsjár ásamt
styrkjum eru tæpar 22 millj. kr. en
rekstrargjöld samtals rúmar 23.7
millj. kr. í rekstrartekjum vegur
samningur félagsmálaráðuneytis
þyngst eða 18.6 millj. og þá samn-
ingur viðTR upp á rúma 1.8 millj. kr.
Þessar tölur og miklu fleiri voru í
útsendri skýrslu þannig að öll okkar
félög hafa glöggt og gott yfirlit yfir
alla þessa reikninga.
Að loknum öllum þessum skýrsl-
um og tölum hófust almennar
umræður. Formaður, Garðar Sverris-
son, upplýsti að í ljósi gagnrýni á
seint fram komna reikninga á aðal-
fundi - þ.e. árið 1999 nú, þá hefði
verið ákveðið að aðalstjórn tæki
reikninga þessa árs til afgreiðslu í
mars eða maí nk.
Eiríkur Þorláksson fagnaði þessu,
en vildi koma því að, að rétt væri að
fjárhagsáætlun hvers árs fylgdi með
reikningum til viðmiðunar svo sjá
mætti hvað tekist hefði og hvað ekki.
Ræddi og skiptingu lottótekna milli
bandalags og Hússjóðs.
Helgi Hjörvar kvað meira fé fara
nú í hagsmunabaráttu bandalagsins
sem þýddi minna íjármagn til Hús-
sjóðs. Taldi að leigutekjur ættu að
standa undir rekstri og lottófé færi þá
til nýbygginga. Friðrik Alexanders-
son sagði ljóst að Ijárhæðir þjónustu-
santnings við Vinnustaði ÖBI og
Hringsjá væru of lágar. Hann minnti
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
17