Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Page 18
Fundargestir hlusta af athygli úr sal á aðalfundi ÖBÍ.
á hversu Styrktarfélag vangefinna
greiddi á hveiju ári stórar fjárhæðir til
þjónustustarfsemi sinnar sem ríkið ætti
auðvitað alfarið að standa undir.
Haukur Þórðarson vakti á því athygli að
ríkið veitti engin happdrættisleyfi nú
lengur en til 2007 og að þessu þyrftu
menn að gæta, en lögin um íslenska
getspá rynnu út 2005. Á Norður-
löndum væri ríkið með slíkt og deildi
svo út styrkjum við mikla óánægju.
Reikningar allir fjórir voru svo
samþykktir samhljóða.
Lagabreytingar voru næst á dag-
skrá. Helgi Seljan flutti framsögu
stutta fyrir þrem tillögum laga-
nefndar. Kjör kjörnefndar á aðal-
fúndi lögfest, brottfall ákvæðis um 6
ára hámarkstíma í framkvæmdastjórn
og brottfall ákvæðis um úrsögn félags
úr bandalaginu.
Nokkrar umræður urðu, einkum um
lið tvö þar sem Haukur Þórðarson og
Guðjón Ingvi Stefánsson andmæltu
brottfallinu, töldu hámarksákvæði
um setu í framkvæmdastjórn af hinu
góða. Sveinn Rúnar Hauksson, Gísli
Helgason, Helgi Hjörvar, Sigurður V
Viggósson og Emil Thóroddsen
mæltu hins vegar með afnáminu.
Lagabreytingar samþykktar, liður tvö
með þorra atkvæða gegn þremur,
hinir liðirnir einróma.
Kosningar: Þórir Þorvarðarson
formaður kjörnefndar kynnti tillögur
þeirra sem þar sátu. Engar aðrar til-
lögur komu fram og í framkvæmda-
stjórn voru kjörin:
Varaformaður Emil Thóroddsen til
tveggja ára, gjaldkeri Elísabet Á.
Möller til eins árs, Gísli Helgason
ritari til tveggja ára og Valgerður Ósk
Auðunsdóttir meðstjórnandi til
tveggja ára. Garðar Sverrisson er svo
áfram formaður næsta ár.
Til vara voru kjörin: Friðrik Alex-
andersson, Dagfríður Halldórsdóttir
og Arnór Pétursson. Skoðunarmenn
reikninga: Vigfús Gunnarsson og
Tómas Sturlaugsson.
Að loknum kosningum var gefið
matarhlé. í lok matmálstímans
glöddu geð okkar með tónum tærum
Camilla Söderberg og Snorri Örn
Snorrason á flautu og lútu. Var þessu
nýmæli fjarska vel fagnað.
Fundarstörf hófust með yfirlitum
frá þrem nefndum: atvinnumála-
nefnd sem Þorsteinn Jóhannsson
kynnti, búsetunefnd sem Helgi Seljan
kynnti og kjaramálanefnd sem þeir
Gísli Helgason og Garðar Sverrisson
kynntu en þeir lögðu fram vönduð
drög að aðalályktun fundarins. Að
þessu loknu var skipt í fimm starfs-
hópa sem störfuðu í rúma klukku-
stund og skiluðu svo áliti. Lesið var
upp skeyti til fundarins þar sem fram
kom að aðalfundur MS félagsins
hefði samþykkt að ganga í Öryrkja-
bandalagið að nýju og var því fagnað
með lófataki.
Talsmenn starfshópa skiluðu svo af
sér.
a) Búsetunefnd. Helgi Seljan með
framsögu.
Nefndin mótmælti harðlega skerð-
ingu Framkvæmdasjóðs fatlaðra.
Lagði til verulega hækkun húsaleigu-
bóta svo og skattfrelsi þeirra. Benti á
mikla vöntun einstaklingsíbúða.
Nefndin lagði til að gjörð yrði áætlun
til lengri tíma varðandi fyrirsjáanlega
húsnæðisþörf barna og unglinga.
Skoraði á stjórnvöld að bæta kjör
fólks við umönnunarstörf umtalsvert.
Vakin sérstök athygli á húsnæðis-
vanda aldraðra öryrkja. Nauðsyn
væri á samhæfingu í búsetumálum
þar sem allir viðkomandi kæmu
saman að verkum.
b) Atvinnumálanefnd. Sigurður
Björnsson með framsögu.
Nefndin benti á að vanda yrði setn-
ingu marka milli félagsþjónustu og
vinnumiðlana ef frv. þ.a.l. næði fram.
Skoraði á Alþingi og stjórnvöld að
hækka verulega frítekjumörk vegna
vinnutekna svo vinnuletjandi sem
þau nú væru. Nefndin varaði við
mismunun í tengslum við starfsmat á
vernduðum vinnustöðum, þar þyrfti
að svara ýmsum siðferðilegum spurn-
um. Þá varaði nefndin við einelti
vegna fötlunar á vinnustað, gegn því
yrði að snúast.
c) Félagsmálanefnd. Sigurður V.
Viggósson með framsögu.
Skoraði á bandalagið að efla skóla-
kynningu á málefnum fatlaðra, fagn-
aði frumkvæði bandalagsins í sumar-
húsamálum (samningur við BSRB)
og beindi því til stjórnar Hússjóðs að
kannað yrði um byggingu og rekstur
sumarbústaðar. Þá ályktaði nefndin
um styrkingu og eflingu á starfi
djákna, en jafnframt yrði leitað til
kirkjunnar um þátttöku og kostun.
d) Menntamálanefnd. Málfríður
Gunnarsdóttir með framsögu.
Nefndin benti m.a. á túlkavöntun
hjá heyrnarlausum og rittúlkavöntun
hjá heyrnarskertum, brýn þörf úr að
bæta. Kvóti vegna sérkennslu alltof
lágur. Aðlögun að einstaklingnum
ekki sem skyldi. Fullorðinsfræðsla
rædd og lýst ánægju með aðkomu
ÖBI að henni. Unnið skyldi að
menntamálum almennt út frá al-
mennum mannréttindasjónarmiðum.
e) Kjaramálanefnd. Garðar
Sverrisson hafði framsögu og kynnti
ályktun starfshópsins út frá áður
framkomnum drögum kjaramála-
nefndar.
Þessi ályktun samþykkt samhljóða
og er birt hér í blaðinu.
18