Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Qupperneq 21

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Qupperneq 21
 c/narta cðjarnadottír Váxirkenníng fyrír afbtirtastínf a Land$pítaía vcitt d ársfundij&kísspítaki d.november 1989 rn0ti4«y' '~&kí$$yi£ala Jijrstjórí 'Íeíkíssfitalw Heiðursskjalið hennar Maríu. María segir svo að þegar flutt var í nýja eldhúsið hafi margt breyst til batnaðar m.a. var þá engin úrbeining. Ég spyr Maríu hvernig það hafi verið með flogaveikina, hvort hún hefði ekki átt rétt á örorkumati og bótum í samræmi við það, en María svarar því til að hún hafi aldrei fengið formlegt örorkumat, þó læknar segðu að hún ætti tvímælalausan rétt til 75% mats, þannig að bætur þáði hún aldrei. Hún segir að sér hafi liðið al- veg sæmilega að vinna. Mestan hluta starfstímans leigði María hjá Landspítalanum, en hingað í Hátúnið kom hún upp úr 1980. “Ég held mér sé óhætt að segja að ég hafi aldrei hlíft mér við vinnu, ég var oft lasin, en þá mældi ég mig bara ekki og fór samt, öfugt við ýmsar aðrar sem tilkynntu sig veikar, en sáust svo í bænum síðdegis. Slíkt lét ég aldrei henda mig”, segir María og ritstjóri veit annars staðar frá hversu einstakur starfskraftur María var alla tíð, samviskusöm og dugleg með af- brigðum, féll aldrei verk úr hendi. María segist hafa fengið krabba- meinsæxli í kringum 1960 en læknarnir náðu að nema það brott án þess að það breiddi úr sér og það var sannarlega lán. Upp úr 1960 var gjörð mikil aðgerð á höfði Maríu, það var opnuð æð við heilann og þar var dauður blettur, aðgerðin tókst hið besta og köstin hurfu. Hún þakkar Ásgeiri Ellertssyni lækni alla hjálp- ina sem ómetanleg hefði verið. María segir að sér hafi verið gjörð fyrir því grein að aðgerð þessi gæti valdið því, að hún ætti í erfiðleikum við að þekkja fólk eða muna manna- nöfn, það gekk að hluta til eftir en ekki svo að til mikils baga væri. Það stóð heldur ekki aldeilis á svörunum hjá henni Mariu þegar ritstjóri var að rekja úr henni gamirnar, svo minnið reyndist trútt. María segist alltaf hafa verið dugleg að blanda geði við fólk og sagðist hafa verið dugleg að fara niður í bæ, þar til fyrir tveim árum að ekið var á hana. Hún var að fara í Hjartavernd og það var bara bakkað beint á hana og hún þeyttist langar leiðir og lenti með fætur inn á milli hjóla. Þetta tók fyrir ferðir hennar niður i bæ enda aldrei náð sér eftir þetta. María minnir á að meirihluti slysa verði fyrir hreina óað- gæslu og glannaskap, það ætti að taka miklu harðar á þessum málum en nú er gjört og María bendir á ýmsar leiðir til þess. Eftir slysið lá María um hríð á sjúkrahúsi, en lá annars mest heima. “Ég er ekki mikið gefin fyrir það að liggja fyrir”. Hún María er samt mikið á ferðinni hér innanhúss með göngugrindina sína og spjallar við fólkið hér, hress í anda og hýr á brá, kveður fast að orði og skilaboð hennar til ráðamanna eru skýr, því María segist alltof víða verða vör við hreina neyð allsleysis- ins og það sé þjóðarvansi að bregðast ekki við því sem best og bæta kjör þessa fátæka fólks sem skrimtir við hungurmörkin. Henni Maríu er þakkað vænt viðtal og með því fylgir ljósrit af heiðurs- skjali sem hún segist mikils meta og við hér vitum svo sannarlega að hún er heldur betur vel komin að því. Farsældaróskir fylgja henni á veg. ÍLÍL Hlerað í hornum Konunni minni ungu þótti ég of feitur og vissi að m.a. var það af því að ég læddist í ísskápinn á nóttunni. Mér brá því eina nóttina þegar á bakhurð- inni á ísskápnum blasti við mynd af þessari elsku á bikini og neðan við stóð: “Teygðu þig heldur í makann en í skápinn”. Afgreiðslukonan á pósthúsinu: “Þú verður að setja annað frímerki á bréf- ið, það er of þungt”: “Hvað segirðu, ekki verður það léttara við það”. Eiginmaðurinn hringdi í tengdamóð- ur sína til að segja henni að þau hjón- in hefðu eignast tvíbura. Tengdamamma hváði, því símasam- bandið var slæmt: “Geturðu endur- tekið þetta?” “Ha, hvað, það efast ég nú um. Ég er nú bara undrandi á því að þetta skyldi gerast”. “Kunningi minn fór með kærustuna mína í bíó í gærkvöldi”. “Fórstu á eftir þeim”. “Nei, ég var búinn að sjá myndina”. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 21

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.