Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Side 25

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Side 25
dýragarðinn, gróðurinn, mannlífið, listasýningu eða nutu samveru með þessum frábæru vinum okkar og nutu þess einfaldlega að vera til. Öll komum við þreytt og sæl eftir góðan dag á hótelið og eftir smápásu, hjá sumum allavega var haldið á MacDonalds þar sem haldið var upp á afmæli eins í hópnum. Eftir það fór hópurinn í ýmsar áttir, sumir heim að hvíla sig, aðrir á bæjarrölt með við- komu á hinum ýmsu veitingahúsum, aðrir skoðuðu sig um. En óhætt er að fullyrða það að allir sofnuðu sælir að lokum. Næsta dag fórum við öll saman í hádegisverðarboð til vina okkar í Balder er höfðu heimsótt okkur sumarið áður á íslandi. Tóku þau fagnandi á móti okkur. Eftir að hafa skoðað aðstöðuna hjá þeim snæddum við með þeim hádeg- isverð. Já og hluti hópsins skoðaði líka að- stöðuna víðar á svæðinu, sjúkrahús og kaffistofu auk n.k. námsflokka fýrir geðfatlaða. Var gaman að sjá hvað við höfum verið að hugsa og framkvæma margt á svipuðum nótum hér heima og þarna ytra. Þau buðu okkur í siglingu um skerjagarðinn sem Stokkhólmur stendur á með leiðsögn á 6 tungu- málum. Siglt var undir óteljandi brýr, um skipaskurði og fengum við frá- bæra fræðslu um borgina. Eftir það fóru sumir heim á hótel, aðrir í leið- angur í akademískar bókabúðir o.fl. Aðrir röltu um nágrennið, einhverjir stúderuðu neðanjarðarlestirnar, já nóg var við að vera og hópurinn skemmtilega breiður. Það var svo gaman að sjá hvernig hver og einn í hópnum dafnaði og spreytti sig á hinum fjölbreyttu verk- efnum. Samstaðan var mikil og allir hjálpuðust að þannig að hver og einn naut sín til fullnustu. Svíarnir vinir okkar höfðu það líka á orði að það væri mjög mikil breyting á hópnum milli ára, við værum öll orðin örugg- ari og opnari. Enda held ég að þessi ferð hafi verið ómetanleg fyrir okkur og ekki síst fyrir hinn mikla undir- búning, sænskunámskeiðið og söfn- unin hefur án efa þjappað okkur vel saman. Margir í hópnum eiga við fælni að striða og tókst okkur vel að ráða við það. En sumir voru að spreyta sig á að vera með öðrum í herbergi, fara í lestir, strætó, ferjur, bjarga sér sjálfir í ókunnu umhverfi og tala erlent tungumál, sjá um lyfja- gjöf, peningamál og annað. Margt var til að takast á við. Síðasta kvöldið okkar í Sviþjóð fórum við saman út að borða á frábærum veitingastað Charles Dick- ens og nutu allir lífsins við góðar veitingar í frábærum hóp. Eins og áður voru sumir þreyttir en aðrir hurfu út í nóttina. En allir voru á sínum stað morguninn eftir og kvöddum við Svíþjóð með miklum söknuði er líða tók á morguninn. Eftir klst. akstur komum við á Arlanda og að sjálfsögðu var kíkt í fríhöfnina o.fl. Þreyttur en ánægður hópur skil- aði sér heill heim og flestir höfðu vaxið heilmikið hið innra við þessa ferð og náði hún þvi tilgangi sínum og markmiðum Víðsýnar. Þökkum við þeim fjölmörgu er lögðust á eitt til þess að draumurinn yrði að veru- leika. Ása Hildur Guðjónsdóttir Alyktun aðalfundar ÖBÍ Aðalfundur Öryrkjabandalags íslands, haldinn 21. október árið 2000, gerir þá kröfu til Alþingis að það gangist við ábyrgð sinni gagnvart öryrkjum eins og öðrum landsmönnum. Alkunna er að almannatryggingar eru hér umtalsvert lakari en víðast hvar í Vestur- Evrópu. Með margvíslegum aðgerðum og aðgerðaleysi hafa íslensk stjómvöld orðið þess valdandi að kaupmáttur öryrkja er almennt lakari nú en hann var fyrir rúmum áratug og hefur í mörgum tilvikum minnkað á síðustu fimm árum - mestu uppgangsárum einnar tekjuhæstu þjóðar ver- aldar. Sú einangmn sem öryrkjum er gert að búa við ber ekki aðeins vott um alvarlegan siðferðisbrest heldur einnig efnahagslega skammsýni. Vilji ráðamenn rétta hlut öryrkja má þeim fullljóst vera hvernig því verður best við komið. Kerfi bótagreiðslna að viðbættum áhrifum skattkerfis tryggir að hækkun helstu bótaflokka gagnast þeim fyrst og fremst sem verst eru settir, en hefur lítil sem engin áhrif á kjör annarra. Til að aflétta þeirri ijárhagslegu neyð sem öryrkjar búa við ber brýna nauðsyn til að grípa til eftirtalinna aðgerða: Hækka tryggingabætur verulega til að íslensk þjóð geti skamm- laust borið sig saman við þær lýðræðisþjóðir sem sambæri- legar eru henni að þjóðartekjum. Draga verulega úr þeim harðneskjulegu tekjutengingum sem öryrkjum er gert að bua við - tekjutengingum sem eiga rík- an þátt í að brjóta niður einstaklinga og fjölskyldur. Hverfa algjörlega frá tengingu við tekjur maka. Hækka skattleysismörk og hverfa að fullu frá skattlagningu húsaleigubóta. Skila öryrkjum að fullu og öllu þeim niðurgreiðslum sem þeir áður nutu til lyfjakaupa, símanotkunar og bifreiðakaupa - nauðsynja sem varða öryrkja meira en flesta aðra og vega hlutfallslega mun þyngra í heildarútgjöldum þeirra. Afla ítarlegra upplýsinga um þann margvíslega sparnað sem hlytist af eflingu almannatrygginga og kynna niðurstöð- urnar eigi síðar en hálfu ári fyrir næstu þingkosningar. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 25

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.