Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Page 31

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Page 31
bærilegar því sem var í upphafi ára- tugarins sagði hann: “Ef eitthvað er hafa öryrkjar fengið ennþá verri útreið. Að mínu mati, herra forseti, er einn ljótasti smánar- bletturinn á velferðarkerfinu íslenska, eins og það hefiir verið útleikið eftir hremmingar s.l. tíu ára, smánarlega lág samfélagsleg laun öryrkja, jafnvel fólks sem ungt að árum hefur misst starfsorkuna, svo ekki sé talað um hina niðurlægjandi tengingu bótanna við laun maka.” Þingmaðurinn sagði að góðærinu, sem allar ræður forsætisráðherra hæf- ust á, væri harla misskipt: “Ákveðnir hópar hafa sannarlega efnast hratt á undanförnum árum. Hlutur þeirra hefur síðan verið gerður enn betri, m.a. með skattalegum ívilnunum sem taka til fjármagnsgróða og hlutabréfa- viðskipta á sama tíma og skattbyrðin hefur sannarlega þyngst á lægstu laununum gegnum það að skattleysis- mörk hafa ekki fylgt verðlagsþróun.” Þá sagði Steingrímur: “Ríkisstjórn- in sýnir ótrúlegt tómlæti gagnvart vanda annarra aðila í samfélaginu. Hænufet hafa verið stigin með löngu millibili nú upp á síðkastið til að bæta hag öryrkja og aldraðra, en oftar en ekki tekin jafnharðan aftur, t.d. með breytingum og hækkun lyfjakostnaðar eða öðrum slíkum hlutum.” S v e r r i r Hermanns- son, formaður Frjálslynda flokksins, fór hörðum orð- um um fram- göngu síns gamla flokks, Sjálfstæðis- flokksins. I upphafi máls síns vitnaði hann í og gerði að sín- um eftirfar- andi ummæli Nóbelsverð- launahafans Giinter Grass: “Það gildir hið sama um kapítalistana og kommúnistana. Þeir trúa sinni eigin lygi.” Sverrir hélt því fram að að kapítal- ismi í ógeðfelldri mynd hefði náð heljartökum á íslensku efnahagslífi. “Sjálfstæðisflokkurinn hefur svikið sína fyrri fijálslyndu stefnu í grund- vallaratriðum. Kjörorðinu Stétt með stétt hefur verið varpað fyrir ofurborð og flokkurinn gerst verkfæri í hönd- um sérhagsmunaklíkna. Auðvald, í höndum fárra, hefur náð undirtök- unum og Framsóknarflokkurinn gengur gírugur undir jarðarmenið.” Þingmaðurinn velti því fyrir sér hvort forsætisráðherra tryði þeim orðum sínum sem að framan var vitn- að til um að þess hafi sérstaklega verið gætt að kaupmáttaraukningin næði einnig til öryrkja. “Skyldi Davíð sjálfur trúa þessu?” spurði Sverrir og bætti við: “Að minnsta kosti ber hann þetta á borð fyrir fólkið sem mætti hér á Austurvelli við þingsetningu í gær, án þess að blikna eða blána.” Þá vitnaði Sverrir í eina þeirra fjöl- mörgu staðfestinga sem fram hafa komið um vaxandi neyð öryrkja og sagði: “I febrúar á þessu ári gerði Rauði kross Islands kjarakönnun meðal landsmanna um stöðu þeirra sem minnst mega sín í þjóðfélaginu. í ljós kom að bilið milli fátækra og þeirra sem betur mega sín fer breikkandi. Sí- fellt fleiri þurfa að leita hjálpar til að geta fleytt fram lífi sínu. Hópar lág- launafólks, einstæðinga, öryrkja og aldraðra búa við svo þröngan kost að um sára fátækt er að tefla. Þetta eru staðreyndirnar sem við blasa á hinu auðuga íslandi. Hvers vegna? Vegna þess að auðvaldið hefur náð undir- tökum og þjónar undir sína menn. Það er stefnuskráratriði nýfrjáls- hyggjunnar, thatcherismans, að minnka samfélagsþjónustuna. Liður í framkvæmd þeirrar stefnu er m.a. milljarða hækkun lífsnauðsynlegra lyfja, sem fátækir hafa ekki lengur ráð á að kaupa. Og svo stendur hér höfuð- paur kapítalistanna og slengir því framan í þjóðina að öll þau skref sem ríkisstjórnin hafi stigið undirstriki þann vilja hennar að varðveita og efla kaupmátt þessara hópa.” Síðar í ræðu sinni gerði þing- maðurinn að umtalsefni innsetningar- ræðu forseta íslands við embættis- tökuna síðastliðið sumar: “I innsetn- ingarræðu sinni 1. ágúst taldi forseti íslands sig tilneyddan að fara langt út fyrir þann ramma, sem gilt hefir um forsetaembættið og sátt ríkt um, til að vara við misskiptingu gæðanna, vax- andi hættumerkjum um fátækt og bjargarleysi.” Sverrir Hermansson: Forseti íslands sá sig tilneyddan til að vara við misskiptingu gæðanna, vaxandi hættumerkjum um fátækt og bjargar- leysi. Katrín Fjeldsted vakti athygli á því sem fram hafði komið í ræðu for- sætisráðherra að samanlagður af- gangur á ríkissjóði árin 1999,2000 og 2001 yrði um 80 milljarðar. Hún sagði það viðkvæman tíma í lífi flestra þegar börnin væru að vaxa úr grasi. “Annar mikilvægur tími eru efri árin og er mikilvægt að aldraðir geti orðið sáttir við sinn hlut í íslensku þjóðfélagi. Hið sama gildir um ör- yrkja.” Þá sagði Katrín: “Ég vil að lokum hvetja ykkur, áheyrendur góðir, til að hafa náið samstarf við okkur alþingis- menn sem störfum hér í ykkar um- boði.” Ólafur Örn Haraldsson gerði ástandið á höfuðborgarsvæðinu að umtalsefni og sagði í því sambandi m.a: “Hin gífurlega fólksljölgun hér kallar á brýnar aðgerðir í byggða- málum á höfuðborgarsvæðinu, að- gerðir sem m.a. felast í vegamálum, húsnæðismálum, löggæslu, fíkniefna- málurn og margvíslegum stuðningi við aldraða, sjúka, fatlaða og fátæka. í Reykjavík er líka að finna fólk, þar á meðal einstæða foreldra, sem hafa svokallaðar lægri millitekjur. Þetta fólk hefur svo sem flest það sem þarf til hnífs og skeiðar og brýnustu nauð- synjar, en það getur sig varla hreyft vegna hinna lágu launa. Lausn slíkra verkefna, sem ég hef hér nefnt, í Reykjavík eins og annars staðar á landinu bíður okkar.” Þuríður Backman sagði að vissu- lega bæri að þakka gott aðhald og styrka efnahagsstjórn. “En fyrir það markmið að skila 26 milljarða króna tekjuafgangi ríkissjóðs á þessu ári og 30 á því næsta munu mjög margir hópar þjóðfélagsins líða sárlega. Þetta eru aldraðir, öryrkjar, sjúklingar, fátæklingar og enn fleiri sem vegna óeðlilegs aðhalds í ríkisrekstri munu búa áfram við bág kjör og lífsgæði. Það er áfellisdómur fyrir ríkis- stjómina að í öllu góðærinu hafi þótt ástæða til að stofna samtök gegn fá- tækt. Lífskjör einstæðra foreldra, bótaþega almannatrygginga og fólks í láglaunastörfum verður að bæta og til þess hefði þurft að ráðstafa hluta af tekjuafgangi ríkissjóðs.” G.Sv. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 31

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.