Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Qupperneq 33

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Qupperneq 33
Læknarnir þrír, Þorkell, Árni og Kristinn. Vilhjálmsson að stýra málþinginu. Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis- og tryggingaráðherra flutti þessu næst ávarp. Hún sagði þau hjá LHS mikla keppnismenn sem alltaf væru að skora hjá sér. Hún sagði alla sann- gjarna gagnrýni nauðsynlega en meginatriði væri forgangsröðun í heilbrigðisþjónustunni, þar sem menn yrðu að velja og hafna. Aðalatriðið væri að allir fengju þjónustunnar notið á jafnræðisgrund- velli án tillits til þess hver efnahagur væri. Hún þakkaði LHS hinn mikilvæga stuðning þeirra við sameiningu sjúkrahúsanna í Reykjavík og um leið hinar dýrmætu tækjagjafir LHS svo víða og af svo mikilli rausn. Takmarkið ætti alltaf að vera það að við íslendingar værum í fremstu röð. Þá flutti Matthías Halldórsson að- stoðarlandlæknir hið merkasta erindi. Hann kvað kransæðasjúkdóma nánast óþekkt fyrirbæri á fyrstu árum aldarinnar. Um og upp úr 1970 hefðu einhvers konar hjartakvillar verið orðin langalgengasta dánarorsökin en síðan þá hefði dánarhlutfallið sífellt farið lækkandi. Hann minnti á að um 1960 hefði varla verið um áhættu- þætti rætt eða engin áhersla á þá lögð. Hann minnti á þá s.s. reykingar, of- fitu, háan blóðþrýsting, hátt kólest- eról, hreyfingarleysi, streitu og mikla áfengisneyslu. Öllu þessu gætum við breytt. Hinu gætum við ekki breytt sem tengdist kyni, erfðum og aldri. Hann rakti svo ávinninga ýmsa: reykingatíðni stórminnkað, mikið unnist varðandi háan blóðþrýsting og hátt kólesteról, hreyfing fólks al- mennt meiri. Hins vegar færi offitan stórvaxandi, ótrúleg aukning í raun og tjölgun “ístrubelgja” af báðum kynjum mikil. Streitan hefði heldur ekki minnkað nema síður væri og nefndi hættuna af allri færibanda- vinnu í þessu sambandi. Hann kvað fólk eiga að vera vel meðvitað um áhættuþættina, hann kvað stjórnvöld geta komið að mál- um á margan hátt, en breytt varanleg hegðun til bóta best hjá fólki. Matthías sagði að við stæðum vel í samanburði við aðrar þjóðir bæði hvað aðstöðu alla varðaði svo og ætt- um við vel menntaða lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk. Lokaorð hans voru um að framlög til heilbrigðisþjónustunnar borguðu sig svo sannarlega. Helgi Már Arthúrsson fræðslufull- trúi lýsti á glöggan og næman hátt reynslu hjartasjúklings. Rakti við- brögð sín tveim dögum eftir hjarta- áfallið, fúll og reiður, þótti þetta afar ósanngjarnt hjá 46 ára gömlum manni. Áfallið varð úti í Finnlandi og skapaði það ýmis viðbótarvanda- mál, því allir töluðu finnsku. Hann lýsti þrekleysi sínu og slappleika vel en í Finnlandi var hann í hálfan mánuð, fór svo í æðaútvíkkun hér heima sem var ævintýri líkust, því á meðan hlýddi hann á hádegisfréttir. Sagði svo frá sínu mikla láni að kom- ast á Reykjalund, þar sem endur- hæfing öll var einstaklega góð, enda náðist þrekið ótrúlega upp. Svo kom að hvunndeginum þar sem alvaran tók við með sínum mörgu vandamálum. Hvað mátti bjóða sér? Mataræðið fyrir bí. Ekki fara i sama lífsmunstrið aftur. Taka fullt mark á viðvörunum líkamans. Lýsti inn í lífsmunstrið nú: reyk- ingar ekki inni í myndinni, þrek- æfingar, líkamsrækt og hjólað af Fundarstjórar landsþingsins, Guðmundur og Dóróthea. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS 33

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.