Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Blaðsíða 36

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Blaðsíða 36
AF STJÓRNARVETTVANGI Fundur var haldinn í stjórn Öryrkjabandalags íslands þriðjudaginn 26. sept. og hófst kl. 16.45. Formaður, Garðar Sverrisson setti fund og bauð fólk velkomið. Síðan kynntu menn sig. Fulltmar 18 félaga vom mættir á fundinn. Gísli Flelgason var veikur og reit Guðríður Ólafsdóttir fundar- gjörð. 1. Yfirlit formanns Formaður rakti fyrst ýmsa þætti í þátttöku okkar i norrænu samstarfi. Frá 1999 hefur formennskan í sam- starfi öryrkjabandalaga á Norður- löndum verið í höndum formanns Öryrkjabandalags Islands, fyrst Hauks Þórðarsonar og síðan Garðars Sverrissonar. Formennskunni fylgdi um leið stjórnarseta í norrænni þróunarmiðstöð hjálpartækja. A vettvangi þessurn væri yfir- færsla málefna fatlaðra til smærri stjórnsýslueininga mikið rædd svo og einkavæðing í þessum geira þar sem ýmsar siðferðilegar spurnir vöknuðu. Athyglisvert væri að margfalt fjölmennari þjóðir en við hefðu áhyggjur af tilflutningi til smærri eininga og væru þær þó mjög stórar miðað við okkar. Formaður greindi einnig frá velheppnaðri fundaferð um Austurland sem hefði sannfært menn um það að rétt væri að vinna með eldri borgurum að kjara- og réttindamálum svo mjög sem hagsmunir öryrkja og meiri- hluta eldri borgara færu saman. Hann ræddi einnig árangursríkt sam- starf við kirkjuna og verkalýðs- hreyfinguna. Formaður minnti á þátttöku okkar í samráðsnefnd við Tryggingastofnun ríkisins sem margt gott hefði leitt af sér m.a. námskeið fyrir nýmetna öryrkja og væntanlegt örorkuskír- teini með mynd til alhliða nota. Fulltrúar ÖBI tækju þátt í nám- skeiðunum með kynningu sem hvatningu. Þá greindi formaður frá því að þýðingu Meginreglna SÞ hjá Matthíasi Kristiansen væri nú lokið og félögin fengju þær nú til yfir- lestrar og samanburðar. Þá sagði formaður frá því að málflutningur fyrir Hæstarétti færi fram í rnáli okkar gegn TR hinn 20. nóv. n.k. og dómur svo upp kveðinn í framhaldi af því. Loks minnti formaður á fund Átakshóps öryrkja 2. okt. á Hótel Borg í tengslum við þingsetningu. Nokkrar umræður urðu og í sam- bandi við hjálpartækjamál minnti Málfríður Gunnarsdóttir á sérstöðu heyrnargeirans, þar sem verulegra úrbóta væri þörf. Einnig benti Kristján Sigurmundsson á mögu- leikana á samstöðu með eldri borg- urum vegna starfsmannaeklu í þjónustu við bæði aldraða og fatlaða. 2. Starfssamningur við framkvæmdastjóra Formaður kynnti starfssamninginn en aðalstjórn skal staðfesta slíkan samning. Samningurinn er nær alveg eins og starfssamningur við núv. framkvæmdastjóra og launa- tölur þær sömu. Starfssamningurinn var að lestri hans loknum samþykktur samhljóða. 3. Aðalfundur ÖBÍ 21. okt. Helgi Seljan gjörði grein fyrir starfi laganefndar, nefndi fyrst nokkur atriði sem sátt væri um innan nefndarinnar og ýmis þeirra mætti hugsa sér að upp væru borin á aðal- fundi. Kynnti einnig ýmsar hug- rnyndir um breytingar m.a. frá for- manni nefndarinnar, Arnóri Péturs- syni og einnig Garðari Sverrissyni sem líka situr í nefndinni, en þær hugmyndir yrði betur að ræða. Lagði til útvíkkun laganefndar eftir aðalfund og ætti sú nefnd svo að skila áliti á maífundi stjórnar 2001. Sú skipan samþykkt en einnig það að leggja þrjár lagabreytingar fyrir aðalfundinn: afnám sólarlags- ákvæðis um setu í framkvæmda- stjórn, ákvæði um úrsögn félags úr ÖBÍ og lögfesting kjörnefndar. Kjör- nefnd var hins vegar kosin á fund- inurn: Dagfríður Halldórsdóttir, Helgi Hjörvar og Þórir Þorvarðarson. Guðríður Ólafsdóttir bað fulltrúa fé- laganna að reka á eftir skilum fé- laganna á tilkynningum um fLilltrúa í stjórn ÖBI svo og fulltrúa á aðalfund. Kvað brýnt að þær bærust sem allra fyrst. Minnti einnig á skýrslur nefnda og annarra sem þyrftu að komast til sín mjög fljótlega. 4. Yfirfærsla málefna fatlaðra Formaður kvað fá mál hafa fengið eins ítarlega umijöllun hjá banda- laginu og vísaði m.a. til fjölsóttrar ráðstefnu um málið 15.sept. 36
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.