Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Side 42
Alþjóðlegi geðheilbrigðis-
dagurinn 10. október
Með ýmsu at-
hyglisverðu
móti var hald-
ið upp á Alþjóðlega geð-
heilbrigðisdaginn að
þessu sinni. Fyrir há-
degi þann dag var kynnt
myndarlega verkefnið
Geðrækt - heilsuefling,
sem er á vegum Geð-
hjálpar, Landlæknis-
embættisins og geðsviðs
Landspitala Háskóla-
sjúkrahúss. Styrktar-
aðilar eru: Delta hf, Is-
lensk erfðagreining,
Landsbanki Islands og
Planet Pulse. Kjörorðið
er: Engin heilsa án geð-
heilsu. Gefið hafði verið út og dreift
til gesta í einkar smekklegri möppu
hið læsilegasta og fróðlegasta efni um
m.a. verkefnið Geðrækt, haustdag-
skrá þess, geðveika daga í Háskóla
Islands (fyrirlestraijöld), námskeið
um geðheilsu og geðrækt o.fl. Verk-
efnið er til húsa í húsakynnum Geð-
hjálpar Túngötu 7. Það var Sigurður
Guðmundsson landlæknir sem setti
hátíðlega athöfn á Hótel Borg og
stýrði henni svo. Landlæknir sagði
að full þörf væri þess að íjalla af al-
vöru um geðsjúkdóma og sér virtist
þjóðfélagið vera tilbúið til þess.
Hann gat þess að Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunin teldi að af 10 sjúk-
dómum sem skæðastir yrðu á næstu
árum væru 5 geðsjúkdómar. Þetta
verkefni, Geðrækt væri ekki einstakt
átak heldur 3ja ára samfellt verkefni,
þar sem margir kæmu mæta vel að.
Hannes Pétursson yfirlæknir fagn-
aði þessu framtaki vel, sagði geð-
ræktar hér fulla þörf s.s. í öðrum
löndum. Hannes sagði að Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunin væri með
geðheilbrigðismál í forgangsröðun.
Þróunin annars staðar enda sú að
vægi geðheilsu færi vaxandi. Gjörði
að umtalsefni hinar skelfilegu af-
leiðingar geðsjúkdóma fyrir sjúkling-
ana, aðstandendurna og svo samfé-
lagið í heild. Nefndi sem dæmi að
þunglyndi kostaði sænska ríkið 3% af
vergri þjóðarframleiðslu.
Góð geðheilsa væri hverju samfé-
lagi dýrmæt auðlind. Víðtækt og við-
varandi samstarf yrði nú um forvarnir
og geðrækt og um leið unnið gegn
fordómum svo sem nú væri skipulega
gjört í Evrópulöndum. Einnig lögð
áhersla á að draga sem mest úr fé-
lagslegri einangrun og að því beindist
m.a. aukin atvinnuþátttaka.
Formaður Geðhjálpar, Eydís
Sveinbjarnardóttir kvað verk-
efninu og þeim sem að stæðu vera
ætlað að vera leiðandi afl um geð-
rækt. Vökvun og næring væri nauð-
syn fyrir sálina og jákvætt lífsviðhorf
bráðbrýnt. Umræðan yrði að vera
opin og jákvæð. Ala þyrfti börnin
upp þannig að þau legðu rækt við
sjálfið, en hver og einn velur svo leið
til að ná árangri í eigin lífi.
Héðinn Unnsteinsson, starfsmaður
verkefnisins Geðrækt byrjaði á því að
taka lithium - töfluna sína sem hann
hafði gleymt í erli morgunsins.
Héðinn minnti á að 22% landsmanna
ættu einhvem tímann í lífinu við ein-
hvers konar geðraskanir að glíma. í
baráttunni giltu framar öðru forvamir
og fræðsla. Hugmyndin að verkefninu
kviknaði í maí-júní '99 og meðgangan
því orðin fyllilega á fílsvísu.
Hann sagði menn hafa
verið orðna þreytta á að
alltaf væri verið að rann-
saka og kanna en ekkert
raunhæft væri gjört.
Gjörði grein fyrir
helstu þáttum verkefnis-
ins m.a. fræðsluferðum í
alla skóla frá leikskólum
og áfram, heimsóknum á
vinnustaði og í stofnanir,
fræðslu til heilbrigðis-
starfsmanna og svo fram-
vegis. Færði fram miklar
þakkir til allra er að
hefðu komið á einhvern
veg.
Þá undirrituðu aðilar
verkefnisins og styrktar-
aðilar samstarfssamning og síðan
opnaði Örn Arnarson sundkappi vef
Geðræktar með pompi og pragt.
Landlæknir minnti svo á styrk heil-
brigðis- og tryggingaráðuneytis í
upphafi verkefnis sem kom því í raun
af stað.
Hann kvaðst binda bjartar vonir við
að árangur verkefnisins yrði í góðu
samræmi við erfiðið. Allmargt fólk
var þarna saman komið og fagnaði
vel vænum áfanga til úrbóta í geð-
ræktarmálum.
Eftir hádegi lagði ritstjóri leið sína
niður í Vin á Hverfisgötu - at-
hvarf Rauða krossins fyrir geðfatl-
aða, en þar var verið að setja form-
lega hina fallegustu og ljölbreyttustu
myndlistarsýningu. Formaður Rauða
krossins, Anna Þrúður Þorkelsdóttir,
fagnaði hinu líflega og þróttmikla
starfi sem unnið hefði verið í Vin og
þar hefði listin m.a. blómgast, sem
best sæist á veggjunum nú. Vinhefði
reynst svo mörgum regluleg vin. Að-
alatriðið væri að vera hinn virki þátt-
takandi, hlutverk okkar æðst að eyða
hvers konar fordómum. Opnaði svo
sýninguna formlega og sannarlega
var þar margt fallegt og ijarska vel
unnið, bar listfengum höndum svo
margra hið fegursta vitni.
Og ekki var til setunnar boðið, því
42