Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Page 44
Dagþjónustan að Gylfaflöt
formlega opnuð
Björn og Dagbjörg.
Það var gnótt góðra
gesta viðstatt
einkar hlýlega at-
höfn hinn 29. sept. sl. að
Bæjarflöt 17 í Grafar-
vogi þegar formlega var
í notkun tekið nýtt dag-
þjónustuúrræði sem
hefur hlotið heitið: Dag-
þjónustan Gylfaflöt.
Það var Björn Sigur-
björnsson framkvæmda-
stjóri Svæðisskrifstofu
Reykjavíkur sem stýrði
athöfninni og flutti í
upphafi ávarp þar sem
hann kom víða við.
Hann bauð gesti hjartan-
lega velkomna til sam-
fagnaðar þessu lengi
þráða úrræði, sem nú væri orðið
virkileiki dagsins. Einn áfangi af
vonandi mörgum á næstu árum.
Vandinn í dagþjónustuúrræðum
hefði verið greindur og alveg ljóst að
þörf úrræða væri mikil og brýn.
Málefni barna og unglinga væru þar
í brennidepli brýnust - bæði búseta
og stoðþjónusta. Hann sagði okkur
ekki mega gleyma örri framþróun,
nefndi sem dæmi að í ársbyrjun
1999 hefði svæðisskrifstofan haft
yfir að ráða 206 stöðu-
gildum en 229 í árslok.
Til samanburðar hefðu
stöðugildin í árslok
1990 verið 54.
En þrátt fyrir 775
milljón króna framlag til
svæðisskrifstofu á íjár-
lögum þessa árs þá væri
aldrei nóg að gjört,
neyðin ein ríkti alltof
víða. Hjálpin væri ekki
brýn á morgun - heldur í
gær. Hann ræddi hina
miklu og tilfinnanlegu
manneklu í umönnunar-
geiranum þar sem
launakjörin væru aðal-
orsökin, þar þyrfti úr að
bæta.
Þakkaði þeim mörgu er lagt hefðu
máli þessu lið.
Þá tók til máls Dagbjörg Baldurs-
dóttir forstöðumaður dagþjón-
ustunnar. Hún byrjaði á því að færa
eiganda húsnæðisins (en dag-
þjónustan er í leiguhúsnæði) þakkir
fyrir lipurð alla í samskiptum og það
að fá leyfi til þeirra breytinga er best
hentuðu starfseminni. Dagþjónustan
er ætluð fólki 16-25 ára, flest frá
Reykjavík, nokkur frá
Reykjanesi.
Markmiðið væri að
efla lífsleiknina, efla
líkamlegan og andlegan
þroska og bæta sjálfs-
myndina. Þegar allt er
komið í horf þá eiga að
vera þarna 52 hálfs-
dagsrými eða þá 26
heilsdags.
Reiknað er með 15
stöðugildum þá.
Dagbjörg greindi frá
því að starfsemin hefði
hafist sl. vor með þá
takmörkuðum fjölda.
Nú væri verið að
undirbúa vetrardag-
skrána en í dag væru
þarna 32 ungmenni, þar af 3 í heils-
dagsvistun. Starfið fælist bæði í
hópavinnu og vinnu með einstakl-
inga. Viss þemu valin fyrir hópana,
handavinna, tónlist, eldhússtörf
o.s.frv. Það væri farið í skoðunar-
ferðir, hlustað á útvarp og horft á
sjónvarp, spjallað saman, hlustað á
tónlist og dansað.
Dagbjörg gjörði mannekluna að
umtalsefni, fólk hefði lifandi áhuga
fyrir starfinu, en hefði ekki efni á að
sinna því. Þar væri
brýnt úr að bæta í launa-
málurn. Horfði samt
björtum augum fram á
veginn og kvað ung-
mennin einkar jákvæð,
þarna væri notalegt and-
rúmsloft og þau segðu
að þarna liði þeim vel.
Lýsti svo húsnæðinu
sem gestir skoðuðu svo
á eftir, en það er á tveim
hæðum, vistlegt mjög
og vel búið m.a. hvað
tölvur varðar. Teppi
mikið unnið af nemend-
um skrýddi vegg einn
og ljómandi myndir
höfðu verið málaðar og
prýddu veggi.
Fríður hópur og huggulegur.
44