Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Qupperneq 45
Félagsmálaráðherra Páll Péturs-
son, tók þessu næst til máls og
lýsti sérstakri ánægju með formlega
opnun dagþjónustunnar. Þegar full-
rnannað væri gætu 40-42 átt þarna
hið besta athvarf.
Ráðherra greindi frá ákveðnu átaki
hvað dagþjónustuúræði varðar í kjöl-
far úttektar sem sýnt hefði vel hina
brýnu þörf. Nefndi til viðbótar
þessu ný úrræði í dagþjónustu á
Akureyri, á Húsavík og á Hornafirði.
Án dagþjónustu væru nú 29 í
Reykjavík, þar af á sambýlum 14, á
Reykjanesi 11, þar af 4 á sambýlum.
Hann kvað svæðisskrifstofu eiga
völ á meira húsnæði á 2. hæð hússins
og ákvörðun um það yrði tekin innan
skamms. Vænti þess einnig að
áfangi yrði kynntur bráðlega í bú-
setumálum. Færði öllum er nytu og
að kæmu einlægar heillaóskir.
Halldór Gunnarsson formaður
Þroskahjálpar færði fram heillaóskir
samtakanna og færði dagþjónustunni
málverkið: Ljúfir tónar eftir Rut
Rebekku. Sagði að Þroskahjálp
hefði komið sér upp listaverka-
galleríi sem gripið væri til við
atburði sem þessa, það saxaðist
óðurn á birgðir og heitasta óskin að
atburðir yrðu svo margir og góðir að
galleríið tæmdist.
Garðar Sverrisson formaður
Öryrkjabandalagsins fagnaði þess-
um góða áfanga, þessum gleðidegi í
málaflokknum, færði dagþjónust-
unni fagran blómvönd. Hann gjörði
um leið launamálin að umtalsefni og
kvað brýnt að stórbæta kjör þeirra
sem að þjónustustörfum ynnu í þágu
fatlaðra og annarra.
Kristján Sigurmundsson fram-
kvæmdastjóri Styrktarfélags van-
gefinna færði dagþjónustunni platta
Styrktarfélagsins að gjöf og árnaði
henni allra heilla. Gestum gafst svo
tækifæri á að skoða húsakynni, sem
öll eru einkar vistleg og síðan gæddu
menn sér á gómsætum veitingum.
Vonandi kemst starfsemin þarna
sem fyrst í fullan gang til blessunar
og gagns fyrir alla þá sem þangað
sækja og munu sækja góða þjónustu
og eiga væna vist.
Megi heilladísir standa vörð um
dagþjónustuna.
H.S.
Kristján Árnason Skálá:
Þrjú smáljóð
Dagsins djúp
Ennþá legg ég á djúpið í dag,
dögun ég sé um stefnið freyða.
Og í dag skal ég dýran brag,
úr djúpum vitundar ná að seiða.
Eins þó ég væri ekki til,
aðeins myndvarp af gleymdu ljóði.
Sauðþrár andi sem ætlar skil
um eilífð standa á lífsins sjóði.
Bergmál af löngu liðnum óm,
í leit að því sem er hvergi að finna.
Fata morgana helbert hjóm
á heitum sandauðnum drauma þinna.
Draumaland
(þýðing úr ensku.)
Fræddu mig um gersemar sem glóa,
griðastað er engir harmar þjá.
Djúpan frið er líkist lygnu fljóti,
liðast gegnum engin draumablá.
Finn mér stað þar sólrík sumarblíða,
sífellt ríkir innri friði vígð.
Og þögnin ein mér hvíslar hljótt í eyra,
í heimi þar sem engin synd er drýgð.
Haust í Skagafirði
Þýður blærinn gælir við heitar grundir,
í gullnu rökkri nóttin svæfir daginn.
Birta og skuggi eiga ástafundi,
í armlögum heitum hverfa þau í sæinn.
Úr húmi nætur lyftist léttur roði,
lítill geisli fæddur er að morgni,
nýrra heitra funda fyrirboði.
Frumkraftur lífsins, sífellt endurborni.
Kristján Árnason Skálá.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
45