Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Síða 46
Frá Geðhjálp
Spjallað við Svein Magnússon
Um leið og Sveinn Magnússon
kom hingað í heimsókn feng-
um við hjá honum ýmsar frétt-
ir frá Geðhjálp og freistað skal þess að
tína það helsta til.
Sveinn segir sjö manna stjórn Geð-
hjálpar nú svo skipaða: Eydís Svein-
bjarnardóttir formaður og aðrir í
stjórn: Karl Valdimarsson, Sigríður
Kristinsdóttir, Sigursteinn Másson,
Tryggvi Björnsson, Þóra K. Sigurðar-
dóttir og Þórunn Gunnarsdóttir. Geð-
hjálp er til húsa að Túngötu 7. Alls
eru starfsmenn Geðhjálpar 19, þar af
11 starfsmenn stuðningsþjónustu
búsetu og annarrar liðveislu. Fastir
skjólstæðingar Geðhjálpar eru 40, en í
Geðhjálp eru skráðir 580 félagar,
þarna er rekið mötuneyti og þangað
leita æ fleiri, en þess freistað að hafa
mötuneytið með fjölskyldufyrirkomu-
lagi.
I félagsmiðstöðinni er við margt
fengist s.s. smíðar, sauma, fondur,
farið í keilu, á kaffihús og í bíó. Þar er
einnig iðkuð listmeðferð (art therapy)
og unnið er að því að fá iðjuþjálfa á
staðinn. Þarna eru starfandi sjálf-
styrkingarhópar fyrir aðstandendur
m.a. og svo eru hópar fyrir einelti,
fælni og kvíða, geðhvörf, geðklofa og
þunglyndi. Sveinn segir þetta ganga
mjög vel, segir húsfundi með skjól-
stæðingum vikulega og einnig starfs-
mannafundi.
ann segir verulega þörf á að
sinna fjármálum vel því allt
byggist nú á traustri fjárhagslegri
undirstöðu. Framundan er margt.
Markmið stjórnar árið 2001 er að
komið verði á fót upplýsingalínu
(24ra stunda), aukin aðstoð við að-
standendur og fá bakhjarla með
reynslu fyrir þá sem eru að greinast.
Sveinn leggur áherslu á það að eflt
sé samstarf við þá er vinna að sömu
markmiðum: Dvöl, Geysi, Geðvernd-
arfélagið, Geðverndarfélag Akureyrar
og Vin. Hann greinir okkur einnig frá
því að sameiginlegt sumarmót hags-
munafélaga fólks með geðraskanir á
Norðurlöndum verði haldið hér á landi
næsta ár.
Sveinn víkur að stuðningsþjónustu
Geðhjálpar þar sem um 30 einstakl-
ingum er veitt studd búseta og önnur
liðveisla, ijármagnað af félagsmála-
ráðuneyti og Félagsþjónustu Reykja-
víkur.
Þetta fólk býr á Bárugötunni, Vestur-
götu, Skarphéðinsgötu og í Þverárseli.
Sveinn minnir svo á Geðrækt - verk-
efnið mikla sem vel hefur farið af stað,
en þess getið grannt annars staðar í
blaðinu.
Að lokum gladdi það sannarlega geð
okkar, að Sveinn upplýsti okkur um
það, að trúnaðarmaður fatlaðra hjá
Svæðisráði Reykjavíkur, Hrefna Har-
aldsdóttir muni verða með fasta við-
talstíma hjá Geðhjálp.
Sveini eru þakkaðar afar ágætar
upplýsingar um leið og Geðhjálp er
alls góðs árnað í bráð og lengd.
H.S.
Kynning fram-
kvæmdastjóra
r
Asumardögum síðla urðu fram-
kvæmdastjóraskipti hjá Geð-
hjálp. Við framkvæmdastjóra-
starfi af Ingólfi H. Ingólfssyni tók
Sveinn Magnússon. Sveinn kom
hingað að beiðni ritstjóra einn
hrollkaldan haustdag og niður-
staðan sú, að þessu viðtali okkar
yrði tvískipt, annars vegar stutt
kynning á Sveini og hins vegar
nokkur orð um stöðuna hjá Geð-
hjálp og framtíðarverkefnin þar.
Sveinn er fæddur á Selfossi 4.
sept. 1957, en fluttist til Reykja-
víkur eins árs með foreldrum
sínum, sem eru Hanna Hofsdal
Karlsdóttir og Magnús L. Sveins-
son. 1977 lauk Sveinn stúdents-
prófi frá hagfræðideild Verslunar-
skóla Islands. Sveinn hefur síðan
við ýmislegt fengist, verið m.a. að-
stoðarmaður framkvæmdastjóra
hjá Húseiningum hf., innkaupa-
stjóri hjá Stálvík hf., markaðsstjóri
hjá útvarpsstöð, flugþjónn og að-
stoðarframkvæmdastjóri hjá Furu
ehf. Síðast starfaði hann sem full-
trúi í fyrirtækjadeild Islandsbanka.
Hann hefur einnig fengist við ýmis
tímabundin verkefni. Sveinn er
kvæntur Sólveigu A. Skúladóttur
leikskólakennara og nú starfandi
lánafulltrúa hjá Lífeyrissjóði
verslunarmanna og eiga þau tvo
syni, 13 og 20 ára.
Framkvæmdastjórastarfinu hjá
Geðhjálp fylgir svo yfirstjórn
stuðningsþjónustu Geðhjálpar og
verkefnisins Geðrækt. Sveinn
segir starfið leggjast mjög vel í sig
og verkefni séu hvarvetna á fleti
fyrir. Héðan eru Sveini og Geð-
hjálp sendar hlýjar hamingjuóskir.
Megi starfi allra þar fylgja farsæld
46