Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.2000, Síða 52
Frá
Klúbbnum
Mynd úr myndarlegu blaði. Frá Þýzkalandsför.
Geysi
Hinn 8. sept. sl. hélt Klúbbur-
inn Geysir upp á eins árs af-
mæli sitt með myndarlegum
hætti í húsakynnum sínum að Ægis-
götu 7 í Reykjavík.
Var þar gnótt gesta sem heimafólks
og gleði ríkti í ranni. Veglegar veit-
ingar voru fram bornar “að hætti
hússins” og Guðrún Hannesdóttir
stjórnarformaður ávarpaði gesti
nokkrum vel völdum orðum.
Sama dag kom út annað tölublað 1.
árgangs af blaði klúbbsins sem Anna
S. Valdimarsdóttir forstöðumaður er
ábyrgðarmaður að.
Blaðið er hið fallegasta að öllu útliti
og innihaldsríkt mjög. Rétt skal hér
tæpt á efnisþáttum. Á forsíðunni er
hamingjuósk til Marteins Más, en
mynd af honum í starfi prýðir ham-
ingjuóskina. Leiðaraspjall rita Hilm-
ar Jón o.fl., þar er minnt á ýmislegt í
aðdraganda og stuttri en líflegri sögu
klúbbsins. Eins er þar reifuð fram-
tíðarsýn og áherslan eins og ætíð lögð
á atvinnusköpun fyrir félagana. Við-
tal er við einn starfsfélagann Jónínu
Ólafsdóttur sem er mjög virk í starfi
og hefur verið frá upphafi. Hún segir
frá störfum sínum einnig en segist
bjartsýn á framtíðina með stuðningi
frá Geysi. Viðtalið tók Valdimar Jak-
obsson. Lífleg er frásögn Jóns Sigur-
geirssonar af heimsókn í Fountain
house í Kaupmannahöfn, þar ríkti
virkni og verulegt líf sem Jón lýsir
ágætlega.
Hilmar Harðarson á gott innlegg
um muninn á hávaða og hljóði.
Hver er ég er dálítið hugnæm hug-
leiðing.
“Er ég maður með huga,
eða maður með hendur?
Er ég maður sem situr
eða maður sem stendur?”
“Er ég maður sem svarar,
eða maður sem spyr?
Er ég maður með byr?”
Anna Valdimarsdóttir og Jón Sigur-
geirsson segja hressilega frá Þýska-
landsför, á ráðstefnu Fountain house í
Evrópu. Þar var kynningarbás settur
upp um Geysi og vakti mikla athygli.
Heimir Tyrfingsson á viðtal við Jón
Snorrason, stjórnarformann Hamp-
iðjunnar, en tilefnið það að þrír úr
stjórn Geysis skiptu í sumar sem leið
með sér að líta eftir klúbbnum: Guð-
rún Hannesdóttir, Jón Snorrason og
Styrmir Gunnarsson gegndu þessu.
Jón segir í viðtalinu, að þarna fari
fram merkilegt starf og framtíðar-
sýnin sé að klúbburinn þroskist og
dafni. Á baksíðunni eru svo frekari
upplýsingar um Klúbbinn Geysi og
komutjölda einstaklinga í hverjum
mánuði sem er ánægjulega mikill.
Haldið ótrauð áfram og látið Geysi
gjósa.
H.S.
Sólveig Eiríksdóttir fulltrúi Eskifirði:
Um rétt öryrkja til niður-
fellingar á bifreiðagjaldi
Borið hefur á því að öryrkjar hafi fengið synjun um niðurfellingu á bif-
reiðagjaldi. Orsök þess er sú að skv. gildandi reglugerð um niður-
fellingu, þarf bótaþegi að vera skráður eigandi þess ökutækis sem fellt er
niður af en gjarnan er maki einn skráður sem eigandi. Til að menn njóti
þessa er nægilegt að vera skráður meðeigandi ökutækisins og er hægt að
fá sérstök eyðublöð- “Tilkynning um meðeiganda” hjá Skráningar-
stofunni hf og væntanlega eiga pósthúsin líka að vera með þessi blöð.
Starfsmaður skráningarstofu hefur upplýst um að nægilegt sé að skila
inn venjulegu blaði ef upplýsingar um bifreiðina koma þar fram og allir
eigendur skrifi undir og sé ennfremur staðfest af tveim vottum. Sé tekið
fram að þessi breyting sé vegna örorku, þá hefur skráningarstofa ekki
tekið gjald íyrir hana en annars kostar það 1.150 kr.
Ráð er að fólk drífi í að koma í gegn þessum eigendaskráningum, bif-
reiðagjald þarf að greiða tvisvar á ári og munar um minna.
Því miður veita tryggingafélög ekki afslátt á iðgjöldum til öryrkja en
spurt hefur verið um það.
Sólveig Eiríksdóttir.
“Er ég maður sem grætur,
eða maður sem hlær?
Er ég maður sem gefur,
eða maður sem fær?”
52