Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 44
Fimm uppáhaldsplötur Kidda í Hjálmum
Guðmundur Kristinn Jónsson, Kiddi í Hjálmum, er viskubrunnur þegar kemur að tónlist.
Víkurfréttir fengu hann til að velja sínar fimm uppáhaldsplötur og segja okkur hvers vegna.
The Tree of Forgiveness – John Pr
ine
Spotify sendi mér póst um dagin
n og sagði mér að ég hefði
hlustað mest á þennan listamann
á síðasta ári. Það passar. Ég
uppgötvaði þessa plötu þegar ég
var að flytja síðasta sumar
og hún hefur varla farið af plötus
pilaranum, bæði heima og í
vinnunni. Fyrir þó nokkrum árum
síðan gerði ég útgáfu af lagi,
sem John Prine hafði gert frægt, m
eð hljómsveitinni Klassart
og Sigurði Guðmundssyni. Í okkar ú
tgáfu var lagið kallað Gamli
grafreiturinn. Á þessum tíma kv
eikti ég ekki á John Prine,
nema bara því lagi. Síðastliðinn fe
brúar vorum við á tónleika-
ferð um Evrópu með Ásgeiri Traus
ta og ég hafði tekið eftir því
að John Prine var líka á tónleikafer
ðalagi um Evrópu. Ég plataði
strákana í hljómsveitinni að taka s
má krók á ferðalagið þegar
ég fann smugu til að sjá hann á tón
leikum í París á frídegi hjá
okkur. María, konan mín, Bragi V
aldimar og Sigurður Guð-
mundsson og kona hans flugu einni
g út til að koma á tónleikana.
Þetta voru bestu tónleikar sem ég h
ef farið á og þetta reyndust
síðan vera síðustu tónleikarnir han
s. Hann lést í Nashville fyrir
nokkrum dögum úr COVID-19.
44 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.