Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 12
„Verðið að vanda ykkur“
Eftir allnokkra leit að áhugaverðum
fyrirtækjum eða kauptækifærum
í fyrirtækjum duttu þau niður á
Alex-gistiheimilið og keyptu það
síðan af Guðmundi Þ. Einarssyni
og fjölskyldu. Sonur Guðmundar,
Einar Þór, var síðan ráðinn til
þeirra í hótelverkefnið enda með
góða reynslu úr þeim geira í far-
teskinu og stýrir viðskiptarþróun í
Aðaltorgi ehf. „Við Rósa horfðum á
móann hérna fyrir ofan Alex-bygg-
inguna og fljótlega kom þessi Aðal-
torgs hugmynd upp. Við settum upp
viðskiptaáætlun og kynntum hana
fyrir mörgum aðilum en náðum ekki
miklum árangri til að byrja með.
Aðilar sem við leituðum til höfðu
ekki mikla trú á svæðinu okkar en
við fengum svo góðan frumfjárfesti
sem ég hef unnið mikið með og fyrir
og hann kolféll fyrir hugmyndinni
Nýtt Courtyard by Marriott-hótel hefur risið efst á
Aðalgötu í Keflavík undanfarið eitt og hálft ár, við
gatnamót Reykjanesbrautar þar sem Flugstöð Leifs
Eiríkssonar blasir við. Það er einmitt Keflavíkurflug-
völlur sem er stór þáttur í því að Ingvar og Rósa
Ingvarsdóttir, móðursystir hans, ákváðu að láta slag
standa undir merkjum fyrirtækisins Álftavík og fjár-
festa með samfélagslegri áherslu. Út frá því gildis-
mati fjárfesti félagið ásamt fleiri fjárfestum í Alex
Guesthouse og þróaði þaðan samfélagsverkefnið
Aðaltorg. Álftavík er fjárfestingar- og þróunarfélag
og er leitt af Rósu sem er framkvæmdastjóri þess og
núverandi fjármálastjóri Aðaltorgs ehf. Rósa hefur
viðamikla reynslu úr verktakavinnu og starfaði hún
hjá verktakafyrirtækinu Atafli í fimmtán ár, m.a. sem
forstöðumaður fjármálasviðs félagsins. Ingvar, sem
er menntaður sjávarútvegsfræðingur, hefur verið við-
loðandi fisksölu til útlanda og starfaði í sjávarútvegs-
geiranum um árabil. Eftir að Ingvar kom heim frá
Þýskalandi ákváðu þau frændsystkinin að leiða saman
hesta sína og leita tækifæra á Suðurnesjum sem
þau vildu að væri ígildi samfélagsverkefnis. Úr varð
að setja í gang uppbyggingu verslunar- og þjón-
ustutorgs. Stefnan var sett á að byggja m.a. flug-
vallarhótel í móanum skammt frá flugvellinum og fá
tengingu við stóra alþjóðlega hótelkeðju. Markmiðið
var ekki bara að byggja upp arðbært fyrirtæki heldur
skyldi samfélagið í Reykjanesbæ og á Suðurnesjum
líka njóta ávinnings af því.
Liðsfélagar í Aðaltorgi eru:
Ingvar Eyfjörð, framkvæmdastjóri
Rósa Ingvarsdóttir, fjármálastjóri
Einar Þór Guðmundsson, viðskiptaþróun
Adam Calicki, verkfræðistjórnun
Alexander Ragnarsson, umsjónarmaður fasteigna
Páll Ketilsson
pket@vf.is
12 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.