Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 54

Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 54
Ingvar Gissurarson hefur, ásamt eiginkonu sinni, Margréti Hallgríms- dóttur, verið búsettur um tíma í strandbænum Jávea á Costa Blanca á Spáni en það er um 27000 manna bær u.þ.b. 35 km norðaustur af Beni- dorm. „Eftir langvarandi húsnæðisóöryggi, ótíð og dýrtíð á Íslandi þá var niður- staðan að reyna að gera það besta úr stöðunni, láta gamlan draum rætast og prófa að búa erlendis. Hér njótum við góðs veðurfars, dásam- legs umhverfis og viðráðanlegs verðlags sem hjálpar til við að við- halda líkama og sál,“ segir Ingvar um ástæður þess að hann settist að á Spáni. – Hvernig ert þú að upplifa ástandið í kringum COVID-19? Þetta er svolítið súrrealískt ástand. Skrítið en lærdómsríkt að búa við útgöngubann sem er líklega það strangasta í Evrópu um þessar mundir. Vissulega íþyngjandi, sér- staklega fyrir Íslending sem hefur búið við óskert ferðafrelsi alla tíð, en maður var fljótur að aðlagast og tekur þessu með jafnaðargeði. Eins er athyglisvert að upplifa samstöðu bæjarbúa en rúmlega helmingur þeirra er af erlendu bergi brotinn og frá rúmlega 80 löndum. Hér ríkir almenn jákvæðni og staðfesta við að fylgja reglum og klára þetta með sóma. Flestir fara út á svalir klukkan átta á kvöldin, klappa og hafa hátt. Þakka þannig þeim sem standa í framlínunni og peppa hvert annað upp. Einnig fara hér stöku sinnum á sama tíma um í hópum neyðaröku- tæki með ljósum og sírenum sem allt er til að byggja upp baráttuþrek og undirstrika að við erum öll í þessu saman. – Hefurðu áhyggjur? Er vissulega vel meðvitaður um mögulega hættu af COVID-19 en reyni að taka jákvæðnina og bjart- sýnina á þetta og leyfi mér ekki að hafa miklar áhyggjur af faraldr- inum sem slíkum hvað mig og mína varðar, enda tel ég okkur öll í nokkuð öruggu skjóli og hef trú á að þetta gangi fljótlega yfir en afleiðingarnar í framhaldinu eru sannarlega áhyggju- efni. Hér í Valencia-héraði hefur okkar svæði sloppið einna best frá faraldr- inum með tiltölulega fá greind smit og spítalinn hér hefur ekki verið undir miklu álagi í samanburði við önnur svæði. En ástandið er vissulega áhyggju- efni fyrir marga sem sitja eftir tekju- litlir og jafnvel tekjulausir og ekki útséð um hvernig fjölda fyrirtækja og einstaklinga reiðir af í framhald- inu. – Hvaða áhrif hefur faraldurinn á þitt daglega líf? Hvernig eru dagarnir hjá þér núna? Hefur þú gert miklar breytingar í daglegu lífi? Dagarnir eru vissulega einhæfir og það að fara út með ruslið er orðið til- hlökkunarefni. Maður fer ekki út úr húsi nema hafa lögmæta ástæðu til og getur átt von á að vera stöðvaður af lögreglu hvenær sem er og þurfa að gera grein fyrir ferðum sínum. Verslunarferð þýðir undantekn- ingarlítið að maður ekur fram á vega- tálma lögreglu og þarf þar að gera grein fyrir sínum ferðum og sýna fram á búsetu nálægt versluninni en einungis má fara í næsta stórmarkað til að versla helstu nauðsynjar. Sem betur fer erum við með hund og að fara með hann út í stuttar gönguferðir til að sinna nauðsyn- legum þörfum er ein af fáum undan- tekningum frá útgöngubanninu þannig að við hjónin skiptumst á að kíkja aðeins út fyrir girðinguna. – Hefur þú þurft að gera miklar breytingar varðandi vinnu eða daglegt líf? Hef ekki getað stundað fasta vinnu vegna heilsufarsaðstæðna um árabil þannig að þar er engin breyting á, en vissulega hefur þetta áhrif, og það sem ég finn helst fyrir er að geta ekki farið í lengri göngur og nauðsynlega hreyfingu sem hefur verið lykilatriði til að halda biluðu baki í sæmilegu ástandi. Annars hefur þetta aðallega áhrif á félagslega þáttinn. Maður sinnir ekki áhugamálum utan heimilis, hittir ekki vini og kunningja, fer út að borða eða á kaffihús sem reyndar eru smámunir og létt í vasa í saman- burði við þau áhrif sem þetta hefur og mun hafa á líf og framtíð margra annara. – Hvenær fórstu að taka COVID-19 alvarlega? Hvað varð til þess? Held að maður hafi farið að gera sér grein fyrir því fyrripartinn í mars að „flensan“ eins og maður kallaði þetta væri líklega eitthvað alvarlegri en maður gerði sér grein fyrir fram að því. Svo þróuðust málin hratt hér um miðjan mars og fyrr en varði var skollið á útgöngubann og ekkert annað í stöðunni en að taka þetta alvarlega. – Hvernig ert þú að fara varlega í þessu ástandi? Reyni að fara eftir reglum og leið- beiningum eins og kostur er og þá fyrst og fremst með tilliti til annara í kringum mig. En vissulega er maður „Himinn og haf á milli strangra reglna hér og þeirra aðgerða sem maður fylgist með heima á Íslandi“ Ingvar Gissurarson býr skammt frá Benidorm á Spáni Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is 54 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.