Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 42
– Örn Ævar Hjartarson, umsjónarkennari í Sand-
gerðisskóla og fyrrverandi Íslandsmeistari í golfi,
er svekktur að missa af Masternum og setur
spurningarmerki við golfsumarið. Víkurfréttir
lögðu fyrir hann nokkrar laufléttar spurningar.
– Hvernig varðir þú páskunum?
Páskarnir hjá fjölskyldunni minni
hafa alltaf einkennst af rólegheitum
og afslöppum. Á því varð engin
breyting þetta árið. Við bökuðum
bakkelsi úr myndböndum sem
heimilisfræðikennarinn í Sandgerði,
Rannveig Sigríður, hefur sett saman í
samkomubanninu. Einnig horfðum
við á allar Batman-myndirnar þessa
páska en það hefur verið hefð að
henda einhverjum myndaseríum í
tækið. Og svo höfum við farið í dag-
lega göngu á milli máltíða.
– Hvernig páskaegg fékkstu og
hver var málshátturinn?
Ég fékk mér Djúpuegg frá Freyju og
málshátturinn var: „Í upphafi skal
endinn skoða,“ sem á mjög vel við
starfið mitt í dag.
– Hvaða aðferðir ertu að nýta til
að eiga í samskiptum við fólk?
Ég hef verið að koma mér inn í
Microsoft Teams varðandi vinnuna
mína en samkomubannið hefur ein-
mitt neytt mann til að koma sér inn
í og læra á þetta forrit sem hefur
verið á dagskránni hjá mér í allan
vetur. Annars eru samskiptin mín
við vinahópana í gegnum Snapchat
og Messenger en reyndar var Face-
Time notað til að heyra í og sjá
fjölskylduna í páskamáltíðinni.
– Ef þú fengir bara að hringja eitt
símtal í dag, hver fengi það símtal
og hvers vegna?
Ég myndi hringja í foreldra mína
bara til að spjalla í örskamma stund,
en ég verð nú að viðurkenna að ég
er mjög lítill símamaður og eru sam-
tölin þar alltaf mjög stutt.
– Hvernig ertu að upplifa nýjustu
tíðindi um að það muni jafnvel
taka margar vikur inn í sumarið að
aflétta hömlum vegna COVID-19?
Það þarf að melta svona hluti en
það er ýmislegt sem mun breytast
hjá mér og fjölskyldunni varðandi
sumarið þá aðallega varðandi ferða-
lög. Þetta átti að vera ferðasumarið
mikla þar sem golfferð, tónleikaferð
og tveggja vikna ferð til Rómar sem
klappstýra fyrir Danskompaní á
Dance World Cup voru á dagskrá. En
það verður víst lítið úr þessum ferða-
lögum. Svo er auðvitað spurning um
golfsumarið þar sem áhuginn er allur
að koma aftur eftir að eiginkonan
byrjaði í sportinu. Það eru auðvitað
mjög margir sem hafa meiri áhyggjur
af þessu en ég því ég er mjög lán-
samur með allt mitt, hvort sem það
er fjölskylda, vini, eða atvinnu.
– Hvaða lærdóm getum við dregið
af heimsfaraldrinum?
Ég held að maður læri betur að
meta það og þá sem maður hefur í
kringum sig. Þegar maður hefur sitt
fólk í kringum sig og þá skipta bara
aðrir hlutir voðalega litlu máli.
– Ertu liðtæk/ur í eldhúsinu?
Ég hef alltaf haft gaman að elda góð-
an mat og með æfingunni þá er ég
bara orðinn nokkuð liðtækur í eld-
húsinu.
– Hvað finnst þér virkilega gott
að borða?
Vel elduð nauta ribeye eða nauta-
lund er alltaf ofarlega á listanum með
góðu rauðvíni í góðum félgasskap.
– Hvað var í páskamatinn?
Lambalæri að hætti mömmu með
brúnuðum kartöflum, baunum,
rauðkáli, salati og þunnri rjómasósu
er ómissandi á páskunum.
– Hvað finnst þér skemmtilegast
að elda?
Það er alltaf skemmtilegast að elda
þegar maður er búinn að liggja yfir
uppskriftum og pæla í marga daga
hvernig mat eigi að elda fyrir gott
matarboð.
– Hvað var bakað síðast á þínu
heimili?
Ég og yngri dóttir mín, Ásta María,
hentum í pönnukökur á föstudaginn
langa því við áttum heilan lítra af
mjólk sem rann út daginn áður.
– Ef þú fengir 2000 krónur. Hvað
myndir þú kaupa í matinn?
Ég myndi kaupa í góða ítalska græn-
metissúpu, pasta,grænmetiskraftur,
gulrætur, paprika, laukur, hvítlaukur,
sellerí, tómatar í dós og paste. Eða
gott Jambalaya: Bónuspylsur, laukur,
paprika, sellerí, hvítlaukur, hrísgrjón,
paste, olía og sterkt krydd.
– Hvað hefur gott gerst í vikunni?
Ég og fjölskyldan mín erum búin að
eyða mörgum gæðastundum saman,
spjallað, spilað, púslað, horft á sjón-
varpið og borðað góðan mat. Einnig
hafa nánir fjölskyldumeðlimir losnað
við veiruna.
– Hvað hefur vont gerst í vikunni?
Það hefur voðalega fátt vont gerst hjá
mér og minni fjölskyldu. Þegar ég
hugsa bara um rassgatið á sjálfum
mér þá finnst mér ömurlegt að
Masterinn sé ekki á dagskrá þessa
vikuna því það er skemmtilegasta
golfmótið að horfa á í sjónvarpinu.
Hvaða spurningu hefðir þú viljað fá að svara í þessu viðtali?
Hver er spurningin og svarið við henni?
– Hefur þú tekið upp á einhverju nýju í
samkomubanninu?
Það nýjasta hjá mér sem ég gerði ekki fyrir samkomubannið
er netskrafl.is. Ég er orðinn alveg háður þessu og finnst fátt
skemmtilegra en að skora á vini og vandamenn í skrafl á
netinu.
Er orðinn
háður netskrafli
í samkomu-
banninu
Netspj@ll
42 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.