Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 76
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga frá kl. 09:00 til 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
S t æ r s t a f r é t t a - o g a u g l ý s i n g a b l a ð i ð á S u ð u r n e s j u m
Mundi
Á enginn startkapla
fyrir kísilver?
... sagði enginn.
Svona sendið þið Víkurfréttum efni:
Farið í vafrann og sláið inn wetransfer.com
Smellið á „Take me to Free“ (ókeypis útgáfa)
Ýtið á „Add your files“ og veljið myndskeiðin sem þið ætlið að senda okkur.
Í reitinn „Email to“ sláið þið inn: vf@vf.is
Í reitinn „Your email“ sláið þið inn netfangið sem þið sendið frá.
Í „Message“ á að skrifa upplýsingar um efnið og símanúmer sendanda.
Ýtið svo á „Transfer“.
Hefur þú sögu að segja okkur?
Munið bara að snúa
símanum lárétt en ekki
lóðrétt þegar þið takið
upp myndskeið!
Nú eru sögulegir tímar og Víkurfréttir vilja endilega fá myndefni
frá Suðurnesjafólki þar sem það lýsir lífi sínu á tímum COVID-19.
Segið okkur skemmtilegar sögur eða sýnið okkur frá því sem þið
eruð að fást við þessa dagana. Þið getið notað snjallsíma eða
myndavélar til að taka upp efnið. Hafið snjalltækið lárétt.
Skjárinn á að snúa eins og sjónvarpið, ekki upp á rönd :-)
Sækjum okkur heim
Ég er ekki að flytja neinar fréttir þegar ég bendi á að það stefni í það að
við séum ekki að fara neitt í sumar. Frekar súr en bláköld staðreynd því
miður – en sumarfrí í útlöndum er eitthvað sem við þurfum að geyma
til betri tíma. Vonandi verða veðurguðirnir okkur extra hliðhollir og
við munum hugsa hlýlega til sumarsins 2020 þegar við nutum þess að
ferðast innanlands í íslensku sumarblíðunni.
Það er ljóst að samkeppnin um
íslenska ferðamanninn verður hörð
þetta sumarið. Staðreyndin er sú
að flestöll ferðaþjónustufyrirtæki í
heiminum berjast í bökkum í þessu
hamfararástandi og sjá fyrir að þurfa
að treysta á innlenda markaðinn.
Ísland er þar engin undantekning
og vonandi tekst okkur í sameiningu
að brúa bilið þar til erlendu ferða-
mennirnir byrja aftur að sækja okkur
heim.
Ferðaþjónustan er gríðarlega
mikilvæg atvinnugrein hér á Suður-
nesjunum eins og allir vita. Flug-
stöðin hefur verið okkar stóriðja
og höggið því þungt þegar flugið
stöðvast eins og hendi sé veifað. En
það eru fleiri fyrirtæki hér á svæð-
inu sem hafa byggt afkomu sína á
ferðaþjónustunni, hér er fjöldinn
allur af hótelum, veitingastöðum og
afþreyingafyrirtækjum sem standa
auð og verkefnalaus. Hvernig mun
þeim reiða af og hvernig mun þeim
ganga í baráttunni um innlenda
ferðamanninn?
Við vitum sem hér búum að
Reykjanesið er algjör náttúruperla
en því miður er það frekar van-
nýtt náttúruperla og lítt þekkt af
Íslendingum. Reykjanesið hefur
ekki verið áfangastaður Íslendinga,
heldur miklu frekar þjóðbraut þeirra
til og frá landinu. Án þess að hafa
stundað hótelrekstur sjálf get ég mér
þess til að stærsti hluti hótelgesta í
Reykjanesbæ séu erlendir ferðamenn
og að þeir dvelji hér frekar stutt,
ýmist á leið til eða frá landinu. Þeir
Íslendingar sem dvelja hér á hótelum
myndi ég álíta að væru í þeim sömu
erindagjörðum, til viðbótar við ein-
staka árshátíðir eða viðlíka viðburði.
Ef þetta mat mitt er rétt þá óttast
ég að það gæti verið mjög á bratt-
ann að sækja í baráttunni um inn-
lenda ferðamanninn í sumar. Þarna
þarf þegar í stað að ráðast í aðgerðir,
sameiginlegt kynningar- og mark-
aðsátak fyrir svæðið allt til að höfða
til íslenskra ferðamanna sem eru
ekki vanir að líta til Reykjanessins
sem áfangastaðar, hvað þá gististaðar.
Þarna þarf Reykjanesbær að taka for-
ystu, skýra forystu. Það þarf að tala
bæinn okkar upp og gera hann líka
að eftirsóknarverðum áfangastað. Í
samvinnu við hótelin, veitingastað-
ina og önnur ferðaþjónustufyrirtæki
þarf að kynna hvað hér er til staðar
og hvað við höfum upp á að bjóða.
Af nógu er að taka – fólk veit bara
ekki af því.
En það er ekki nóg. Bærinn okkar
þarf að líta vel út og vera aðlaðandi
og vel hirtur til þess að einhverjum
detti í hug að koma hingað. Þar þarf
Reykjanesbær að gera stórátak og
það í hvelli. Það þarf að þrífa götur
og göngustíga eftir veturinn og leggja
miklu meiri metnað í það en hefur
verið gert, t.d. með snjómokstur á
þessum sömu göngustígum í vetur.
Það þarf að laga það sem bilar og
skemmist – má ég nefna ljósin á
Strandleiðinni sem dæmi. Já, það
kostar pening en ef hlutir fá að
drabbast niður ber enginn virð-
ingu fyrir þeim. Það þarf að planta
blómum og hirða beð. Svo þurfum
við íbúar líka að leggja okkar af
mörkum – tökum til og gerum fínt
í kringum okkur, göngum vel um,
hendum rusli í ruslafötur og hirðum
upp eftir hundana okkar!
Fallegur, vel hirtur bær í dásam-
legu umhverfi með heimsklassa
þjónustu, að ég tali nú ekki um í
dásamlegu sumarveðri. Ég held að
fólk myndi vilja koma ... það þarf
bara að vita af okkur.
LO
KAO
RÐ
RAGNHEIÐAR ELÍNAR
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta