Víkurfréttir - 16.04.2020, Blaðsíða 71
Göngutúrar
og podcast
Karín Óla Eiríksdóttir hefur haft
meiri tíma með sínu nánasta fólki
og áhugamálunum sem hefur hún
vananlega ekki.
Hvernig hafa síðustu vikur
verið hjá þér?
Síðustu vikur hafa verið
frekar rólegar. Ég er vön
að hafa mikið að gera og
vera á fullu í skóla, vinnu,
björgunarsveitarstarf-
inu og félagslífinu. Það
hefur orðið mikil breyting
á því þar sem að skólinn
og vinnan eru lokuð, öll
skipulögð starfsemi innan
björgunarsveitarinnar
hefur verið sett á pásu
og frekar lítið um að vera
í félagslífinu um þessar
mundir.
Að hvaða leyti hefur líf þitt
breyst í samkomubanninu?
Ég er í fjarnámi í skólanum
og get því lært á þeim tíma
sem að ég vil sem hentar
mér mjög vel. Ég hef haft
meiri tíma til að sinna mínu
nánasta fólki og áhuga-
málum sem ég gef mér
vanalega ekki mikinn tíma í.
Hvernig heldur þú að sum-
arið verði?
Ég held að þetta sumar
eigi eftir að vera ólíkt því
sem við erum vön, ekki
jafn mikið af ferðalögum
og útihátíðum. Ég stefni
að því að vera dugleg að
vinna og eyða tíma með
fólkinu mínu. Svo heldur
maður auðvitað í vonina
og stefnir að því að mæta
í dalinn í byrjun ágúst.
Hvað hefur hjálpað þér að
halda geðheilsu í gegnum
þetta?
Samverustundir, heima-
æfingar og göngutúrar og
skemmtilegir podcast-
þættir eru það helsta sem
hefur hjálpað mér.
Erfitt að hitta
ekki fjölskylduna
Þóra Lind Halldórsdóttir finnst
skrýtið að hafa ekki hitt fjölskyldu,
vini og skólafélaga og þakklát
fyrir að allir í fjölskyldunni séu
heilbrigðir
Hvernig hafa síðustu vikur
verið hjá þér?
Síðustu vikur hafa verið
rólegar en svolítið krefj-
andi og í mikilli óvissu. Það
hefur ekki mikið breyst
þegar það kemur að dag-
legu lífi þar sem ég er að
skrifa BS ritgerðina mína
við Háskóla Íslands og
ég var búin að vera mikið
heima að vinna í henni fyrir
samkomubannið. Síðan
held ég áfram að mæta
í vinnuna mína samhliða
því. Það er hins vegar erfitt
að hitta fjölskyldu og vini
svona lítið og að vera ekki
með fasta rútínu.
Að hvaða leyti hefur líf þitt
breyst í samkomubanninu?
Skólinn minn lokaði svo
námið mitt hefur breyst í
fjarnám, crossfit-stöðin
þar sem ég æfi er einnig
lokuð og það er skrýtið að
hitta ekki fjölskyldu, vini
og skólafélaga. Síðan var
erfitt að eyða ekki pásk-
unum með fjölskyldunni
eins og vaninn er. Þar að
auki er ég að útskrifast
núna í vor og fyrirkomu-
lagið á lokaprófum, loka-
ritgerðinni og útskriftinni
mun líka breytast. Þetta
eru hins vegar hlutir sem
skipta ekki öllu máli og
ég er mjög þakklát að allt
fólkið mitt sé heilbrigt og
hafi ekki lent í því að smit-
ast.
Hvernig heldur þú að sum-
arið verði?
Mér finnst sumarið vera
mikil óvissa fyrir alla. Ég
held það verði ennþá tak-
markanir á mörgu sem er
skiljanlegt. Öllu sem ég
hafði skipulagt í sumar
hefur verið frestað eða
aflýst og einnig hefur
sumarvinnan mín breyst
vegna ástandsins. Það
kemur vonandi í ljós
fljótlega hvernig sumarið
verður og þó að óvissan
sé erfið veit ég að, hvern-
ig sem þetta verður, þá
er það gert í hag okkar
allra. Ég mun vonandi ná
að ferðast eitthvað innan-
lands og ef veðrið verður
eitthvað í líkingu við sum-
arið 2019 þá get ég ekki
kvartað.
Hvað hefur hjálpað þér
að halda heilsu í gegnum
þetta?
Það hefur hjálpað mér
mjög mikið að halda rútínu,
vakna alltaf á svipuðum
tíma, taka heimaæfingar,
heyra í fjölskyldu og vinum
og svo finnst mér ótrúlega
gott að fara út að labba
en það er eitthvað sem
ég vanmat mikið áður en
þetta ástand skall á. Mér
finnst mikilvægt að vera
jákvæð en á sama tíma að
leyfa sér líka bara að eiga
slæman dag annað slagið í
svona skrýtnu ástandi.
Hvað segir unga fólkið á tímum COVID-19?
Fimmtudagur 16. apríl 2020 // 16. tbl. // 41. árg.
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 71